Morgunblaðið - 31.12.2011, Page 2
INNLENT
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Því miður eru allar línur enn uppteknar.Símtölum verður svarað í réttri röð.“Þannighljóðar vinaleg kvenmannsröddá símsvara Vinnumálastofnunar í árs-
lok. Síðan tekur við lö-öng bið.
Atvinnuleysi hér á landi náði nýjum hæðum
eftir bankahrunið í október 2008 og hefur farið
hækkandi síðan. Á þriðja ársfjórðungi 2011 var
atvinnuleysi 5,9% og voru 10.700 án vinnu og í at-
vinnuleit, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.
Segja má að tölur um atvinnuleysi hér á landi
hafi nálgast það sem gengur og gerist í Evrópu
og vekur það ótta hjá sumum um að atvinnuleysið
verði viðvarandi. Á evrusvæðinu var atvinnuleysi
10,3% í október og vekur athygli að það var
hærra en innan Evrópusambandsins, en þar var
það 9,7%.
Þá er það litið alvarlegum augum að langtíma-
atvinnuleysi hefur aldrei verið meira hér á landi,
nokkuð sem löngum var óþekkt fyrirbæri hér á
landi. Enda hefur verið lögð áhersla á það af
stjórnvöldum í gegnum tíðina að halda háu at-
vinnustigi, jafnvel þó að það kosti verðbólguskot.
Það segir sína sögu að þeir sem glíma við lang-
tímaatvinnuleysi og hafa verið frá störfum í tólf
mánuði eða lengur voru framan af þessum áratug
Atvinnuleysi eftir aldri og ársfjórðungi
2007-2011
Atvinnuleysi á Íslandi
10%
9%
8%
7%
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
A N A N A N A N A N A N A N A N A N A N A N A N
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002
1 2 3 4
2003
1 2 3 4
2004
1 2 3 4
2005
1 2 3 4
2006
1 2 3 4
2007
1 2 3 4
2008
1 2 3 4
2009
1 2 3 4
2010
1 2 3
2011
M.v. apríl og nóvember frá 1991 til 2002
M.v. hvern ársfjórðung 2003 til 2011
1,9%
5,9%
9,1%
1,8%
4,1%
5,8%
Hlutfall
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
1 2 3 4
2007
1 2 3 4
2008
1 2 3 4
2009
1 2 3 4
2010
1 2 3
2011
16-24 ára 25-54 ára 55-74 ára
Atvinnulausir eftir lengd atvinnuleitar
2007-2011
Fjöldi (þús.)
14
12
10
8
6
4
2
0
1 2 3 4
2007
1 2 3 4
2008
1 2 3 4
2009
1 2 3 4
2010
1 2 3
2011
Ár eða lengur 6-11 mán. 3-5 mán. 1-2 mán.
um 200 manns ár frá ári, en sú tala var komin í
3.100 eða 29,1% atvinnulausra á þriðja ársfjórð-
ungi 2011. Lengi vel var mælikvarðinn á lang-
tímaatvinnuleysi hér á landi að vera án vinnu í
sex mánuði, þar sem þeim var ekki til að dreifa
sem höfðu verið lengur án vinnu. Ef það fólk er
talið með, þá hækkar talan í 42,5% eða 4.500
manns.
Fólksflótti og fleiri í hlutastörfum
Ef rýnt er í tölur frá Hagstofunni er greinilegt
að atvinnuleysið er að nokkru leyti falið. Það spil-
ar til að mynda inn í að fleiri hafa flust af landi
brott en til landsins undanfarin ár. Árið 2009
fluttust 4.835 fleiri til útlanda, í fyrra munaði
2.134 og þegar á þriðja ársfjórðungi þessa árs
höfðu 2.210 umfram aðflutta horfið frá Íslandi.
Ekki er óvarlegt að álykta að fólksflóttinn sé að
miklu leyti sprottinn af þrengingum á íslenskum
vinnumarkaði. Á móti kemur að það er einn kost-
urinn við frjálst flæði vinnuafls að það leitar
þangað sem verkefnin eru, en auðvitað er það
óæskileg þróun að geta ekki haldið fólki sem er
eftirsótt utan landsteinanna.
Atvinnuþátttaka á Íslandi hefur sögulega alltaf
verið í kringum 80% og þrátt fyrir að hún hafi
dregist saman, þá er hún enn mun meiri en al-
mennt í Evrópu. Fyrirtæki hafa hinsvegar brugð-
ist við samdrætti með því að draga úr yfirvinnu
eða fella hana alveg niður og minnka við fólk
vinnu og komast þannig hjá uppsögnum. Einn
mælikvarðinn á atvinnuleysi, sem æ meira er
horft til í vinnumarkaðskönnunum, er fólk sem er
þvingað til að vera í hlutastarfi, þrátt fyrir að það
vilji vinna meira.
