Morgunblaðið - 31.12.2011, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
ÍÞRÓTTIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fyrir nokkrum árum kom þýskur blaða-maður hingað til lands til þess að viða aðsér efni í grein um íþróttir á Íslandi. Eft-ir að hafa fylgst með mörgum íslenskum
íþróttamönnum gera það gott í heimalandi sínu
ákvað hann að leggja land undir fót og skoða þetta
fyrirbæri á norðurhjara veraldar. Land með um
300 þúsund íbúa sem gæfi af sér endalausan
straum afreksfólks í hinum og þessum íþrótta-
greinum, og um þetta fjallaði hann á mörgum síð-
um í sínu blaði.
Þar tók hann m.a. Ísland og bar saman við borg í
Þýskalandi með svipaðan fólksfjölda. Fyrrverandi
höfuðborgin Bonn varð fyrir valinu og kom ekki
sérlega vel út. Blaðamanninum tókst með herkjum
að finna tvo til þrjá íþróttamenn frá Bonn sem eitt-
hvað höfðu getað á landsvísu í Þýskalandi, en taldi
upp á móti tugi Íslendinga sem væru vel þekktir í
Þýskalandi fyrir íþróttaafrek sín.
Glöggt er gests augað. Við áttum okkur ekki allt-
af á því sjálf hversu vel þessi fámenna þjóð okkar
stendur að vígi í alþjóðlegri samkeppni. Upptaln-
ingin í greinunum tveimur hér til vinstri, þar sem
aðeins er tæpt á því helsta sem íslenskt íþróttafólk
gerði á árinu 2011, myndi sóma þjóð með tíu sinn-
um fleiri íbúa.
En við erum orðin svo vön þessu og teljum svo
sjálfsagt að okkar fólk standi uppi í hárinu á þeim
bestu í heiminum að margt af okkar afreksfólki
nýtur ekki sannmælis dags daglega. Hvorki hjá al-
menningi né hjá þeim sem með valdið fara og fjár-
munina.
Hér í Morgunblaðinu og fleiri fjölmiðlum hefur
að undanförnu verið fjallað mikið um bágan fjárhag
íslensks afreksfólks sem fórnar öllu fyrir sína
íþrótt og til að koma sér og Íslandi á kortið á al-
þjóðavettvangi. Margir hrukku við þegar Hrafn-
hildur Skúladóttir, landsliðsfyrirliði í handbolta,
fussaði yfir árnaðaróskum frá ríkisstjórn Íslands
og sagðist taka við þeim um leið og peningar fylgdu
með.
Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir lifir á
pakkanúðlum í keppnisferðum og fer um allt ein og
óstudd í baráttu sinni fyrir því að ná settu marki.
Borðtennismaðurinn Guðmundur E. Stephensen
er miklu nær þeim bestu í heiminum en staða hans
á heimslista segir, en vegna mikils kostnaðar á
hann ekki möguleika á að ná þangað sem hann ætti
að geta. Skíðamaðurinn Björgvin Björgvinsson,
sem var kominn í hóp 50 bestu í heiminum í sinni
grein, hætti keppni af fjárhagsástæðum. Júdó-
kappinn Þormóður Árni Jónsson er með þrjár
milljónir króna á ári í ferðakostnað vegna æfinga
og móta erlendis. Þannig mætti lengi telja.
Íslenska íþróttahreyfingin hefur skilað óend-
anlegu sjálfboðastarfi í gegnum árin og byggist á
því að langmestu leyti. Það er sjálfboðavinnan sem
hefur lagt hornsteininn að þeim afrekum sem ís-
lenskt íþróttafólk hefur unnið fyrr og nú. Hvort
sem er innan félaga eða sérsambanda. Öll sú upp-
bygging sem þar hefur átt sér stað er landi og þjóð
ómetanleg. Hún hefur skilað okkur afreksfólki í
íþróttum en það er aðeins toppurinn á ísjakanum.
Hún hefur beint gífurlegum fjölda ungmenna á
rétta braut í lífinu og veitt þeim uppeldi sem mótað
þau og hjálpað til við að gera þau að nýtum þjóð-
félagsþegnum.
Ekkert slíkt gerist hinsvegar að neinu marki ef
ekki er til staðar afreksfólk, íþróttafólk sem nær
árangri, ryður brautina og sýnir hve langt er hægt
að komast með eljunni og heilbrigðu líferni. Þar
eru fyrirmyndir æskunnar. Þess vegna hefur verið
dapurlegt síðustu daga og vikur að heyra og lesa
frásagnir afreksfólks sem berst í bökkum við að
reyna að ná langt í sinni íþrótt, og heyr þar ójafna
baráttu við erlenda andstæðinga sem ekkert þurfa
fyrir lífinu annað að hafa en að æfa og standa sig.
