Morgunblaðið - 17.12.2011, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Bandaríska matsfyrirtækið Fitch
Ratings hefur lækkað lánshæfis-
einkunn sex alþjóðlegra banka vegna
hættunnar á dýpri skuldakreppu á
fjármálamörkuðum.
Um er að ræða bandarísku bank-
ana Bank of America og Goldman
Sachs, ásamt Barclays í Bretlandi og
franska bankanum BNP Paribas.
Jafnframt var lánshæfiseinkunn
Deutsche Bank í Þýskalandi og
svissneska bankans Credit Suisse
lækkuð.
Fjármálastofnanir á evrusvæðinu
hafa í auknum mæli haldið að sér
höndum í lánveitingum. Lánafrost
hefur ríkt á evrópskum milli-
bankamarkaði og bankastofnanir
sem hafa á bókum sínum hátt hlutfall
ríkisskuldabréfa verst stöddu evru-
ríkjanna eru sérstaklega viðkvæmar
fyrir frekari skakkaföllum.
Áður hefur matsfyrirtækið Stand-
ard & Pooŕs sett 15 evrópska banka
á athugunarlista vegna hugsanlegrar
lækkunar á lánshæfiseinkunn.
Fitch lækkar
sex banka
Viðskipti hófust með hlutabréf
Haga í Kauphöllinni í gær og hækk-
aði gengi bréfanna um 18% á fyrsta
degi viðskipta. Skráningargengi
Haga var 13,5 en við lokun mark-
aða stóð gengið í 15,95 á hlut.
Fram kom í máli Árna Páls Árna-
sonar, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, sem var viðstaddur skrán-
ingu Haga, að það væri mikilvægt
að efla tiltrú fjárfesta á íslenskum
hlutabréfamarkaði.
Hagar eru fyrsta félagið sem er
skráð á aðallista Kauphallarinnar
síðan í ársbyrjun 2008. Páll Harð-
arson, forstjóri Kauphallarinnar,
sagði skráninguna „marka end-
urreisn hlutabréfaviðskipta hér á
landi. Þetta er ánægjulegt fyrir
fleiri en Haga.“
18% gengis-
hækkun á
fyrsta degi
Morgunblaðið/Golli
!"# $% " &'( )* '$*
+,+-./
+.0-1
++.-++
,+-230
,4-252
+/-35,
+,0-/
+-3525
+./-1/
+3.-/0
+,,-+5
+.0-.5
++.-15
,+-1,+
,4-1,2
+/-5+2
+24-45
+-35.,
+..-42
+30-,2
,+/-+505
+,,-13
+04-2,
++.-.+
,+-1.2
,4-1.2
+/-551
+24-1,
+-3/,.
+..-30
+30-5/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Engin breyting verður á stjórn Kaup-
skila (sem fer með 87% hlut í Arion
banka) þótt skilanefnd Kaupþings
verði lögð niður samkvæmt lögum um
áramótin.
Í frétt Morgunblaðsins í gær kom
fram að Steinunn Guðbjartsdóttir, for-
maður slitastjórnar Glitnis, hefði til-
kynnt þeim sem sátu í stjórn ISB
Holding (sem fer með 95% hlut í Ís-
landsbanka) að ákveðið hefði verið að
skipta um stjórn í tilefni þess að skila-
nefnd bankans hættir störfum um ára-
mótin.
Að sögn Feldísar Lilju Óskarsdótt-
ur hdl, sem situr í slitastjórn Kaup-
þings, verður það ekki gert hjá Kaup-
þingi. „Nei, það verða engar breyt-
ingar hjá Kaupskilum í tengslum við
það að skilanefndin verður lögð niður,“
sagði Feldís. „Við munum reyndar
skipa nýjan mann í stjórnina á næstu
dögum vegna þess að Steinar Þór Guð-
geirsson fór úr henni en það er ótengt
störfum skilanefndarinnar. Ekki eru
áætlaðar neinar breytingar á stjórn
Kaupskila né störfum hennar.“
borkur@mbl.is
Kaupskil óbreytt
Þótt skilanefnd Kaupþings verði lögð niður um áramótin
stendur ekki til að breyting verði á stjórn Kaupskila
Gengi krónunnar hefur veikst þó-
nokkuð að undanförnu og stendur
gengisvísitala hennar nú í rúmum
217 stigum, sem er það hæsta sem
hún hefur farið í fjóra mánuði.
Evran kostar nú um 159 krónur,
sem er ívið meira en hún kostaði
fyrr í vikunni, en „á sama tíma og
hún er að veikjast gagnvart flestum
myntum þá þokast hún upp í verði í
krónum talið. Bandaríkjadollar er
kominn yfir 122 krónur og hefur
hann ekki verið dýrari síðan seint í
júlí á síðasta ári,“ segir í Morgun-
korni Íslandsbanka.
Krónan ekki
veikari í fjóra
mánuði
Þrotabúið Kaupskil fer með 87%
hlut í þrotabúi Kaupþings.