Morgunblaðið - 17.12.2011, Page 38

Morgunblaðið - 17.12.2011, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nú er það aðvísu ekkisvo að hægt sé að full- yrða með öruggri vissu að loforð sem Jóhanna Sig- urðardóttir for- sætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gáfu Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins í vikunni verði svikið. Hitt er annað mál að engum dettur í hug að taka því loforði með þeim hætti sem loforðum al- mennt er tekið, það er að segja að þeir sem það veita hafi fullan hug á að halda það. Í bréfi sem þau Jóhanna og Steingrímur sendu þessum tveimur samtökum segir að þau heiti því að taka tillit til greiðslu lífeyrissjóðanna á sérstökum vaxtaniður- greiðslum þegar ákvarðanir verði teknar um jöfnun lífeyr- isréttinda. Allt of mörg dæmi eru um svikin loforð þessarar rík- isstjórnar til að orð af þessu tagi hafi nokkra merkingu. Snemma á ferli sínum gabbaði ríkisstjórnin þessa sömu aðila til að taka þátt í stöðugleika- sáttmála, en svo fór að svik- semi ríkisstjórnarinnar við sáttmálann varð til þess að bæði ASÍ og SA neyddust til að segja sig frá honum. Ríkisstjórnin lofaði einnig að vinna að sátt í sjávarútvegi og í trausti þess að eitthvað væri að marka loforðið var unnið að sátt og út úr miklu nefnd- arstarfi kom sam- eiginlegt álit þar sem allir höfðu gert sitt ýtrasta til að sátt gæti náðst. Ríkisstjórnin gerði ekkert með þá sátt og ákvað að fara allt aðra leið og hefur allar götur síðan haldið þessum undirstöðuatvinnu- vegi í fullkominni óvissu um framtíðina. Ennfremur má nefna að Samtök atvinnulífsins og Al- þýðusamband Íslands töldu sig hafa loforð ríkisstjórn- arinnar um tiltekna hækkun bóta, en eins og nýlega hefur komið fram fór eins fyrir því loforði og mörgum öðrum. Velferðarráðherra gaf þá skýringu að menn yrðu að ganga betur frá orðalagi samninga og augljóst var að ríkisstjórnin taldi klækja- brögð í orðalagi sleppa henni frá því að standa við þetta lof- orð sitt. Bætur voru því ekki hækkaðar eins og um hafði verið samið. Og nú hafa forystumenn ríkisstjórnarinnar sem sagt eina ferðina enn gefið þessum sömu aðilum loforð. Og þetta loforð er ofan á allt annað með afar óskýru og óljósu orða- lagi. Dettur einhverjum í hug að ætlunin sé að standa við þetta loforð? Og dettur for- sætisráðherra og fjár- málaráðherra í hug að einhver telji að sú sé í raun ætlunin? Hversu oft halda ráðamenn þjóðarinnar að þeir geti gengið á bak orða sinna?} Loforð forsætisráðherra og fjármálaráðherra Allt frá því at-kvæði voru greidd um ákærur Alþingis á hendur fyrrverandi ráð- herrum hefur ver- ið augljóst að um pólitísk réttarhöld yrði að ræða. Nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar tryggðu að þetta færi ekki á milli mála þegar þeir höguðu at- kvæðum sínum þannig að ein- ungis ráðherra Sjálfstæðis- flokksins en ekki Samfylkingarinnar yrði ákærður. Fyrir þá sem voru þrátt fyrir þetta í vafa og trúðu því enn að eðlileg sjónarmið rétt- arríkisins hefðu haft eitthvað með ákæruna að gera hafa nú fengið staðfestingu á hverrar gerðar ákæran er. Þegar fram kemur einföld tillaga um að hætta mála- rekstrinum gegn fyrrverandi forsætisráðherra ætlar allt vitlaust að verða á Al- þingi. Forystu- menn ríkisstjórn- arinnar ólmast við að koma í veg fyr- ir að málið fái efnislega með- ferð og þeir ásamt áköfustu talsmönnum sínum telja að ríkisstjórnarsamstarfinu eða jafnvel flokkum þeirra kunni að stafa ógn af því ef málið fæst afgreitt. Stóryrðin eru ekki spöruð og ekki heldur rangfærsl- urnar. Forsætisráðherra heldur því fram að málið hafi verið dómtekið þegar svo er ekki og til viðbótar er þeirri