Þetta hvetur ekki íslensku börnin og unglingana til
dáða. Þessar frásagnir eru ekki til þess fallnar að
auka metnað þeirra og áhuga á að komast á topp-
inn. En þær endurspegla raunveruleikann sem af-
reksfólkið okkar horfist í augu við á hverjum degi.
Hugsjónirnar einar duga ekki lengur þó þær hafi
áður fyrr verið allt sem þurfti. Íþróttafólkið þarf
líka að eiga fyrir salti í grautinn.
Að sjálfsögðu eru takmörk fyrir því hversu mikl-
um fjármunum okkar fámenna þjóð getur varið til
hinna ýmsu málaflokka. Við höfum séð niðurskurð
og sparnað á öllum sviðum, enda oft ekki um annað
að ræða. En hvað stuðning við afreksfólkið varðar
snýst þetta ekki um viðbótarkostnað, heldur skyn-
semi og forgangsröðun. Nú þarf að stokka spilin
upp á nýtt og gefa rétt.
Nú þarf að stokka spilin
upp á nýtt og gefa rétt
Staða íslensks afreksfólks í samkeppninni á alþjóðavettvangi fer stöðugt versnandi
Morgunblaðið/Golli
Góðar Framganga landsliðskvennanna í hand-
bolta vakti athygli á erfiðri stöðu íslensks afreks-
fólks í íþróttum.
Dýrt Júdókappinn Þormóður
Árni Jónsson er með gíf-
urlegan ferðakostnað.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vinsælt á Játar frjálslegt
kynlíf
„Ég svaf hjá fram-
leiðandanum“
Anna Mjöll óskar
eftir skilnaði
Bannað að búa saman
og stunda kynlíf
Ólafur Þórðarson
látinn
Deitar kvennagull
en drekkur ekki
29. Breivik ósakhæfur
Fjöldamorðinginn Breivik, sem
myrti 77 manns í Noregi 22. júlí
er ósakhæfur vegna ofsóknar-
geðklofa að mati tveggja norskra
réttarsálfræðinga.
Desember
1. Þrír í gæsluvarðhald
LárusWelding, fyrrverandi forstjóri
Glitnis, Jóhannes Baldursson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Helstu fréttir ársins 2011
Hópkaupin ekki
allra hagur
markaðsviðskipta hjá Glitni, og Ingi
Rafnar Júlíusson, sem starfaði í
verðbréfamiðlun Glitnis, úrskurðaðir
í vikulangt gæsluvarðhald að kröfu
sérstaks saksóknara.
2. Ekkert dregið úr neyðinni
Um 1.400 manns hafa óskað eftir
aðstoð Fjölskylduhjálpar Íslands
en meirihluti þess fólks hefur ekki
leitað hjálpar áður.
3. Ólga vegna ráðherraskipta
Hugmyndir eru á borðinu að
leggja niður efnahags- og
viðskiptaráðuneytið og færa
valdsviðið undir fjármálaráðherra.
5. Andlát: Ólafur Þórðarson
Ólafur Þórðarson, tónlistar- og
útvarpsmaður, lést á Grensásdeild
Landspítalans 4. desember, 62 ára
að aldri.
10. Vítisenglar stefna ráðherra
Vítisenglar hafa stefnt Ögmundi
Jónassyni innanríkisráðherra fyrir
meiðyrði en auk hans hafa samtökin
stefnt Haraldi Johannessen ríkislög-
reglustjóra og íslenska ríkinu.
10. Dæmdseken refsingu frestað
Dómur féll í skattahluta Baugs-
málsins en í málinu voru Jón Ásgeir
Jóhannesson, Tryggvi Jónsson og
Kristín Jóhannesdóttir ákærð fyrir
meiriháttar brot gegn skattalögum
auk fleiri brota. Öll voru þau sakfelld
í einhverjum liðum ákærunnar en
einnig sýknuð í öðrum. Niðurstaðan;
að fresta refsingu og falli hún niður
haldi þau almennt skilorð í eitt ár.
12. Milljónatjón hjá RSK
Mikið magn vatns tók að flæða um
húsakynni Ríkisskattstjóra eftir að
loki í brunalögn gaf sig.
13. Fjárhagsleg áhrif óljós
Bandormurinn afgreiddur til
2. umræðu úr efnahags- og
viðskiptanefnd. Minnihluti gagnrýnir
afgreiðsluna og segir tillögur unnar
á hlaupum.
14. 523 án atvinnu í þrjú ár
Langtímaatvinnulausum fjölgar
stöðugt og í lok nóvembermánaðar
höfðu alls 523 verið atvinnulausir í
þrjú ár eða lengur.
