Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
EFNAHAGSLÍF
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Íupphafi ársins sem nú er að líða, birtist fréttí Morgunblaðinu af fundi ríkisstjórnarinnarmeð forystumönnum atvinnulífsins, semvoru að hefja undirbúning að gerð kjara-
samninga. „Númer eitt, tvö og þrjú er að koma
fjárfestingum aftur af stað,“ sögðu þeir að loknum
fundi og bættu við að brýnt væri að ná sátt um
stjórn fiskveiða. Ekki þarf djúpa spákunnáttu til að
sjá fyrir sér að þessi ársgamla frétt gangi í end-
urnýjun lífdaganna eftir áramótin.
Innan þriggja vikna ræðst hvort kjarasamn-
ingar, sem náðust við nær allt launafólk landsins á
árinu, halda eða falla. Þeir hvíla á yfirlýsingu
stjórnvalda, sem gaf stór fyrirheit um að örva fjár-
festingar, sem nái 350 milljörðum í lok samnings-
tímans. Ekki bólar enn á stóru fjárfestingarverk-
efnunum. Enn liggur engin sátt fyrir í
sjávarútvegsmálinu.
Flestum ber saman um að stærsta viðfangsefnið
í efnahagslífinu er að liðka fyrir svo fjárfestingar
atvinnuveganna fari í gang af alvöru. Undir lok
ársins mælist atvinnuleysi yfir 7% og langtíma-
atvinnuleysi virðist hafa fest sig í sessi. Útlit er fyr-
ir að árið sem er að líða hafi verið næstmesta brott-
flutningsár Íslendinga í sögunni.
Doði og vantraust er ekki björguleg blanda í
samfélagi, sem reynir að rétta úr kútnum eftir áföll
kreppunnar. Svartsýni er enn áberandi við upphaf
fjórða almanaksársins frá bankahruninu. Könnun
sem gerð var í lok október og byrjun nóvember
sýndi að aðeins tæpur fjórðungur stjórnenda fyr-
irtækja gerði ráð fyrir því að fjárfestingar yrðu
meiri í ár en í fyrra.
Mörgum hnykkti við þegar lífskjararannsókn
Hagstofunnar leiddi í ljós á árinu að 52% heimila
sögðust eiga erfitt með að ná endum saman og
hafði þeim þá fjölgað frá árinu á undan.
Þó vísbendingar hafi komið fram um viðsnúning
til hins betra á sumum sviðum, t.a.m. hafi erlend-
um ferðamönnum fjölgað um 20% á þessu ári og af-
koma sjávarútvegsfyrirtækja sé almennt góð,
glíma fyrirtæki og heimili enn við alvarlegustu
vandamálin; ofurþungar skuldabyrðar og hindr-
anir, sem standa í vegi fyrir því að stórtækar fjár-
festingar fari í gang, svo skapa megi ný störf.
Ekki bætir úr skák að stjórnvöld og forsvars-
menn í atvinnulífinu eru á öndverðum meiði um
lykiltölur hagkerfisins, s.s. um hvort hér hafi átt
sér stað fjölgun starfa. Ráðherrar halda því fram
að til hafi orðið fimm þúsund ný störf frá því að at-
vinnuleysið náði hámarki sínu í fyrra. En Samtök
atvinnulífsins vísa á Vinnumarkaðsrannsókn Hag-
stofunnar, sem sýnir svart á hvítu að störfum fjölg-
aði aðeins um 167 á fyrstu níu mánuðum ársins
miðað við sama tímabil í fyrra. Öllu jákvæðara er
þó að þeim sem eru í fullu starfi fjölgaði um 1.400
og fækkun varð í hópi fólks í hlutastarfi.
Samkeppniseftirlitið kynnti sér málin hjá 120
stórum fyrirtækjum á árinu og komst að raun um,
að sá vandi sem blasti við atvinnulífinu væri kerf-
islægur og djúpstæðari en svo að skemmri tíma
hagtölur næðu að endurspegla hann. Í ljós kom að
fjárhagsstaða tæplega helmings stærri fyrirtækja
var mjög slæm.
Nú undir lok ársins standa samanlagðar skuldir
heimila og fyrirtækja í 314% af landsframleiðslu.
Þær hafa vissulega lækkað en atvinnulífið er enn í
viðjum hafta. Fyrstu varfærnu skrefin voru stigin í
átt að losun gjaldeyrishafta á árinu og samstarfinu
lauk við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Stjórnvöld boða
að nú hilli undir efnahagsbata. Spáð er að þegar
upp er staðið hafi orðið 2,6% hagvöxtur á árinu.