Skýr vísbending um þessa þróun hér á landi er
að hlutfall starfsmanna í fullu starfi hefur lækkað
verulega og hlutastörfum fjölgað á móti. Þá hefur
vinnustundum í hverri viku fækkað að meðaltali
um þrjár á hvern starfsmann frá því sem áður
tíðkaðist og haldist þannig árin 2009 til 2011.
4.100 til viðbótar atvinnulaus
Síðasta ársfjórðung fyrir hrun árið 2008 voru
183.800 starfandi á vinnumarkaði en sá fjöldi hef-
ur farið niður í 171.800 á sama fjórðungi þessa
árs. Þegar rýnt er í tölur um atvinnuþátttöku má
ekki gleyma því að fólki fjölgar í landinu, þó að
flutningsjöfnuðurinn sé óhagstæður.
Af fólki sem er utan vinnumarkaðar hér á landi
og fellur ekki undir skilgreiningu Hagstofunnar á
atvinnuleysi er athyglisvert að á fjórða fjórðungi
þessa árs skilgreindu um 9,6% eða 4.100 manns
sjálf sig sem atvinnulaus. Ástæðurnar geta verið
margþættar, ef til vill geta þau ekki hafið störf
innan tveggja vikna eða eru ekki í virkri leit að at-
vinnu. Fjölgað hefur verulega í þessum hópi á
undanförnum árum, árið 2008 voru það 1.100, árið
2009 hafði fjöldinn tvöfaldast í 2.300 og árið 2010
fór hann aftur nálægt því eða í 3.900.
Skýtur atvinnuleysið rótum?
10.700 án atvinnu 3.100 til langs tíma 4.100 í viðbót segjast atvinnulaus
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Vinsælt á Sigurjón Brink
bráðkvaddur
Týnd stúlka
finnst eftir 25 ár
Brjóstin héldust
varla í kjólnum 29 ára afi
Lést eftir
fyrsta kossinn
17 ára en klædd
eins og fatafella
Janúar
3. Færa verksmiðju í heilu lagi
Stefnt er að því að ljúka fjármögnun
innan þriggja mánaða á kaplaverk-
smiðju, sem flytja á frá Noregi og
reisa á Seyðisfirði.
6. Mesta viðurkenningin
Alexander Petersson, landsliðs-
maður í handknattleik, var kjörinn
íþróttamaður ársins með 307 stig af
420 mögulegum.
Helstu fréttir ársins 2011
Hildur og Linda umVIP-
partíið - Lilja bakkar út
11. Enn tekist á hjá VG
Engin niðurstaða um helstu
ágreiningsmál Vinstri grænna varð á
sjö og hálfrar klukkustundar löngum
fundi þingflokks VG.
12. Óttast ekki að allt verði í rusli
Breytingar á sorphirðu í Reykjavík
eiga að skila 115 til 116 milljónum
króna á ári. Eftir 1. apríl verða
tunnur aðeins sóttar 15 metra frá
sorpbíl gegn árlegri greiðslu.
14. Sigurjón handtekinn
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans,
var yfirheyrður ásamt fjórum
öðrum.Var jafnframt farið fram á
gæsluvarðhald yfir Sigurjóni og Ívari
Guðjónssyni, fyrrverandi yfirmanni
í bankanum.
15. Upplausn í Túnisborg
Forseti Túnis hrökklaðist frá völdum
eftir götumótmæli, sem hafa kostað
tugi manna lífið.
18. „Þetta er mikið reiðarslag“
Fiskvinnslufyrirtækið Eyraroddi
á Flateyri var lýst gjaldþrota.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar kvaðst
vonast til að fiskvinnsla hæfist á
Flateyri að nýju.
19. Biðin lengist á BUGL
Bráðamálum fjölgar og biðlistar
lengjast á göngudeild barna- og
unglingageðdeildar Landspítalans.
20. Grunsemdir um njósnir
Fartölvu var komið fyrir í auðu
herbergi í húsnæði á vegum
Alþingis í Austurstræti. Tölvan var
útbúin til að geta brotist inn í tölvur
þingmanna og tölvukerfi Alþingis.
26.Ógild kosning
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að kosning til stjórnlagaþings
væri ógild vegna annmarka á
framkvæmd.
28.Unga fólkið rís upp
Tugir þúsunda Egypta nota sér sam-
skiptavefi á netinu til að skipuleggja
mestu götumómtæli í landinu frá
„brauðóeirðunum“ árið 1977.
Febrúar
3. Telja samninga til góðs
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í
fjárlaganefnd styðja fyrirliggjandi
samninga í Icesave-deilunni.
