Morgunblaðið - 17.12.2011, Síða 62
Eskimóar Félagarnir í tríóinu Hot Eskimos með teiknuðum hljóðfærum.
Songs from the top of the world er fyrsta plata tríósins.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hot Eskimos nefnist djasstríó, nýtt
af nálinni, skipað þeim Karli Olgeirs-
syni píanóleikara, Kristni Snæ Agn-
arssyni trommuleikara og Jóni
Rafnssyni kontrabassaleikara. Tríó-
ið sendi fyrir skömmu frá sér sína
fyrstu plötu, Songs from the top of
the world, sem hefur að geyma
djassaðar útgáfur af íslenskum lög-
um og það afar ólíkum innbyrðis. Má
þar nefna „Rúdolf“ með hljómsveit-
inni Þey, Evróvisjónlagið „Is It
True?“ sem Jóhanna Guðrún flutti,
„Army of Me“ með Björk og „Stolt
siglir fleyið mitt“ með Áhöfninni á
Halastjörnunni. „Þetta var gömul
hugmynd frá mér að taka svolítið
óvenjuleg lög og ólíkleg til djass-
flutnings,“ segir Karl um plötuna.
Tekíla, Brennivín og súraldin
– Hvaðan er nafnið komið, Hot
Eskimos?
„Það var nú þannig að kærastan
mín var árið 1998 að vinna á bar og
hana dreymdi drykk, hún vaknaði
með uppskrift í kollinum að drykk
sem var gjörsamlega viðbjóðslegur,
ég var látinn prófa hann. Í honum
var tekíla, Brennivín og lime í jöfn-
um hlutföllum og við gáfum þessum
drykk nafnið Hot Eskimo af því það
var bæði Brennivín og tekíla í hon-
um. Nafnið fannst mér skemmtilegt
þannig að ég nefndi fyrirtækið mitt
Hot Eskimo Music og núna þegar
við stofnuðum þetta tríó fannst mér
upplagt að setja þetta á hljómsveit-
ina.“
– Þið eruð ekki hræddir um að
þeir sem sækja tónleika ykkar eigi
von á kynþokkafullum eskimóum?
„Ef við náum að selja fleiri miða
út á nafnið er það bara frábært,“
svarar Karl kíminn. Þeir félagar
stefni að tónleikahaldi á næsta ári,
hér á landi sem og erlendis og muni
þá flytja lögin á plötunni auk ann-
arra.
Áhugasamir geta fylgst með Hot
Eskimos á fésbókarsíðu tríósins.
Heitir eskimóar flytja
óvenjulegar djassábreiður
Tríó sem dregur nafn sitt af viðbjóðslegum drykk
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Danslistafólkið Sissel M. Björkli og
Erlend Samnöen hafa bæði skapað
sér nafn og mikla sérstöðu í heima-
landi sínu Noregi á undanförnum
árum. Þau eru nú komin hingað til
lands og munu sýna í Norræna hús-
inu nú á sunnudaginn kl. 20.00 og
það endurgjaldslaust. Auk Björkli
og Samnöen kemur fram óp-
erusöngkonan
Jorunn Torsheim. Í sameiningu
flytur þetta fólk okkur sýninguna
Gisela and Orlando’s fantastic
account of The Beautiful Helena. Í
fréttatilkynningu frá aðstandendum
kemur eftirfarandi fram:
„Gisela og Orlando flökta á milli
þess hátíðlega, hversdagslega, fal-
lega og ljóta. Innblásin af grísku
goðsögninni um Helenu fögru,
hverfa þau í óhlutbundið landslag
þar sem þau reyna að útskýra feg-
urðina og upplifa hið fullkomna sem
ekki verður fangað. Í sýningunni
eru mörkin milli fegurðar og þess
ljóta könnuð; mörk sem flæða hvor
inn í önnur þannig að áhorfandinn á
erfitt með að aðgreina annað frá
hinu. Gisela and Orlando flytja sög-
una í hefðbundnum dansstíl sem er
byggður á frönsku barokkleikhúsi
og hirðdansi.“
Sissel M. Björkli er Íslendingum
ekki ókunn þar sem hún starfar
með Ernu Ómarsdóttur í dansverk-
inu
Teach Us To Outgrow Our Mad-
ness sem m.a. var sýnt í Þjóðleik-
húsinu á síðasta ári og hefur verið
sýnt víða um Evrópu á undan-
förnum tveimur árum.
Jákvæð ögrun
Tinna Grétarsdóttir, dansari, er
hérlendur talsmaður parsins.
„Það er mikill húmor í þessu hjá
þeim,“ segir hún. „Þau sækja m.a.
innblástur í barokkdansa og flétta
þeim saman við nútímadans sem
þykir mjög óvenjulegt.“
Tinna segir að Sissel og Erlend
séu dansarar sem vinni með leik-
hús, þetta sé í raun réttu það sem
kallað er dansleikhús.
„Það er oft mikill texti í gangi t.d.
Ferill þeirra beggja hefur verið á
hraðri uppleið að undanförnu, þau
eru orðin mjög þekkt í Noregi en
hafa og ferðast nokkuð um Evrópu.
