Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 24
Morgunblaðið/ Gunnlaugur Auðun Árnason Miðbærinn Egilshús er næst elsta varðveitta húsið í Stykkishólmi og setur það fallegan svip á miðbæinn. ÚR BÆJARLÍFINU Gunnlaugur Auðun Árnason Stykkishólmur St. Fransiskusspítali hefur verið einn stærsti vinnustaður í sveitarfélaginu. En þar hefur orðið breyting á. Starfsfólki hefur fækk- að síðustu ár með sífellt lækkandi framlögum frá ríkisvaldinu. Starfs- fólki sjúkrahússins var sagt frá því á dögunum að enn yrði haldið áfram á sömu braut. Lagður er til 30 milljóna króna niðurskurður á rekstri spítalans á næsta ári. Fyr- ir ekki stærri stofnun hefur það mikil áhrif. Hólmarar eru að von- um áhyggjufullir yfir þessum tíð- indum og finnst furðulegt að enda- laust skuli skorið niður í þeim málaflokki sem flestir landsmenn eru sammála um að standa skuli vörð um. Starfsemi sjúkrahússins hefur mikla þýðingu fyrir íbúa svæðisins og áhrif á búsetuþróun. Það er mál að linni.    Körfuboltabærinn Stykk- ishólmur státar af keppnisliðum í úrvalsdeild bæði karla og kvenna. Karlaliðinu hefur ekki gengið nógu vel að undanförnu og hefur liðið ekki skilað þeim árangri sem von- ast var til. Það er dýrt að halda úti liðum í efstu deild Íslandsmóts- ins. Leikmenn hafa lagt hart að sér við fjáraflanir. Að undanförnu hafa þeir ásamt stuðningsmönnum séð um allt niðurrif innandyra í Egilshúsi til að afla tekna. Mögu- legt er að þar hafi of mikil vinna verið lögð á leikmenn með annarri vinnu þeirra. Síðasti leikur fyrir jól er í Hólminum á morgun, sunnudag, gegn Grindavík. Kvennaliði Snæfells hefur gengið mun betur í úrvalsdeildinni og er liðið í 5. sæti.    Síldveiðar á Breiðafirði hafa gengið vel í haust. Enn finnst mik- il síld fyrir utan bæjardyrnar. Stóru skipin eru flest hætt veiðum enda síldarkvóti þeirra búinn. Í haust fengu minni bátar í fyrsta sinn leyfi til síldveiða. Frá Hólm- inum hafa 5 litlir bátar stundað reknetaveiðar. Mestum afla hefur Sandvík SH landað, um 35 tonn- um.    Egilshús var byggt 1865. Hús- inu fylgir því löng saga og nú bætist nýr kafli í sögu þess. Húsið er komið í hendur nýrra eigenda sem ætla að breyta því í 10 her- bergja gistiheimili. Kaupandinn er Gistiver ehf sem hefur áhuga á að hasla sér völl í ferðaþjónustu í Hólminum. Unnið er að end- urbótum innan dyra samkvæmt nútímakröfum. Verkið þarf að ganga vel því von er á fyrstu gestum í maí á næsta ári.    Aðventusamkoma verður í Stykkishólmskirkju á morgun, sunnudag, kl. 17. Það sem vekur mesta eftirvæntingu er að hlusta á nýja pípuorgelið sem leikið verður á í fyrsta sinn í kirkjunni. Starfsmenn Klais, þýska org- elframleiðans hafa undanfarnar 6 vikur unnið að uppsetningu og stillingu á orgelinu. Þeir hafa lok- ið störfum og orgelið er tilbúið til notkunar. Þar með rættist lang- þráður draumur Hólmara og ann- arra velunnara kirkjunnar um að eignast betra tónlistar- og menn- ingarhús. Egilshús verður gistihús 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 7 dagar til jóla Aðventuhelgina 17.-18. desember verður ýmislegt um að vera í Café Flóru í Grasagarðinum. Kaffihúsið og jólabasarinn eru opin frá kl. 12- 18. Á laugardeginum munu jólalögin óma um garðinn þegar kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur syng- ur fyrir gesti og einnig verða kátir jólasveinar á ferli í Laugardalnum. Á sunnudeginum mæta krakkar úr Skólahljómsveit Austurbæjar og leika jólalög fyrir gesti. Og þau Anton Rafn Gunnarsson, Regí Óð- ins og hin 13 ára gamla Thelma Svavarsdóttir flytja frumsamin lög og texta með jólaívafi. Á torginu fyrir framan Grasagarðinn munu félagar úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík selja jólatré alla helgina frá kl. 13.00 til 17.00 og halda uppi jólastemningu. Fjölbreytt dagskrá í Grasagarðinum Morgunblaðið/Golli Miðborgin tekur vel á móti gangandi vegfarendum nú um helgina. Hluti Laugavegar og Skólavörðustígs verður eingöngu fyrir gangandi vegfarendur, en lokað verður fyrir bílaumferð niður Skólavörðustíg við Bergstaðastræti og niður Laugaveg við Frakkastíg að Bankastræti. Margvíslegar uppákomur verða í miðborginni yfir helgina. Á ferðinni á völdum stöðum frá Ingólfstorgi upp á Hlemm verða gamlir og nýir jólasveinar, kvartettinn Kvika, White Signal, Kvennakór