Morgunblaðið - 17.01.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Full ástæða er til að óttast að enn
aukin harka, þar með talinn vopna-
burður, verði viðtekin í íslenskum
undirheimum.“ Þetta segir í fyrstu
skýrslu greiningardeildar ríkislög-
reglustjóra sem gefin var út í júní
2008. Einnig er komið inn á tengsl ís-
lenskra vélhjólasamtaka við Vítis-
engla og að með þeim hafi verið
stofnað til formlegra tengsla við
skipulögð, alþjóðleg glæpasamtök. Í
síðari skýrslum er áfram varað við
þessari þróun og á það bent, að „alls
staðar þar sem Hells Angels hafa náð
að skjóta rótum hefur aukin skipu-
lögð glæpastarfsemi fylgt í kjölfarið“.
Óvarlegt væri að slá því föstu að
koma Vítisengla til landsins hafi orð-
ið til þess að skipulögð glæpastarf-
semi færist í vöxt. Þó virðist sem flest
það sem greiningardeildin bendir á
hafi ræst. Ekki síst þetta með hörk-
una sem virðist hafa ágerst. Ekki
þarf annað en að líta til nýliðins árs
og svo fyrstu daga þessa árs.
Frelsissvipting og skotárás
Vélhjólasamtök voru áberandi í
fyrra. Í október dæmdi Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur tvo menn í þriggja og
hálfs árs og þriggja ára fangelsi fyrir
frelsissviptingu og stórfellda líkams-
árás. Mennirnir voru kenndir við vél-
hjólasamtökin Black Pistons – annar
þeirra forseti samtakanna – sem
hefðu tengsl við vélhjólasamtökin
Outlaws í Noregi, og væru svonefnd-
ur stuðningsklúbbur. Verjandi ann-
ars mannanna hafnaði þessu raunar
alfarið, benti á að umræddir menn
ættu ekki einu sinni bifhjól og varp-
aði fram þeirri spurningu hvernig um
vélhjólasamtök gæti þá verið að
ræða.
Samtökin komust aftur í fjölmiðla
einum mánuði síðar. Þá var reyndar
upplýst að Black Pistons væru ekki
til lengur því samtökin hefðu fengið
fulla aðild að Outlaws og bæru því
það nafn. Þeim áfanga virðist hafa
verið fagnað með skotárás í Bryggju-
hverfinu því lögregla handtók nokkra
einstaklinga tengda Outlaws í fram-
haldi af henni. Þeir sitja enn í gæslu-
varðhaldi. Að mati lögreglu var um
að ræða afbrot sem framið hafði verið
með skipulögðum og verkskiptum
hætti af hópi manna sem kennir sig
við glæpasamtök.
Lögregla fór í nokkrar húsleitir í
tengslum við málið og fann í einni
þeirra mesta magn vopna sem fund-
ist hefur í einni húsleit.
Vítisenglar einnig handteknir
Að endingu má nefna handtökur
lögreglunnar í síðustu viku, en þá
voru hnepptir í gæsluvarðhald fimm
einstaklingar sem lögregla segir
tengjast Vítisenglum. Komið hefur
fram í fjölmiðlum að handtökurnar
tengist tveimur árásum á konu en
eftir þá fyrri var hún flutt meðvitund-
arlaus á sjúkrahús. Þá var tvennt
handtekið en það hafði ekkert að
segja, aftur var gengið í skrokk á
konunni.
Meðal þeirra sem voru handteknir
var forseti Vítisengla á Íslandi og
sagði Ríkisútvarpið lögreglu telja að
hann hafi fyrirskipað árásirnar.
Ástæðan var sögð vera hefnd.
Verður ekki aftur snúið
Greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra vísar til þess í nýlegri skýrslu
sinni að atburðir sem komu upp í
fyrra séu til marks um aukna hörku í
íslenskum undirheimum. „Greina
hefur mátt þessa þróun hin síðustu ár
og tæpast er ástæða til að ætla að
henni verði snúið við þrátt fyrir snörp
og fagmannleg viðbrögð lögreglu í
þeim málum sem hér hefur verið vik-
ið að.“
Árásin í Bryggjuhverfinu þykir
sérstaklega til marks um þá hættu að
til átaka komi með einstaklingum og
hópum sem tengjast skipulagðri
brotastarfsemi á Íslandi. Ástæða sé
til að ætla að hömluleysi fari vaxandi
en samhliða því eru vísbendingar um
að félagar í glæpahópum gangi oftar
um vopnaðir og hafi lagt áherslu á að
komast yfir vopn.
Við þessu var varað í fyrstu
skýrslu greiningardeildarinnar en
nú, fjórum árum síðar, telst hætta
á átökum hópa sem tengjast
skipulagðri glæpastarfsemi
viðvarandi, ekki síst vopnuð-
um átökum.
Vélhjólasamtökin áberandi
Einstaklingar tengdir vélhjólasamtökum sem starfa hér á landi afplána refsidóma eða eru í haldi
„Nýr veruleiki“ sem greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur þó varað ítrekað við undanfarin ár
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðist inn Lögreglan hefur eftir fremsta mætti reynt að sporna við uppgangi vélhjólasamtaka hér á landi.
Vísbendingar um alvarlega
skipulagða glæpastarfsemi hér
á landi og að slík starfsemi væri
að færast í vöxt varð til þess að
ríkisstjórnin samþykkti í mars á
síðasta ári að veita 47 milljónir
króna í tólf mánaða átak lög-
reglunnar til að vinna gegn
skipulagðri brotastarfsemi.
Stefán Eiríksson, lögreglu-
stjóri höfuðborgarsvæðisins,
segir um reynsluna af átakinu
að það sé mat sitt að „áherslur
lögreglunnar á aðgerðir gegn
skipulagðri brotastarfsemi
skipti mjög miklu máli og góður
árangur hafi orðið af því starfi
að undanförnu“.
Meta átti reynsluna af átak-
inu um þetta leyti og taka
ákvörðun um það hvort haldið
yrði áfram á sömu braut. Fyrir-
spurn til innanríkisráðherra um
framhaldið var þó ekki svarað í
gærdag.
En þetta er ekki það eina sem
gert hefur verið til að sporna við
skipulagðri glæpastarfsemi.
Meðal annars má nefna að
stefnt er að því að styrkja rann-
sóknarheimildir lögreglu þegar
kemur að starfsemi skipulagðra
glæpasamtaka. Með því er
heimild lögreglunnar styrkt til
að hefja rannsókn á máli þegar
grunur leikur á að verið sé að
undirbúa brot.
Þá verður lagt fram nýtt
frumvarp um vopnalöggjöfina
þar sem brugðist er við aukn-
um vopnaburði. Til dæm-
is verða heimildir lög-
reglu til að leggja hald á
skotvopn auknar
auk annarra
breytinga til að
auka öryggi
samfélagsins.
Átak sem
gefst vel
RÁÐIST GEGN GLÆPUM
Sigurður Sigmundsson
Uppsveitir Árnessýslu
Fjölmenni var á heiðurssamsæti á
Hótel Geysi á föstudagskvöldið en
tilefnið var að þakka Gunnlaugi
Skúlasyni dýralækni fyrir vel unnin
störf í uppsveitum Árnessýslu um
margra áratuga skeið. Síðasta emb-
ættisverk sitt vann hann í sumar,
en hann verður áttræður á næsta
ári.
Margar ræður voru haldnar hon-
um og konu hans Renötu til heið-
urs og meðal annars færðar góðar
gjafir frá nautgripabændum, sauð-
fjárbændum og hestamannafélög-
unum þremur sem starfa í upp-
sveitunum. Meðal þeirra sem komu
fram var kollegi Gunnlaugs, Sig-
urður Sigurðarson, sem sagði á
skemmtilegan hátt frá því er hann
leysti Gunnlaug af um tíma og
flutti honum nokkrar vísur af sinni
alkunnu snilld. Gunnlaugur Bjarna-
son dóttursonur söng tvö lög við
undirleik móður sinnar Elínar
Gunnlaugsdóttur. Hagyrðingurinn
Jón Karlsson, fyrrverandi bóndi í
Gýjarhólskoti, flutti eftirfarandi
vísu:
Gulli bætti gripafans
gunnreifur í stríði,
Renata er heillin hans
hún er kvenna prýði.
Gunnlaugur, sem er fæddur og
uppalinn í Bræðratungu, lauk dýra-
læknanámi við dýralæknaháskólann
í Hannover 1962 og var nokkru
seinna skipaður dýralæknir í upp-
sveitum Árnessýslu með aðsetri í
Laugaráshverfinu. Svæðið er afar
víðfeðmt sem kunnugt er. Allt frá
Fellsenda í Þingvallasveit og upp í
Þjórsárdal. Árið 1984 hætti hann
að mestu störfum í Hreppunum og
þá hægðist heldur um. Að auki
hafði hann með kjötskoðun að gera
sex vikur á hverju hausti í slátur-
húsi SS í Laugarási meðan það var
starfrækt frá 1964 til 1988 og að
auki kjötskoðun á Borg í Grímsnesi
um árabil. Hann var virtur og vin-
sæll dýralæknir og afar stutt í
skopskynið og eru mörg tilsvör
hans fleyg.
Gunnlaugur kom með eiginkonu
sinni Renötu, sem er frá Berlín og
fyrsta barni þeirra, þegar hann
kom frá námi. Mikilhæfri mann-
kostakonu sem mæddi oft mikið á.
Var starfsdagur þeirra oft ærið
langur. Þessi heiðurshjón eiga
fimm börn, vel mentuð og dug-
mikil. Barnabörnin eru ellefu.
Dýralæknir
heiðraður fyrir
áratuga störf
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Heiðruð Renata og Gunnlaugur Skúlason fengu margar góðar gjafir.
Framleiðsla á kindakjöti jókst um
4,6% á milli áranna 2010 og 2011,
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Landssamtökum sláturleyfishafa.
Alls voru framleidd 9.587 tonn af
kindakjöti og var salan á innan-
landsmarkaði rúm sex þúsund
tonn.
Alls voru framleidd 3.858 tonn af
nautakjöti hér á landi árið 2011 en
það er 0,9% minna en framleitt var
árið áður.
Svipuð sala á nautakjöti
Salan á nautakjöti var nánast al-
veg sú sama og árið 2010, eða
3.856 tonn.
Framleitt magn skiptist þannig
að 2.190 tonn voru framleidd af
ungnautakjöti, óbreytt frá fyrra
ári, 1.595 tonn voru framleidd af
kýrkjöti, samdráttur um 2,2% frá
2010, af ungkálfakjöti voru fram-
leidd 58 tonn, 7,9% samdráttur frá
fyrra ári. Sem fyrr var framleiðsla
á alikálfakjöti óveruleg, eða 15
tonn.
Innflutningur nautgripakjöts
fyrstu 11 mánuði ársins 2011 var
418 tonn, sem er fjórum sinnum
meira en allt árið 2010.
Kindakjöt
sækir í sig
veðrið