Þau starfa þó ekki saman alla jafna,
eru með eigin feril. Erlend er t.d.
mjög virkur í heimalandi sínu, sem-
ur mikið og vinnur náið með hinum
og þessum leikhúsum.“
Aðspurð hvort nálgun þeirra við
nútímadansformið hafi vakið ein-
hverja úlfúð í dansheiminum segir
hún svo ekki vera.
„Þau eru ekki í því að ganga fram
af fólki með því að sjokkera eða
eitthvað slíkt. En þau leika sér mik-
ið með stílinn og eru óhrædd við til-
raunastarfsemi. En þau eru alls
ekki að ögra á neikvæðan hátt, get-
um við sagt.“
Tinna segir að ástæða þess að
þau séu komin til Íslands með þetta
stykki séu vinatengsl. Hún starfaði
sjálf um nokkurra ára skeið í Nor-
egi og hún og Valgerður Rúnars-
dóttir dansari séu að sjá um þennan
innflutning ef svo má kalla.
„Sissel er orðin mikill Íslands-
vinur og hún ætlar að dvelja hérna
um jólin. Þá kom þessi hugmynd
upp, að nýta tækifærið og setja upp
eina jólasýningu. Við bárum hug-
myndina undir Norræna húsið og
fólk þar á bæ tók afskaplega vel í
þetta.“
Að hrista hressilega
upp í forminu
Einstakt dansleikhús í Norræna húsinu á sunnudaginn
Samhræringur Sissel M. Björkli og Erlend Samnöen skeyta óhikað saman barrokkdansi og nútímadansi.
kerskni. Djúpur
bassahljómurinn
fól í sér bæði helgi
og þægilega höfgi
og maður datt í
dágóða – og
einkar ljúfa –
jólastemningu. Tónlistin, eðlis síns
vegna, var hreinlega afstressandi,
um það sáu mjúkar, feitar og þægi-
legar línur hins geðþekka bassa-
skálds.
Hugmyndinni er fram haldið hér
og er árangurinn sá sami. Betri ef
eitthvað er. Fyrir það fyrsta er
hljómur til muna betri, bassinn er
ríkur og hljómmikill og það var stór-
kostlegt að keyra um í gærkvöldi í
bíl sem nötraði af ágengum en um-
faðmandi jólabassahljómi! Jakob
beitir þá oft sniðugum lausnum ef ég
má kalla það svo, bandalausi bassinn
setur t.d. ákveðna áferð á lögin,
sumum lögum er lyft með áslætti og
Jakobi er lagið að beita smekklegum
og oft á tíðum óvæntum brögðum í
þessu verkefni sínu. Hvað get ég
annað sagt en: Hafið það nú djúpt
um jólin!
Jakob Smári Magnússon,bassaskáldið eina og sanna(líkt og hann titlar sig ísímaskránni), fylgir hér eftir
plötu sinni frá 2003, Bassajól. Á
henni var að finna hin og þessi jóla-
lög, eingöngu leikin á ýmsa bassa.
Það sem leit hálffáránlega út á papp-
írunum reyndist svo vera hið merki-
legasta verk. Að klæða lögin í þenn-
an búning fól í sér eitthvað meira en
nett flipp eða athyglisverða tilraun.
Hátíðleg lög eins og „Heims um
ból“, „Guðs kristni í heimi“ („O
Come All Ye Faithfull“), „Hvít jól“
(„White Christmas“) og „Bjart er yf-
ir Betlehem“ öðluðust nýtt og ann-
ars konar líf, svo sannarlega „dýpra“
líf svo ég leyfi mér smávegis
Allt í botni um jólin
Jakob Smári Magnússon – Annar í
bassajólum
bbbbn
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
stund með völd-
um hópi
áhorfenda í Stúd-
íó Sýrlandi/
Benzín og hljóð-
færi fá, þ.e. hrista,
gítar, ukulele, orgel og munnharpa.
Kristjana hefur spreytt sig á
margs konar söng, þekkt af fanta-
góðum djasssöng og hún er einnig
prýðileg í blúsnum, eins og hún sýnir
í lagi eftir sjálfa sig á plötunni, „You
left me crying“. Lagavalið á plötunni
er fjölbreytt og virkar dálítið und-
arlegt við fyrstu hlustun, t.d. rólega-
heitaútgáfa af „Vorkvöldi í Reykja-
vík“ á eftir „Sin City“, kántrílagi
Flying Burrito Brothers (!) en venst
þó furðufljótt. „Boat on the river“ og
„One of Us“ eru svo algjört eyrna-
konfekt, svo einstök ágætislög séu
nefnd.
Kristjana Stefánsdóttir ogSvavar Knútur eru prýði-legt söngtvíeyki. Á plöt-unni Glæður flytja þau 14
lög, íslensk (þar af þrjú frumsamin)
og erlend í bland. Kennir þar ýmissa
grasa, „Við gengum tvö“ og ABBA-
slagarinn „One of us“ á sama diski,
svo dæmi sé tekið. Útsetningar eru
einfaldar enda platan tónleika-
upptaka, hljóðrituð á einni kvöld-
Dúó Kristjana Stefáns og Svavar Knútur blása í glæðurnar.
Músíkalskt par
Geisladiskur
Kristjana Stefáns og Svavar Knútur –
Glæður bbbbn
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST