Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Íslendingar nota netið í síauknum
mæli til þess að kaupa vörur og
þjónustu erlendis og láta senda sér
heim og nú er svo komið að fjöldi
tollskyldra sendinga til landsins
hefur aldrei verið meiri. Þetta
segja fulltrúar Íslandspósts, sem
eru nú í óðaönn við að koma jóla-
gjöfum og -kortum til skila fyrir
hátíðirnar.
„Róðurinn hefur verið að þyngj-
ast hjá okkur í þessari viku og
svona verður þetta fram að jólum,“
segir Ágústa Hrund Steinarsdóttir,
forstöðumaður markaðsdeildar Ís-
landspósts, og notar tækifærið til
að minna á að á mánudaginn, 19.
desember, er síðasti öruggi skila-
dagur á jólakortum og jólapökkum
innanlands.
Nóvember metmánuður
Ágústa segir að frá hruni hafi
verið stöðug aukning í tollskyldum
sendingum til landsins og að í októ-
ber á þessu ári hafi fjöldi þeirra
verið orðinn sá sami og allt árið í
fyrra, eða vel á annað hundrað þús-
und.
Halla Garðarsdóttir, deildarstjóri
hjá Íslandspósti, tekur undir þetta
og segir að í nóvember hafi póst-
verslun til landsins talið 14 þúsund
sendingar en þá er átt við vörur til
einstaklinga að verðmæti 30 þús-
und krónur eða minna.
„Við hrunið 2008 duttu þessar
sendingar alveg niður en frá þeim
tíma hefur þetta verið að aukast
hægt og rólega og náði toppnum í
nóvember. Frá því að mælingar
hófust, árið 2003, hafa aldrei komið
eins margar sendingar,“ segir
Halla.
Til samanburðar var tekið á móti
3-4.000 sendingum af þessu tagi í
hverjum mánuði 2003 og 3.200
sendingum í nóvember 2008. Sá
mánuður var nálægt því að vera sá
lélegasti frá upphafi.
SMS-frímerkin vinsæl
Sé einungis litið til jólaverslunar-
innar, sést að hún er einnig að
aukast. Í desember í fyrra fóru
12.284 sendingar í gegnum Póstinn
og að sögn Höllu stefnir í að þær
verði mun fleiri í ár. „Það er alveg
klárt mál að það eru fleiri farnir að
kaupa jólagjafir til landsins á net-
inu,“ segir hún.
Halla segir að þrátt fyrir net-
væðinguna hafi jólakortasendingar
þó ekki minnkað en sá fjöldi hafi
verið svipaður síðustu ár. Fyrstu
fimmtán daga desembermánaðar
hafa um 380 þúsund jólakort farið í
gegnum póstmiðstöðina við Stór-
höfða og er þá ekki allt talið, því
10% bréfa skila sér aðrar leiðir.
Þá segir Halla svokölluð sms-
frímerki hafa vakið mikla lukku.
„Sú þjónusta fór í gang fyrir jólin
og er dálítið að slá í gegn,“ segir
hún. „Íslendingar eru svo nýjunga-
gjarnir.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Póstur Það er mikið annríki hjá starfsmönnum Íslandspósts um þessar mundir og öll pósthús smekkfull af jólakort-
um og jólapökkum. Síðasti öruggi skiladagur fyrir bréf og böggla innanlands er mánudagurinn 19. desember.
Íslendingar panta
jólagjafirnar á netinu
Póstverslun til einstaklinga hefur aldrei verið meiri
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við trúum eiginlega ekki öðru en að
jafnræðisreglan verði látin gilda hjá
ríkinu í þessu eins og svo mörgu
öðru,“ segir Jóhann Ólafsson, for-
maður Samtaka stofnfjáreigenda
Sparisjóðs Svarfdæla, eftir ákvörðun
Landsbankans þess efnis að fella nið-
ur fjölda lána sem bankinn hafði veitt
bæði einstaklingum og lögaðilum til
kaupa á nýju stofnfé í Sparisjóðnum í
Keflavík, Sparisjóði Vestfirðinga og
Sparisjóði Húnaþings og Stranda.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum er um að ræða ríf-
lega 500 lán til einstaklinga og 30 lán
til lögaðila.
Lán til stofnfjáreigenda Sparisjóðs
Svarfdæla hafa þó ekki verið felld
niður þar sem þau eru bundin inni í
Seðlabanka Íslands. Ríkir því enn
nokkur óvissa í málefnum þeirra.