14.Móðirin hvarf í eldhafið
Sautján ára piltur brást hárrétt
við þegar hann kommóður sinni
til bjargar eftir að sprenging varð
í etanól-eldstæði á heimili þeirra í
Kópavogi.
15. Stefnt vegna Icesave
Eftirlitsstofnun EFTA hefur tekið þá
ákvörðun að stefna íslenska ríkinu
fyrir EFTA-dómstólnum vegna
meintra brota gegn EES- samningn-
um vegna Icesave-deilunnar.
17. Tillagan rædd á nýju ári
Þingsályktunartillaga Bjarna
Benediktssonar um niðurfellingu
málshöfðunar Alþingis á hendur
Geir H. Haarde verður tekin fyrir ekki
síðar en 20. janúar næstkomandi.
19. Lárus Welding ákærður
Sérstakur saksóknari hefur gefið
út ákæru á hendur Lárusi Welding,
fyrrverandi forstjóra Glitnis, og
einum öðrummanni sem tengist
bankanum. Grunur um stórfelld
umboðssvik.
29. Drógu úr útgjöldum
Hjón með börn drógu úr útgjöldum
heimilisins að meðaltali um tæplega
1,9 milljónir á ári á árunum 2008
til 2010. Þetta er samdráttur upp
á 22,4%.
30. Mesti snjór í Reykjavík í 27 ár
Snjódýpt hefur ekki verið jafnmikil í
desembermánuði í Reykjavík frá því
að veðurmælingar hófust árið 1921.
Klukkan níu í gærmorgun mældist
dýptin 33 cm.Til að finna meiri snjó
í Reykjavík þarf að fara allt aftur til
5. febrúar 1984 þegar dýpt mældist
43 cm.
Árið 2011 var tvímælalaust ár
landsliðanna í íslensku íþróttalífi
því fimm landslið í knattspyrnu og
handknattleik
náðu mjög eft-
irtektarverðum
árangri á al-
þjóðavettvangi.
Handbolta-
landslið karla,
undir stjórn Guð-
mundar Þ. Guð-
mundssonar,
hafnaði í sjötta
sæti á HM í Sví-
þjóð. Til skamms
tíma hefðu landsmenn verið í skýj-
unum með þann árangur en hann
hverfur nú aðeins í skuggann vegna
verðlaunasæta liðsins árin á undan.
Handboltalandslið kvenna náði
12. sæti í frumraun sinni á HM í
Brasilíu og vakti mikla athygli.
Stúlknalandsliðið í knattspyrnu,
17 ára og yngri, endaði í fjórða sæti
Evrópumótsins sem er besti árang-
ur íslensks liðs í fótbolta frá upp-
hafi.
Piltalandsliðið í knattspyrnu, 21
árs og yngri, var skammt undan og
hafnaði í 5. sæti Evrópukeppn-
innar. Það var einu marki frá því að
fara í undanúrslit og spila um Ól-
ympíusæti.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
fékk silfurverðlaun á einu sterkasta
móti heims, Algarve-bikarnum,
stendur vel að vígi í undankeppni
EM, og er 15. besta lið heims sam-
kvæmt heimslista. vs@mbl.is
Fimm landslið gerðu
það gott á árinu
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
Þó ekkert eitt afrek standi uppúr á
árinu 2011 gerðu margir íslenskir
íþróttamenn það gott í einstaklings-
greinum.
Ásdís Hjálms-
dóttir hafnaði í
þrettánda sæti í
spjótkasti á
heimsmeist-
aramótinu og var
örskammt frá því
að komast í úr-
slit.
Kári Steinn
Karlsson náði Ól-
ympíulágmarki í maraþoni í fyrstu
tilraun og tryggði sér keppnisrétt á
leikunum í London, eins og Ásdís.
Keilumaðurinn Hafþór Harð-
arson sló í gegn á Evrópumóti
landsmeistara þar sem hann krækti
sér í bronsverðlaun.
Þormóður Árni Jónsson fékk silf-
urverðlaun á mjög sterku heimsbik-
armóti í júdó.
Ragna Ingólfsdóttir vann eitt al-
þjóðlegt mót í badminton og fékk
silfur á öðru, og stendur vel að vígi í
baráttu um sæti á Ólympíu-
leikunum.
Íslenskt sundfólk setti fjölda
meta og þar er margt ungt og efni-
legt afreksfólk að hasla sér völl.
Guðmundur E. Stephensen er
ósigrandi í borðtennis, jafnt í Hol-
landi sem á Íslandi, og er líka með
Ólympíuleikana í sigtinu.
Fullt af góðum
afrekum á árinu
Ásdís
Hjálmsdóttir