Morgunblaðið - 17.12.2011, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Samhjálp stendur fyrir svokölluðum
Litlujólatónleikum næstkomandi
þriðjudag kl. 20 en þeir eru haldnir til
styrktar Samhjálparstarfinu, sem er
bæði umfangsmikið og fjölbreytt.
Samtökin hafa þrátt fyrir erfiða fjár-
hagsstöðu haldið allri starfsemi
ótrauð ófram og treysta á að lánar-
drottnar þeirra muni reynast jafn-
miskunsamir samverjar og margir
velunnarar félagsins.
Samhjálp rekur og sér um meðferð-
ar- og áfangaúrræði fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga, búsetuúrræði,
neyðarskýli fyrir heimilislausa karla
og kaffistofu Samhjálpar, en þar
borða daglega um 100 manns. Að auki
er rekin göngudeild, félagsmiðstöð og
nytjamarkaður í höfuðstöðvum sam-
takanna í Háborg.
„Alkóhólismi er ekki eigingirni,
alkóhólismi er sjúkdómur sem rífur
fólk frá öllu sem það elskar,“ segir
Karl V. Matthíasson, framkvæmda-
stjóri Samhjálpar. Hann segist sjá
betur og betur hversu umkomulausir
þeir eru sem taka á sínum málum,
fara í meðferð og lifa það af en standa
svo einir á móti heiminum.
„Það sem mér finnst vanta til að við
getum lokað hringnum er starfsstöð
þar sem færi fram skipulögð endur-
hæfing. Það þarf að vera til skjól,
þangað sem fólk getur leitað eftir
meðferð og haldið áfram sinni vinnu í
öruggu umhverfi. Síðan smám saman
á það að geta stigið skrefið út,“ segir
Karl.
Langt virðist þó í land þar til af
þessu getur orðið. Skuldir hvíla á sam-
tökunum vegna fasteignagjalda og
fasteignaláns, sem tekið var fyrir höf-
uðstöðvum félagsins við Stangarhyl.
„Við erum í samningaviðræðum við
Landsbankann og treystum á að þær
fari vel,“ segir Karl og segist vongóð-
ur um að bankinn standi við yfirlýsta
stefnu sína um samfélagslega ábyrgð.
Karl segir stóran hluta tekna Sam-
hjálpar koma frá rekstri nytjamark-
aðarins í Stangarhyl en að auki hafi
samtökin ýmislegt til sölu í fjáröflun-
arskyni, s.s. happdrættismiða,
sjúkrakassa og dagbækur. Þá eru
ótalin frjáls framlög frá velunnurum
og velgjörðarmönnum.
„Við tókum t.d. við hálfri milljón
króna frá Oddfellow-reglunni um
daginn og ríkisstjórnin sendi okkur
800 þúsund krónur í stað þess að
senda jólakort,“ segir Karl. „En síðan
kom líka til okkar kona í fyrradag
með tíu þúsund krónur og sokka og
einnig höfum við notið velvildar ým-
issa birgja og matvælaframleiðenda.“
Samhjálp verður með jólamat í
Hlaðgerðarkoti fyrir þá skjólstæð-
inga sína sem ekki eiga í önnur hús að
venda en Karl segir alkóhólismann
hafa gert marga þeirra að einstæð-
ingum. Jafnvel þegar fólk sé í bata
reynist fyrirgefningin því erfið.
Karl segir öllum gott að hafa í huga
orðin sem einkenna starf Samhjálpar:
„Allt sem þér viljið að aðrir menn
gjöri yður, það skuluð þér og þeim
gjöra.“
Það sem þér viljið
að aðrir gjöri yður
Morgunblaðið/RAX
Samhjálp Um 100 manns sækja kaffistofu Samhjálpar daglega.
Fjárhagsörðugleikar hamla ekki Samhjálp
Samhjálp á jólum
» Litlu jólatónleikarnir verða
haldnir í samkomusalnum í
Stangarhyl 3a þriðjudaginn 20.
desember kl. 20. Miðaverð
2.000 krónur, 500 fyrir börn.
» Þeir sem vilja styðja Sam-
hjálp geta lagt inn á reikning
nr. 115-26-2377, kt. 551173-
0389.
SMÁRATOGI 1
KÓPAVOGI
Partývörur
Gjafavörur
Bílavörur
Snyrtivörur
Skófatnaður
Leikföng
Heimilisvörur
Búsáhöld
Gæludýravörur
Húfur og vetlingar
Garn
Barnavörur
Nærföt
Ilmvötn
Og margt fl.
TILBOÐ TIL JÓLA
3 FYRIR 2 Á ÖLLUM VÖRUM
ÚTSALA
ÖLL LEIKFÖNG OG JÓLASKRAUT
Á 50% AFSLÆTTI
10. DES 10-20
11 DES. 12-20
12-16 DES. 11-18
17 – 22 DES 11-22
23 DES 10-23
24 LOKAÐ
OPNUNARTÍMI
WWW.DOMTI.IS
Greniskreytingarnar
vinsælu frá 690 kr
Reynt hefur verið að stilla hækkun-
um á lendingar- og farþegagjöldum
á Reykjavíkurflugvelli í hóf eins og
kostur er og að fara bil beggja. Þetta
segir Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra.
Í samgönguáætlun fyrir árin 2011-
2014 kemur fram að gjöldin verði
hækkuð til jafns við gjöld á Keflavík-
urflugvelli og það geti leitt til 250
milljóna króna árlegrar tekjuaukn-
ingar í innanlandsfluginu eftir tvö ár.
Ögmundur segir að Isavia, sem
sér um rekstur flugvallanna, segi að
þetta sé hins vegar
ekki nóg til að
byggja flugvellina
upp eða að stuðla
að lágmarksvið-
haldi. Talið sé að til
þess þurfi um einn
milljarð aukalega á
ári. Sá milljarður
sé hins vegar ekki
fyrir hendi.
„Við þurfum að horfa til þess að ef
við ætlum að ráðast í nauðsynlegt
viðhald á flugvöllunum þá er um
tvennt að ræða. Annars vegar að
hækka skatta eða við getum tekið
upp notendagjöld. Við erum að
reyna að fara bil beggja og stilla
hækkunum í hóf eins og hægt er,“
segir Ögmundur.
Það hafi ekki verið talið forsvar-
anlegt að hækka gjöldin meira þótt
þörf stæði til. Þær 250 milljónir sem
fáist með hækkun gjaldanna á
Reykjavíkurflugvelli séu sú lág-
marksupphæð sem talið hafi verið að
þyrfti til að sinna lágmarksviðhaldi
við flugvellina. kjartan@mbl.is
Ögmundur
Jónasson
Óforsvaranlegt að hækka meira