Morgunblaðið - 31.12.2011, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Árið er liðið og allt það og gott að líta aðeinsyfir síðustu tólf mánuði og sjá hvort ein-hverju markverðu hafi nú ekki skolað tilokkar tónlistarunnendanna.
Árið markaðist af nokkrum stórsigrum ef svo
mætti segja. Tveir af okkar fremstu dægurtónlist-
armönnum fóru í nýjar hæðir með list sína á meðan
sá þriðji tók heila þjóð inn á gafl til sín og tókst að
bræða steinrunnustu hjörtu – eins og ekkert væri.
Ung og efnileg hljómsveit gerði þá samning við er-
lendan útgáfurisa og verður gríðarlega spennandi
að fylgjast með því hvernig henni reiðir af á því ári
sem nú gengur í garð.
Í febrúar gerðust þau tíðindi að Jónsi okkar,
söngvari og gítarleikari Sigur Rósar, varð fyrstur
manna til að vinna til Norrænu tónlistarverðlauna-
nnna eða Nordic Music Prize. Það var plata hans,
Go, sem var þar til grundvallar. Um ný verðlaun er
að ræða sem sækja fyrirmynd í bresku Merc-
uryverðlaunin og voru þau afhent í Osló með pomp
og prakt. Jónsi lagði ellefu aðra norræna tónlist-
armenn og hljómsveitir með sigrinum, m.a. Ólöfu
okkar Arnalds sem var einnig tilnefnd fyrir plötu
sína Innundir skinni. Síðar á þessu ári kom svo út
plata með tónlist Jónsa við nýjustu mynd stórleik-
stjórans Camerons Crowes, We bought a Zoo. Að
leiksjóri af þessari stærðargráðu falist eftir kröft-
um Jónsa (og láti leikarana hlusta á tónlist Sigur
Rósar til að koma sér í gírinn á milli taka) segir ým-
islegt um hversu mikla virðingu Jónsi og sveit hans
hafa áunnið sér á mögnuðum ferli.
Tvær merkar plötur komu svo út um vorið,
Arabian Horse með GusGus og Summer Echoes
með Sin Fang. Þeim síðarnefnda tókst að gera enn
betur en hann gerði á hinni ótrúlegu Clangour frá
2008 og Arabian Horse er líkast til það besta sem
GusGus hefur gert á gervöllum ferlinum. Að þessu
sögðu var plötuárið í ár einstaklega gott, það besta
sem ég hef upplifað í mörg ár. Skoðum þetta bara
aðeins. Sólstafir gáfu út bestu plötu sína til þessa,
Svarta sanda, og eru að gera strandhögg mikil á er-
lendum öfgarokksströndum. Fyrsta plata Sóleyjar,
We Sink, sannaði þá að hin stórgóða stuttskífa
hennar frá 2010, Theater Island, var engin hunda-
heppni. Megas gaf út frábæra plötu með end-
urreistum Senuþjófum, (Hugboð um) Vandræði,
Mugison gaf út Haglél, sem er eins og í tilfelli Gus-
Gus líklega það besta sem hann hefur gert, hin óg-
urlega Ham gaf út enn ógurlegri rokkplötu eftir 22
ára bið og svo má lengi telja. Einar Scheving var
líka einn þeirra sem bættu um betur með annarri
sólóplötu sinni, hinni kynngimögnuðu Land míns
föður, og var fyrri plata hans, Cycles, þó ekkert
slor. Það kom óvenjulega mikið út af framúrskar-
andi plötum í ár og er þetta eigi skrifað í einhverri
hysteríu, ég er með listann yfir fyrri ár hérna beint
fyrir framan mig.
Fleiri afrek voru unnin. Hljómsveitin Of Monst-
ers and Men landaði t.d. samningi við Universal
Music Group í október, hin goðumlíka Quarashi
kom aftur saman í sumar og var tekið opnum örm-
um af aðdáendum, gömlum sem nýjum, og vík-
ingarokkararnir í Skálmöld skálmuðu um Evrópu í
haust á vegum farandhátíðarinnar Heidenfest þar
sem hún lék á tugum tónleika fyrir tugi þúsunda
rokkþyrstra.
Björk okkar Guðmundsdóttir opnaði svo í júlí
tónleikaröð í Manchester sem tengdist inn í Bio-
philiu-verkefni hennar sem er allt í senn; plata/
„app“/tónleikar/skóli/hugmyndafræði. Á tónleik-
unum var spilað á sérstaklega hönnuð hljóðfæri
m.a. og Björk hugsaði svo langt út fyrir boxið að
fræðimenn eru svona rétt að byrja að átta sig á
hverju hún er að koma á braut með þessu einstaka
verkefni sínu. Með því hefur hún skipað sér á bekk
með helstu byltingarmönnum tónlistarsögunnar,
nokkuð sem tíminn mun óhikað leiða í ljós. Íslend-
ingar og Bretar hafa nú fengið Bíófílíuna beint í æð,
afgangurinn af heiminum bíður með öndina í háls-
inum og verður honum sinnt á næstu misserum.
Það er þó hann Mugison „okkar“ sem á þetta ár,
ekki lengur sonur Súðavíkur heldur sonur alls
landsins. Plata hans Haglél hefur hitt gervalla
þjóðina í hjartastað og líkt og Björk kann þessi
drengur svo sannarlega að hugsa út fyrir boxið.
Tónleikar hans í Hörpu, þar sem fólki var boðið að
berja hann, sveit hans og vini augum án endur-
gjalds, hafa hrært hressilega upp í hugmyndum
manna um hvernig hægt sé að lifa á því að vera tón-
listarmaður. Heiðarleiki, ástríða, velvild og þjón-
usta við tónlistargyðjuna fremur en hinn sívinsæla
Mammon borgar sig eftir allt saman. Það sannaði
okkar maður í ár með eftirminnilegum hætti. Upp-
lífgandi endir á stórgóðu og hreint út sagt æv-
intýralegu tónlistarári.
„Syngjum lag, spilum
spil … þá er gott að vera til“
Íslenska dægurtónlistarárið einkenndist af nokkrum stórsigrum, heima og heiman
Tímamót Biophiliutónleikaröð Bjarkar markaði
tímamót í tónlistarsögunni að mati sérfróðra.
Eining Mugison hélt þrenna
tónleika í Hörpu í desember.
Hér er hann ásamt konu
sinni, Rúnu Esradóttur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vinsælt á Ólafur Ragnar
skipti um skoðun
Maður skorinn á
háls í Mosfellsbæ
Logi gerir
sig að fífli
Leigðu vændiskonu
handa eiginmanninum
Dó er hún varð
undir legsteini
Sjokkerandi myndir
af Christinu Aguilera
25. KR-ingar meistarar
KR-ingar Íslandsmeistarar í knatt-
spyrnu karla í 25. skipti. Þeir urðu líka
meistarar á fyrstamótinu 1912.
27. Samúð með löggunni
Ríkislögreglustjóri lýsir samúð með
lögreglumönnum í launadeilu við
ríkið. Um 40 lögreglumenn hafa
sagt sig úr óeirðasveitum.
29. Fjölmenn kröfuganga
Um 300 lögreglumenn taka þátt í
kröfugöngu í til að leggja áherslu á
óánægju með úrskurð gerðardóms í
launadeilu við ríkið.
29. Stutt stopp
Birgir Jónsson hættir eftir 10 daga í
starfi forstjóra Iceland Express.
30. Gaf fyrsta sellóið
Erling Blöndal Bengtsson sellóleik-
Helstu fréttir ársins 2011
Hlegið að
Íslendingum
ari afhendir Tónlistarsafni Íslands til
varðveislu fyrsta sellóið sem hann
eignaðist sem barn.
Október
1. Árni Þór vankaðist
Mikil mótmæli við setningu
Alþingis. Ýmsu matarkyns rigndi
yfir þingmenn þegar þeir gengu frá
Alþingishúsinu að Dómkirkjunni.
3. Tvennu vísað frá
Landsdómur vísar frá fyrstu tveimur
ákæruliðum af sex í máli saksóknara
Alþingis gegn Geir H. Haarde.
3. Söguleg stund í Danmörku
Helle Thorning-Schmidt, 44 ára
gamall leiðtogi jafnaðarmanna,
tekur við embætti forsætisráðherra
í Danmörku, fyrst kvenna.
5. Frumkvöðull fellur frá
Steve Jobs, stjórnarformaður og
einn af stofnendum tölvufyrirtæk-
isins Apple, er allur eftir baráttu við
krabbamein.
8. Anna benti á Bulger
Anna Björnsdóttir, fegurðar-
drottning og leikkona, benti FBI,
á dvalarstað eins alræmdasta
glæpamanns Bandaríkjanna, James
„Whitey“ Bulger frá Boston.
9. Segir frá kynferðisofbeldi
Sjónvarpsviðtal við Guðrúnu Ebbu
Ólafsdóttur vekur mikla athygli. Þar
segir hún frá kynferðisofbeldi föður
síns, Ólafs Skúlasonar biskups.
11. Flautað til leiks í Frankfurt
Bókastefnan í Frankfurt, sú
þekktasta í heimi, opnuð. Ísland er
heiðursgestur á sýningunni í ár.
12. Tvö banaslys
Tvö banaslys á Austurlandi; 17 ára
stúlka lætur lífið í umferðarslysi
á Fagradal og rúmlega fertugur
karlmaður í vinnuslysi við höfnina á
Djúpavogi.
13. Sextán ára fangelsi
Hæstiréttur dæmir Gunnar Rúnar
Sigurþórsson í 16 ára fangelsi fyrir
að verða Hannesi Þór Helgasyni að
bana fyrr á árinu.
14. Lagerbäck ráðinn
Svíinn Lars Lagerbäck ráðinn
landsliðsþjálfari í knattspyrnu.
16. Margrét Lára á toppinn
Margrét Lára Viðarsdóttir
landsliðsmiðherji í knattspyrnu á
leið til þýsku meistaranna Turbine
Potsdam, eins besta liðs heims.
17. Hætta við álver
Alcoa tilkynnir að það sé hætt við
áform um að reisa álver á Bakka.
17. Vopnað rán
Þrír ræningjar ráðast inn í úraversl-
unina Michelsen við Laugaveg og
tæma skáp sem var fullur af dýrum
úrum.
18. Stóra systir stígur fram
Neðanjarðarhreyfingin „Stóra
systir” afhendir lögreglu
höfuðborgarsvæðisins lista með 56
nöfnum, 117 símanúmerum og 29
netföngum karlmanna sem föluðust
eftir vændi.
19. Alvarlegt umferðarslys
Mjög alvarlegt slys við endur-
vinnslustöð Sorpu á Dalvegi í
Kópavogi. Gámaflutningabíll tók
ólöglega beygju gegn einstefnu og
ók yfir hjólreiðarmann.
Unfanfarin ár hefur maður merkt
vissa þróun hvað Iceland Airwa-
ves-hátíðina varðar. Hún er farin
að renna fum-
lausar og af
meiri krafti en
áður, allt sem
hægt væri að
kalla óöruggt
krafl þess sem
veit ekki alveg
upp á hár hvað
hann er að gera
er fyrir löngu á
bak og burt.
Þetta er alvöru-
dæmi, hátíðin að fullu sambærileg
við aðrar viðlíka úti í heimi en um
leið er hún með tvö tromp á hendi
sem skýra hina miklu ásókn, ekki
síst erlendra tónlistaráhugamanna,
í hátíðina. Við erum með tónlistina
(já, Íslendingar eru einfaldlega að
gera frábæra hluti í tónlist) og svo
þetta magnaða umhverfi okkar,
blessaða náttúruna sem er einstök
eins og við öll vitum.
Airwaves-hátíðin er óhikað há-
punktur ársins hér á landi hvað
viðkemur dægurtónlistarmenning-
unni og í ár kom Harpan okkar
sterk inn í tilkomumikla dagskrá
Airwaves. Þar barði blaðamaður
t.a.m. augum hina stórgóðu Guðrið
Hansdóttur frá Færeyjum og hinn
magnaða John Grant frá Banda-
ríkjunum. Að samkeyra Bíófílíuna
hennar Bjarkar við hátíðina var
þá snilldarútspil.
Iceland Airwaves
aldrei verið betri
Frábær John Grant
heillaði áheyrendur.
Hversu greindan eða smekkvísan
sem maður telur sig vera, þá losna
fáir við að lenda í hremmingum
Evróvisjónfárs-
ins. Í ár sendum
við út Vini
Sjonna, og kom
það reyndar
ekki til af góðu.
Höfundur sig-
urlagsins, Sig-
urjón Brink, eða
Sjonni Brink,
varð bráð-
kvaddur þann
17. janúar, aðeins 36 ára að aldri.
Í stað þess að draga lagið úr
keppni ákváðu vinir hans úr tón-
listarheimum að flytja lagið. Eftir
útsetningaryfirhalningu varð lagið
hið burðugasta og flutningur
sveitarinnar á laginu var í senn
glaðvær, styrkjandi og einlægur.
Þjóðin var því komin í mikinn
keppnisgír þegar lagið var loks
flutt í Þýskalandi í maí. Fleiri en
Frónbúar heilluðust af Vinum
Sjonna og fór svo að lagið komst
upp úr undanriðlinum og í úrslit
og var það seinasta lagið sem var
lesið upp.
„Sjonni stríddi okkur alveg
hrikalega þarna í lokin, með því
að láta draga okkur upp úr síðasta
umslaginu, þegar allt átti að vera
búið! Þetta var Sjonni,“ sagði
Matthías Matthíasson forsöngvari í
fréttaspjalli við Morgunblaðið.
Hið alíslenska
Evróvisjónfár
Gleði Matthías
Matthíasson.