4. Ólga vegna Icesave
Óánægja er innan Sjálfstæðis-
flokksins með afstöðu þingmanna
flokksins sem styðja Icesave-
frumvarpið.
7. 67milljarðar króna fyrir jólin
Samkvæmt opinberum tölum
Seðlabankans, var heildarkorta-
veltan nærri 67 milljarðar króna í
desember.
8. Skipulögð þjófagengi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sér nú fleiri dæmi en áður um
skipulagða þjófaflokka sem vinna
saman að innbrotum.
10. Flytja til útlanda
Skattahækkanir og skattalaga-
breytingar hafa áhrif á hegðun
fólks og eru dæmi um að fólk og
fyrirtæki flytji úr landi til að minnka
skattbyrðina.
11. Elsti umsækjandinn 95 ára
1. febrúar höfðu borist alls 1.986
umsóknir til umboðsmanns
skuldara. Flestir eru á miðjum aldri,
en 95 reyndust 65 ára eða eldri og
sá elsti 95 ára gamall.
12. Fólkið fagnaði
Egypski þjóðfáninn var áberandi í
mannfjöldanum sem fagnaði afsögn
Hosni Mubaraks sem sagði af sér
sem forseti Egyptalands eftir 30
ára valdatíð. Mótmælendur höfðu
krafist afsagnar hans í 18 daga.
Ekki er hægt að alhæfa um áhrif
langtímaatvinnuleysis á fólk sem í
því lendir, að sögn Hrafnhildar
Tómasdóttur,
sviðsstjóra yfir
ráðgjafar- og
vinnumiðl-
unarsviði Vinnu-
málastofnunar.
„Auðvitað er
það einstakl-
ingsbundið og
fer eftir því
hvað fólk gerir á
þessum tíma,“
segir hún. „Maður skyldi því var-
ast að draga of sterkar ályktanir.“
En Hrafnhildur segir þó fulla
ástæðu til að bregðast við þeim
aðstæðum sem upp eru komnar,
þar sem Íslendingar horfast í
fyrsta skipti í augu við langtíma-
atvinnuleysi, þ.e. að hópur fólks
hafi verið án vinnu í 12 mánuði
eða lengur.
Mýtan að allir fái vinnu
„Það er þekkt að algjört að-
gerða- eða sinnuleysi, sem leiðir
oft af langtímaatvinnuleysi, getur
haft í för með sér alvarlegar af-
leiðingar, bæði andlega og lík-
amlega. Þess vegna hefur áhersla
verið lögð á virkniúrræði. Það er
grundvallaratriði að fólk nýti tím-
ann á uppbyggilegan hátt, hafi
verkefnum að sinna.“
Hrafnhildur segir að það mögu-
lega hjálpa fólki að atvinnuleysið
sé aðstæðubundið, það sé ekki
bundið við það sjálft eða atgervi
þess, heldur hafi hrunið hafi haft
þessar afleiðingar í för með sér.
Sú mýta að allir getir fengið
vinnu sem vilja sem hefur lifað
ótrúlega lengi með okkur Íslend-
ingum og gert þeim erfitt fyrir
sem leita að vinnu er nú að
hverfa. Sá fjöldi einstaklinga sem
misst hefur vinnu í skemmri og
lengri tíma er slíkur að það er
farið að snerta ótrúlegar margar
fjölskyldur.“
Týnda kynslóðin
Rannsóknir sýna að langtíma-
atvinnuleysi er einkum varasamt
fyrir ungt fólk, sem byrjar starfs-
ferilinn ef svo má segja atvinnu-
laust, en þá eru meiri líkur á að
sá hópur verði aftur atvinnulaus
einhvern tíma síðar á lífsleiðinni.
„Reynsla Finna var einnig sú að
ákveðinn hópur skilaði sér aldrei
út á vinnumarkaðinn,“ segir hún
og vísar til „týndu kynslóð-
arinnar“.
„Ef þú hefur enga reynslu af
öðru, þá getur aðlögunarhæfni
unga fólksins stuðlað að því að
það að vera á bótum getur orðið
lærð hegðun.“ Það sem einkennir
þennan hóp ungs fólks oft er að
það hefur ekki lokið formlegri
menntun eftir grunnskóla. Hér á
landi á það við um 75% af því
unga fólki sem verið hefur lengst
án atvinnu. „Mikilvægt er að það
fari í nám, byggi sig upp og
standi sterkara eftir,“ segir hún.
„Við höfum lagt áherslu á að veita
þessu fólki nýtt tækifæri til
náms.“
Nýtt tækifæri til
náms mikilvægt
Hrafnhildur
Tómasdóttir