Þetta er þó allt of lítill vöxtur til að standa undir
nauðsynlegri fjölgun starfa. Þegar málin eru skoð-
uð betur kemur á daginn að einkaneysla er helsti
drifkraftur hagvaxtarins. Það er áhyggjuefni ef á
bak við aukin útgjöld er ekki varanleg kaupmátt-
araukning heldur neyslubóla. Fólk hefur meira fé
milli handanna eftir útgreiðslur séreignarsparn-
aðar, sem náðu hámarki á árinu og nálgast 67 millj-
arða frá mars 2009, vaxtaniðurgreiðslur, ein-
greiðslur og kauphækkanir, sem samið var um á
vinnumarkaði.
Fjárlög næsta árs voru afgreidd með liðlega 20
milljarða halla en markmiðið er dýrkeypt og því
aðeins náð með sársaukafullum niðurskurði og fyr-
irferðarmikilli skattheimtu. Á seinustu fjórum ár-
um voru gerðar vel á annað hundrað breytingar á
sköttum atvinnulífs og heimila skv. samantekt Við-
skiptaráðs.
Sjávarútvegurinn er sem fyrr þýðingarmesta
bjargræði þjóðarinnar. Aflaverðmæti jókst um ell-
efu milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins en fyr-
irtækin í sjávarútvegi lifa í óvissu um framtíð fisk-
veiðistjórnunar og treysta sér ekki í fjárfestingar
við svo búið.
Beðið eftir innspýtingu en
einkaneysla dregur vagninn
Árið leið án þess að ráðist yrði í stærsta verkefnið – að örva fjárfestingar og skapa störf
Morgunblaðið/Ómar
Óvissa Kjarasamningar náðust fyrir allan vinnu-
markaðinn en óvissa er þó um framtíð þeirra.
Á ís Langtímaatvinnuleysi
virðist hafa fest sig í sessi.
Enn bólar ekki á stóru fjár-
festingarverkefnunum.
Morgunblaðið/Golli
Vinsælt á AmyWine-
house er látin
Féll úr rússí-
bana og lést
Glæsihýsi Lilju Pálma-
dóttur í NYTimes
Sífellt fleiri risakettir
finnast á Íslandi
Hvítabjörn skotinn í
sumarhúsabyggð
Mikil umræða um
orð Páls Óskars
6. Mikill halli
Tekjujöfnuður ríkissjóðs var
neikvæður um 27 milljarða króna á
fyrstu fimmmánuðum ársins.
11. Vanda verður til verka
Brúnni yfir Múlakvísl var sópað
í burtu í öflugu hlaupi og segir
vegamálastjóri það taka 2-3 vikur að
reisa bráðabirgðabrú.
Helstu fréttir ársins 2011
Kynlíf á skrif-
stofu OECD
13. Litlu mátti muna í Múlakvísl
Nítján manns voru hætt komnir
þegar sérútbúin rúta sem notuð var
til að ferja fólk yfir Múlakvísl festist
í ánni.
13. Magnið var yfirþyrmandi
Betur fór en á horfðist þegar
gríðarlegur dekkjabruni kom upp
í athafnasvæði Hringrásar við
Klettagarða.
16. Heilsugæsla nálgast hrun
Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
hefur áhyggjur af stöðu mála. Heil
kynslóð lækna kann að tapast.
16. Þungt haldinn
Karlmaður á fimmtugsaldri liggur
þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi eftir
hnífstungu.
18. Risaköttum fjölgar
Sífellt fleiri Íslendingar velja sér ketti
af tegundinni Maine coon en þeir
verða allt að 10 til 12 kíló að þyngd.
20. Verslunareigendur ósáttir
Skiptar skoðanir eru meðal verslun-
areigenda í miðbænum þegar kemur
að framkvæmd Reykjavíkurborgar á
lokun hluta Laugavegar.
23. Martröð í Noregi
Þjóðarsorg er nú í Noregi eftir
aðminnst sautján féllu í tveimur
árásum síðdegis í gær. Ódæðismað-
urinn hefur verið nafngreindur sem
Anders Behring Breivik.
23. Eldurinn öskraði á fólkið
Gífurlegt eignartjón varð þegar
Eden brann nánast til kaldra kola en
engin slys urðu á fólki.
25. Margra enn saknað
Í gær, tveimur dögum eftir að
Anders Behring Breivik skaut að
minnsta kosti 86 til bana á eyjunni
Útey í Noregi, er margra enn saknað.
