Morgunblaðið - 31.12.2011, Síða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Arabíska vorið svonefnda hófst í janúar og varð til
þess að fjórir einræðisherrar í Norður-Afríku og
Mið-Austurlöndum hrökkluðust frá völdum. Mót-
mælaaldan hófst í Túnis og varð fyrst til þess að
forseti landsins, Zine El Abidine Ben Ali, flúði
þaðan 14. janúar eftir að hafa verið við völd í 23 ár.
Um 300 manns biðu bana í mótmælunum í Túnis.
Fjöldamótmæli á Tahrir-torgi í Kaíró urðu síð-
an til þess að Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, sagði af sér 11. febrúar eftir að hafa verið
við völd í 30 ár. Herinn tók völdin í sínar hendur og
réttarhöld hófust yfir Mubarak í ágúst.
Uppreisn hófst í borginni Benghazi í austan-
verðri Líbíu 15.-16. febrúar. Árásir öryggissveita
einræðisherrans Muammars Gaddafis á óbreytta
borgara urðu til þess að Frakkar, Bandaríkja-
menn og Bretar hófu lofthernað í Líbíu 19. mars
til að framfylgja flugbanni sem öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hafði sett. Atlantshafsbandalagið
tók við stjórn lofthernaðarins 31. mars.
Uppreisnarmenn drápu Gaddafi í heimaborg
hans, Sirte, 20. október eftir að hafa náð landinu á
sitt vald. Gaddafi hafði verið við völd í 42 ár.
Forseti Jemens, Ali Abdullah Saleh, samþykkti
23. nóvember að láta af embætti eftir margra
mánaða mannskæð átök milli öryggissveita og
mótmælenda. Hann hafði þá stjórnað landinu í 33
ár.
Mótmæli voru kveðin niður í Barein með hjálp
sádiarabíska hersins um miðjan mars. Um 30 mót-
mælendur biðu bana í aðgerðum öryggissveita.
Ekkert lát er á átökum sem hófust í Sýrlandi
gegn einræðisstjórn Bashars al-Assads forseta 15.
mars. Talið er að minnst 5.000 manns hafi beðið
bana í árásum sýrlenskra öryggissveita, þeirra á
meðal 300 börn.
Mikil óvissa er um hvað tekur við í þessum lönd-
um. Íslamski flokkurinn Ennahda fékk mest fylgi í
þingkosningum í Túnis 23. október, fékk 89 þing-
sæti af 217. Íslamskir flokkar fóru einnig með sig-
ur af hólmi í fyrsta áfanga þingkosninga sem hóf-
ust í Egyptalandi í desember.
Sigur Líbískir uppreisnarmenn fagna eftir að hafa náð Sirte, heimaborg Muammars Gaddafis, á sitt vald í október.
Skömmu síðar var Gaddafi drepinn eftir að hafa reynt að flýja frá borginni. Hann var við völd í 23 ár.
Reuters
Arabíska vorið varð fjórum einvöldum að falli
Fallinn Mótmælendur á Tahrir-torgi í Kaíró fagna afsögn Hosnis Mubaraks í febrúar.
Ólga Mótmælandi kastar táragashylki sem lögreglumenn höfðu kastað að
Egyptum sem efndu til mótmæla í Kaíró gegn egypska hernum í nóvember.
Reuters
Talið er að um milljón manns hafi safnast saman við
götur í nágrenni Westminster Abbey-kirkjunnar í
London 29. apríl þegar Vilhjálmur Bretaprins og Kate
Middleton gengu í hjónaband. Fólkið fylgdist með at-
höfninni af skjám utan dyra og fagnaði gríðarlega þeg-
ar parið sagði já við altarið.
Herflugvélar flugu yfir svæðið og efnt var til mörg
þúsund götuteita í tilefni dagsins sem var almennur frí-
dagur í Bretlandi. Tugir milljóna manna um allan heim
fylgdust með í sjónvarpi og er gert ráð fyrir að um
600.000 erlendir ferðamenn hafi komið til London fyrst
og fremst vegna brúðkaupsins.
Kjóll Kate þótti mjög glæsilegur og fallegur, en hann
var hannaður af Söruh Burton sem starfar hjá Alex-
ander McQueen. Vilhjálmur þótti einnig glæsilegur í
hárauðum ofurstabúningi. Að sögn varalesara BBC
hvíslaði Vilhjálmur að brúðinni á leiðinni að altarinu að
hún væri „falleg“.
Rómantík Vilhjálmur Bretaprins kyssir Kate sína á svölum Buckingham-hallar eftir að þau voru gefin saman.
Reuters
Konunglegt brúðkaup í London Tilkynnt var í Norður-Kóreu 19.desember að Kim Jong-il, leiðtogi
landsins, hefði dáið tveimur dögum
áður vegna „gríðarlegs vinnuálags“.
Þessi tíðindi vöktu mikinn ugg í
grannríkjunum vegna óvissunnar
um hvað tæki við í Norður-Kóreu
sem er með fjórða fjölmennasta her
heims og ræður yfir kjarnavopnum.
Stjórnvöld í grannríkjunum settu
heri sína í viðbragðsstöðu og bjuggu
sig undir hugsanlega valdabaráttu í
klíkunni sem hefur stjórnað Norður-
Kóreu í rúma hálfa öld og haldið íbú-
unum í einangrun, eymd og volæði.
Kim hafði valið yngsta son sinn, Kim
Jong-un, sem arftaka sinn. Sérfræð-
ingar í málefnum landsins telja að
ráðandi öfl fylki sér um arftakann
fyrst í stað þar sem þau hafi hag af
því að viðhalda óbreyttu ástandi.
Kim Jong-un er þó óreyndur og ekki
víst að hann nái fullum tökum á
hernum.
Grátur og kveinstafir Íbúar Pjongjang virðast vera bugaðir af sorg eftir að
tilkynnt var í Norður-Kóreu í desember að Kim Jong-il væri allur.
Reuters
Dauði Kims Jong-Ils vakti
ugg í grannríkjunum