fjarstæðu haldið fram að Al- þingi hafi ekki heimild til að hætta málarekstrinum. Hvaðan kemur sú heift sem fær menn til að leggja allt í sölurnar svo draga megi póli- tískan andstæðing fyrir dóm? Viðbrögð ýmissa stjórnarliða stað- festa að réttar- höldin eru pólitísk} Pólitísk réttarhöld afhjúpuð N etið er orðið stór hluti af lífi okk- ar allra og líklega stærri en mann grunar eða telur að heil- brigt sé. Nú eru rúm tíu ár liðin frá því að Napster-forritið leit dagsins ljós og gerbylti neyslu og hlutverki tónlistar í okkar samfélagi. Helstu neyt- endahópar gátu nú nálgast efnið án þess að þurfa að borga fyrir það með tilheyrandi tekju- tapi fyrir framleiðendur og útgefendur. Með bættum nettengingum og auknum hraða fylgdi framleitt kvikmynda- og sjónvarpsefni sömu leið. Reglulega hafa borist fregnir af því að tón- listariðnaðurinn hafi beðið mikinn skaða af og að tekjur tónlistarmanna berist þeim ekki. Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað með miklum harmkvælum er þó athyglisvert að hugsa til að á þessum tíu árum sem liðin eru hefur fjölbreytni í grein- inni aukist gríðarlega og erfitt væri að halda því fram að tónlistin sjálf liði fyrir þróunina. Í raun er það mín skoðun að tónlist lifi góðu lífi þótt innviðir greinarinnar hafi breyst og segja megi að búið sé að skera mikið af óþarfri og bragðvondri fitu sem fylgdi iðnaðinum. Sérstaklega er það athyglisvert að sókn íslenskra tónlistarmanna á er- lenda markaði hafi haldist í hendur við þessa þróun. Ef dreifing og miðlun tónlistar hefði haldist í heljargreipum alþjóðlegra fyrirtækjasamsteypna er ólíklegt að margir af okkar áhugaverðustu tónlistarmönnum hefðu náð eyr- um fólks fyrir utan landsteinana. Netið hefur snúið tón- listariðnaðinum á hvolf sem snýst nú um sköp- un og hugmyndavinnu í stað sambanda og einokunarstöðu. Í raun er það eina sem ég sé dapurlegt við meint hrun tónlistariðnaðarins það bragð sem iðnaðurinn hefur gripið til í við- leitni sinni til að bjarga sér frá falli, en það er að halda risavaxnar karókí-keppnir þar sem góðum lögum er ósjaldan misþyrmt þótt yf- irleitt sé engin þörf á að túlka þau upp á nýtt. Hér á landi hafa hagsmunasamtök tónlistar- manna gripið til þess ráðs að fá greitt gjald af brennanlegum geisladiskum sem hefur runnið til útvalinna tónlistarmanna til að bæta þeim tekjutapið. Þó er mér til mikils efs að þeir sem hafa tekið við þessum bótum hafi í raun orðið fyrir miklu tekjutapi, þar sem það eru jú ung- lingar sem brenna diska og ég efast um að þeir séu að brenna diska miðaldra íslenskra tónlistarmanna. Nú eru náttúrlega allir hættir að brenna diska og því er dæmið í raun úrelt en það sýnir þá hugsun sem hefur verið ríkjandi við þessi umskipti. En nú eru blikur á lofti þar sem bandarísk stórfyrirtæki nota nú arðinn af karókíinu til að reyna að koma löggjöf í gegnum þingið vestra sem á að snúa þessari þróun við. Lögunum sem heita SOPA (Stop Online Piracy Act) er ætlað að vernda hugverka- smíð og stöðva tekjutap í tónlistar- og kvikmyndaiðn- aðnum. Þó hefur verið bent á að þau muni veita stjórn- völdum og fyrirtækjum tækifæri til að ritskoða netið og séu mikil ógn við fyrirbærið eins og við þekkjum það sem er ekki lítið mál þó að lítið hafi verið um það fjallað. Hallur Már Pistill Hver græðir á að ritskoða netið? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is S ú ákvörðun þings Evr- ópusambandsins á mið- vikudag að neita að framlengja fiskveiði- samning við Marokkó vegna miðanna við hernámssvæðið Vestur-Sahara skiptir miklu máli fyrir sjávarútveg í sambandinu. Liðlega hundrað skip, með um 74% af veiðigetu sambandsins, mælt í tonnatölu, hafa veitt á umræddum miðum en nú hafa bálreiðir Mar- okkómenn vísað þeim á brott. Ljóst er að tugir togara verða í kjölfarið bundnir við bryggju á Spáni. Framkvæmdastjórn ESB vildi framlengja samning sem frá 2006 hefur gefið Marokkó sem svarar um 5,7 milljörðum króna í aðra hönd árlega. En þingið benti á traustar upplýsingar um að stunduð væri ofveiði á svæðinu, auk þess sem ekki væri sannað að tekjurnar af samningnum kæmu íbúum V- Sahara að gagni. Þeir hefðu aldrei fengið tækifæri til að leggja blessun sína yfir samninginn, ekki verið spurðir ráða. ESB-þingið vill enn fremur að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna, sem fylgjast með vopnahléi milli Mar- okkós og útlagastjórnar frelsis- samtakanna Polisario, fylgist með því hvort mannréttindi séu brotin á innfæddum íbúum. Þeir kvarta und- an því að innfluttir Marokkómenn njóti forgangs, mikil fjárfesting á svæðinu gagnist lítið innfæddum. Engin þjóð hefur formlega við- urkennt yfirráð Marokkó í V- Sahara og Sameinuðu þjóðirnar hafa yfir 100 sinnum fordæmt her- námið. Mannréttindavaktin og Am- nesty International hafa sakað her- námsstjórnina um pyntingar og önnur gróf mannréttindabrot. Sigur fyrir V-Saharamenn og frelsisbaráttu þeirra Samþykkt þingsins í Strass- borg á miðvikudag markar tímamót í frelsisbaráttu Vestur-Sahara- manna: þetta er í fyrsta sinn sem ESB lætur réttindakröfur þeirra hafa forgang á beinharða peninga- hagsmuni sambandsríkja sem hlut eiga að máli, einkum Spánar. Málið hefur lengi verið vand- ræðalegt fyrir sambandið. Makkið við Marokkó, sem selt hefur fisk- veiðiréttindi V-Saharamanna án þess að ráðgast við þá, hefur árum saman sætt harðri gagnrýni. Menn væru í reynd að samþykkja ólöglegt hernám Marokkómanna og ránið á auðlindum smáþjóðarinnar undir oki þeirra. Sem fer illa saman við hástemmd fyrirheit lýðræðisríkja um að virða mannréttindi. En hvernig hefur fram- kvæmdastjórn ESB rökstutt af- stöðu sína? Maria Damanaki, sem fer með sjávarútvegsmálin, fullyrti fyrr á árinu að samningurinn væri ekki brot á alþjóðalögum og vitnaði m.a. í álit Hans Corells, sérfræð- ings SÞ, sem samdi greinargerð ár- ið 2002. Hann hefði fullyrt að at- vinnustarfsemi framandi aðila á svæði eins og V-Sahara, undir stjórn annars ríkis, væri „í lagi nema hún hunsaði þarfir og hags- muni“ íbúanna á svæðinu. En Damanaki virðist hafa breytt ummælunum, tekið hluta úr samhengi. Niðurstaða Corrells var einfaldlega að ef íbúar V-Sahara væru andvígir nýt- ingu auðlinda á svæðinu væri hún ólögmæt. Og hann sagði sjálfur árið 2009 að umræddar veiðar ESB-ríkja, þar sem ekki væri skilið á milli fiskveiðilögsögu Marokkó og V-Sahara, væru „brot á alþjóðalögum“. Smáþjóð aftur að vinna fiskveiðistríð? Hafnarborg Frá Laayoune, helstu borginni í Vestur-Sahara. Þar er mikil fiskvinnsla og útgerð, einnig er þar lestað fosfat til útflutnings. Vestur-Sahara er geysilega auð- ugt af fosfati og líklegt að þar finnist mikið af ýmiss konar málmum, einnig eru fiskimiðin mjög göful og vísbendingar um olíu og gas á hafsbotni innan lögsögunnar. Íbúarnir eru alls um hálf milljón, þar af er helm- ingurinn í útlegð. En hundruð þúsunda innfluttra Marokkó- manna hafa sest að í landinu síðustu áratugina. Þegar Spánverjar yfirgáfu Vestur-Sahara á áttunda ára- tugnum gripu Marokkómenn tækifærið og lögðu svæð- ið undir sig, þrátt fyrir mótspyrnu landsmanna sem háðu blóðugt stríð gegn ofureflinu fram undir 1990. Hernámið er ólöglegt, Alþjóða- dómstóllinn í Haag komst að þeirri nið- urstöðu 1975. Síðasta ný- lenda Afríku HERNUMIÐ LAND FRÁ 1975 Polisario- hermaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.