Þegar Breivík hóf skothríð á sumar-
búðir ungmennahreyfingar norska
Verkamannaflokksins reyndu mörg
ungmennanna að synda frá eyjunni
og er óttast að mörg þeirra hafi ekki
náð í land. Þá féllu að minnsta kosti
sjö í sprengingunni í Ósló.
26. Sameinast í sorginni
Um tvö hundruð þúsundÓslóarbúar
mættu í göngu ímiðborginni til að
minnast fórnarlamba Breiviks.Tala
hinna föllnu lækkaði eftir að lögreglan
tilkynnti að búið væri að staðfesta 68
dauðsföll í og við Útey og í heildina er
búið að staðfesta 76 dauðsföll. Enn er
fjölmargra þó saknað.
26. Innbúið í Eden ótryggt
Innbúið í Eden var ótryggt og
rekstrarfyrirtækið hafði ekki
rekstrarstöðvunartryggingu.
Talsmaður þess telur tjónið hlaupa á
tugummilljóna króna.
26.Listaverki stolið
Listaverki eftir Steinunni
Þórarinsdóttur var stolið í
hafnarborginni Hull í Bretlandi.
Verkið nefnist För og er tveggja
metra há bronsstytta sem vegur
yfir 300 kíló.
29.Lést eftir hnífstungu
Karlmaður á fimmtugsaldri, sem
hlaut lífshættulega áverka þegar
hann var stunginn í hálsinn, lést af
sárum sínum.
Ágúst
1. Ég gæti ekki verið ánægðari
Annie Mist Þórisdóttir, 21 árs,
vann heimsbikarmótið í crossfit í
kvennaflokki, sem haldið var í Los
Angeles.
2. Gæslan til bjargar
ÁhöfnÆgis, varðskips Landhelgis-
gæslunnar, bjargaði 58 flóttamönn-
um sem skildir höfðu verið eftir á
Radopos-skaga á Krít.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir að fjárfest-
ingar hafi í
heild verið 155
milljarðar króna
á fyrstu níu
mánuðum þessa
árs. Atvinnu-
vegafjárfest-
ingar námu 103
milljörðum
króna, skv. töl-
um Hagstof-
unnar.
„Fjárfestingar
í heild jukust vissulega frá sama
tíma í fyrra, einkum fjárfestingar
atvinnuveganna. Þær jukust um
15 milljarða í krónum talið eða
um 13%. En þær voru samt helm-
ingi minni að raungildi en árið
2008,“ segir Hannes.
Hlutfall fjárfestinga í heild af
landsframleiðslu var 12,7% á
fyrstu níu mánuðum þessa árs,
sem er sama hlutfall og fyrstu
níu mánuðina 2010. Hlutfallið er
því enn í því sögulega lágmarki
sem það náði í fyrra, samkvæmt
þessum tölum, og svo lágt hlutfall
fjárfestinga sést vart meðal
þeirra þjóða sem við berum okk-
ur saman við,“ segir hann og
minnir á að í viðræðum aðila
vinnumarkaðarins og stjórnvalda
sl. vor voru menn almennt sam-
mála um að fjárfestingar þyrftu
að aukast verulega.
Fjárfestingar eru í
sögulegu lágmarki
Hannes G.
Sigurðsson
„Auknar fjárfestingar eru lykillinn
að bættum lífskjörum,“ segir Ólaf-
ur Darri Andrason, hagfræðingur
ASÍ.
„Til skamms
tíma skapa þær
aukna atvinnu
við fjárfesting-
arnar sjálfar og
til framtíðar
leggja þær
grunninn að hag-
vexti. Það er því
mikið áhyggju-
efni að fjárfest-
ingar eru í sögulegu lágmarki. Í
fyrra námu fjárfestingar aðeins um
13% af landsframleiðslunni og hef-
ur þetta hlutfall ekki verið lægra
frá lokum seinni heimstyrjaldar.
Frá hruni hafa nýjar fjárfestingar
ekki náð að halda í við afskriftir,“
segir hann.
„Samkvæmt tölum Hagstofunnar
hafa fjárfestingar aukist nokkuð
það sem af er árinu og er það fagn-
aðarefni. Hér verður þó að hafa í
huga að um bráðabirgðatölur er að
ræða sem gætu breyst og einnig að
fjárfestingarnar eru í dag rétt um
helmingur af því sem þær voru fyr-
ir hrun og í því samhengi er magn-
aukningin ekki mikil. Fjárfestingar
munu ráða því hversu hratt okkur
tekst að vinna okkur út úr efna-
hagsvandanum. Það er því for-
gangsmál að stuðla að auknum fjár-
festingum.“
Hafa ekki náð að
halda í við afskriftir
Ólafur Darri
Andrason