Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Morgunblaðið/Júlíus
Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman í miðbæ Reykjavíkur fyrsta laugardaginn í ágúst þegar gleðiganga
Hinsegin daga fór fram. Fólkið fylgdist með hverjum skrautlega vagninum á eftir öðrum aka hægt inn í
miðbæinn.
Fjöldi fylgist með gleðigöngu
Lögreglunni tókst á nokkrum dögum að upplýsa vopnað rán í verslun
Franks Michelsens úrsmiðs á Laugavegi í október. Einn maður var
handtekinn vegna aðildar að ráninu og fannst allt þýfið í bíl hans. Þrír
komust hins vegar úr landi. Tveir þeirra voru handteknir í Póllandi en
sleppt aftur vegna þess að ekki er í gildi framsalssamningur á milli
landanna. Frank Michelsen fékk til baka þau 49 úr sem stolið var en
þau voru skemmd auk þess sem innréttingar verslunarinnar skemmdust
í ráninu.
Morgunblaðið/Júlíus
Þýfi úr vopnuðu
ráni endurheimt
Sinfóníuhljómsveit Íslands fékk nýtt aðsetur í ráðstefnu- og tónlistarhúsinu Hörpu í vor.
Gengu hljóðfæraleikararnir með hljóðfæri úr Háskólabíói, þar sem hljómsveitin hefur haft að-
setur í fimmtíu ár, og niður að Austurhöfn. Fjöldi listamanna kom fram á opnunartónleikum
sem haldnir voru í rauða Eldborgarsalnum í byrjun maí.
Morgunblaðið/Ómar
Sinfóníuhljómsveit Íslands flutt í Hörpu
Varðskipið Þór, nýtt skip
Landhelgisgæslunnar,
kom til landsins í október,
eftir rúmlega mánaðar
siglingu frá Síle þar sem
skipið var smíðað. Þór er
fjórða skip Landhelg-
isgæslunnar sem ber þetta
nafn. Þór kom fyrst til
Vestmannaeyja. Þúsundir
skoðuðu skipið eftir að
það kom til heimahafnar í
Reykjavík. Nýja varð-
skipið er mun öflugra
gæslu- og björgunarskip
en þau skip sem Land-
helgisgæslan hefur yfir að
ráða.Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýr Þór kominn til landsins