Krafist ógildingar
„Við munum skoða okkar stöðu al-
veg niður í kjölinn. Þetta er sami að-
ili; ríkið, eigandi Landsbankans og
Seðlabankinn […] þar sem okkar lán
eru,“ segir Jóhann og bætir við að
hann gleðjist nokkuð yfir fréttum
gærdagsins.
Reimar Pétursson er lögmaður
stofnfjáreigenda Sparisjóðs Svarf-
dæla. „Við erum búnir að höfða mál
gegn því félagi sem heldur á þessum
lánum og gera kröfu um að fá við-
urkenningu á ógildi þeirra,“ segir
Reimar og bætir við að verði ekki
fallist á það verði þess jafnframt
krafist í því máli að sparisjóðurinn,
fyrrverandi stjórn hans og spari-
sjóðsstjóri ásamt KPMG, endurskoð-
anda sparisjóðsins, bæti fólki það
tjón sem af hlýst verði lánin ekki
ógilt.
Enn ríkir óvissa
í málefnum stofn-
fjáreigenda SpSv
Formaður Samtaka stofnfjáreigenda
Sparisjóðs Svarfdæla vongóður
Morgunblaðið/RAX
Sparisjóður Ekki eru öll málefni
stofnfjáreigenda sparisjóða leyst.
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Ekki virðist hafa verið lagt mat á
samkeppnisleg áhrif þess að undan-
skilja lífeyrissjóði fyrirhuguðum
fjársýsluskatti, sem lagt er til að
leggja á launagreiðslur í fjármála- og
vátryggingastarfsemi. Breytingar-
tillaga meirihluta efnahags- og við-
skiptanefndar sem undanskilur líf-
eyrissjóði greiðslu skattsins var
samþykkt á Alþingi eftir aðra um-
ræðu í gær og vísað aftur til nefndar.
Með tillögu um undanþágu hafa
vaknað upp spurningar um áhrif
hennar á samkeppni, verði bönkum
og sparisjóðum gert að greiða 5,45%
fjársýsluskatt á meðan lífeyrissjóðir
eru undanþegnir skattinum.
Íþyngjandi lagaumhverfi
Bankar eiga í samkeppni við líf-
eyrissjóði um bæði fasteignalán og
séreignarsparnað einstaklinga. Í
nefndaráliti 1. minnihluta efnahags-
og viðskiptanefndar kemur fram að
lífeyrissjóðir eru með um 15% hlut-
deild á fasteignalánamarkaði, bank-
ar um 27% og Íbúðalánasjóður það
sem eftir stendur sem eru 58%.
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans segir lagaumhverfið
orðið óþarflega íþyngjandi og óstöð-
ugt. Jafnræði þurfi að ríkja á milli
aðila á samkeppnismarkaði.
„Með fjársýsluskattinum er búið
að setja Íbúðalánasjóð, bankana og
lífeyrissjóðina í þrjú mismunandi
hólf. Íbúðalánasjóður býr við ríkis-
ábyrgð á allri fjármögnun sinni, við
verðum skattlögð mikið en lífeyris-
sjóðirnir ekki,“ segir Steinþór.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
Samkeppniseftirlitið hafi ekki tekið
afstöðu til fyrirhugaðra breytinga en
muni skoða þær í framhaldinu.
Möguleg áhrif skatts á samkeppni
Verði lífeyrissjóðum veitt undanþága frá greiðslu fyrirhugaðs fjársýsluskatts gæti það haft áhrif á sam-
keppni Keppa við banka á fasteignalánamarkaði og á markaði með séreignarsparnað einstaklinga
Umsagnir um skattinn
» Fjármálaeftirlitið sagði 18.
nóvember að engin tilraun
væri gerð til að meta áhrif
skattsins á fjármálafyrirtæki
og neytendur.
» Bankasýslan sagði 17. nóv-
ember mikilvægt að skoða af
kostgæfni áhrif fyrirhugaðrar
skattlagningar á afkomu fjár-
málafyrirtækja.
Steinþór
Pálsson
Páll Gunnar
Pálsson
19.
desember er síðasti öruggi skila-
dagur bréfa og böggla fyrir jól.
14.000
tollskyldar sendingar
til einstaklinga bárust með
pósti í nóvember.
3.200
sendingar sömu tegundar fóru um
Íslandspóst í nóvember 2008.
‹ PÓSTUR ›
»
Ertu alltaf
í spreng?
Sprengur.is