Hafnarfjarðar, Grýla og Raunar, Lúðrasveitin Svanur og Frænkur Grýlu. Þeir sem koma á eigin bíl eru hvattir til að nota þjón- ustu bílastæðahúsanna. Breytingin á umferð niður Laugaveginn verður að- eins nú um helgina, en Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verður til 27. desember fyrir gangandi umferð einvörðungu. Gangandi vegfarendur njóta forgangs Það verður mikið um dýrðir í Jóla- þorpinu í Hafnarfirði um helgina, fjölbreytt skemmtidagskrá og margt spennandi að finna í sölu- húsum. Til sölu verða skartgripir, tísku- aukahlutir, málverk, jólaskraut, ull- arvörur, íslensk hönnun, glervara, heimagerðar sultur, og margt fleira auk þess sem hægt verður að gæða sér á ilmandi kakói, pönnsum, rist- uðum möndlum og öðru góðgæti. Skemmtidagskráin verður lífleg og þessa síðustu aðventuhelgi verð- ur boðið upp á tvö fjörug útijólaböll. Siggi Hlö., ásamt jólasveinum, stýrir fyrra jólaballinu kl. 14.30 á laugar- deginum og Dansbandið verður síð- an með harmonikkujólaball kl. 15 á sunnudeginum. Margt annað verður á dagskránni og má sjá allt um hana á www.hafnarfjordur.is. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tvö útiböll í Jóla- þorpinu um helgina Skógræktarfélag Íslands hefur fengið fimm unga myndlistarmenn og hönnuði til að skreyta íslensk jólatré sem verða til sýnis á jóla- trjáamarkaði skógræktarfélaga við Umferðarmiðstöðina (BSÍ). Dorrit Moussaief forsetafrú mun síðan velja best skreytta tréð sunnudag- inn 18. desember kl. 14. Listamenn/ hönnuðir sem taka þátt í þessum viðburði eru: Hildur Yeoman og Daníel Björnsson, Inga Birgis- dóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sara Riel og Tinna Ottesen. Forsetafrúin velur bestu skreytinguna Jólamarkaðurinn Elliðavatni held- ur áfram og fer nú í hönd fjórða helgin. Mjög góð aðsókn hefur ver- ið á markaðinn og fólk notið þess að fara upp í Heiðmörk og upplifa náttúruna og hina sérstöku jóla- stemningu sem þar ríkir, segir í til- kynningu. Auk hefðbundinnar jóla- trjáasölu Skógræktarfélagsins er fjöldi íslenskra handverksmanna með söluborð víðs vegar á mark- aðnum; markaðskaffihús er opið allan tímann, tónlistarfólk kemur fram með reglulegu millibili og rit- höfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum. Opið klukkan 11-17. Markaður við Elliðavatn opinn um helgina Pakki á pakka Fallegt pakkaskraut hannað af Arca Design Island. Aðrir sem standa að þessu eru Lógóflex og Markó- Merki. Jólatréð verður selt á 500 kr. hjá Arca design, Grímsbæ við Bústaðaveg og fer öll upphæðin óskipt til stuðnings Fjölskylduhjálpar Íslands. Fríðindak ort Golfarans Golfkortið JÓLAGJÖF GOLFARANS Kortið fæst á völdum stöðvum Golfkortið 2012 Spilað um allt Ísland - 31 golfvellir Einstaklingskort 9.000 kr, Fjölskyldukort 14.000 kr Upplýsingar á golfkortid.is Kíkið inn á leikinn Í dag, laugardaginn 17. desember kl. 13, verður MS Jólaskákmótið í Tjarnarsal Ráðhússins. Mörg af efnilegustu börnum landsins tefla. Skákakademía Reykjavíkur stend- ur að mótinu, þar sem um 80 börn á aldrinum 6-12 ára tefla í Jólaskóg- inum í aðalsal Ráðhússins. Gestum og áhorfendum verður boðið upp á fjöltefli við skákmeistara meðan á mótinu stendur. Skákakademía Reykjavíkur hef- ur á síðustu árum unnið að út- breiðslu skáklistarinnar í grunn- skólum borgarinnar, auk þess að skipuleggja margskonar viðburði og hátíðir. MS hefur frá upphafi verið meðal helstu bakhjarla Skák- akademíunnar. Heiðursgestur við setningu mótsins er Guðni Ágústs- son fv. ráðherra. Upplestur úr bókum flytur sig um set út af skákmótinu og verður á Kaffihúsinu Öndinni í Ráðhúsinu um helgina milli klukkan 13 og 14. Efnileg börn tefla á jólaskákmóti MS Jólatré verður á nánast öllum heim- ilum á Íslandi um þessi jól ef marka má könnun MMR. Alls sögðust 90,6% þeirra sem svöruðu könnuninni ætla að setja upp jólatré. Í sömu könnun MMR fyrir ári sögðu 91,2% að það yrði jólatré á sínu heimili um jólin. Skipt eftir einstökum svörum sögðust 39,3% ætla að hafa lifandi jólatré á sínu heimili þessi jólin, 51,3% gervitré og 9,4% ætluðu ekki að hafa neitt jólatré Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jólatré Flestir landsmenn ætla að prýða heimili sín fyrir jólin. Jólatré á langflestum heimilum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.