Morgunblaðið - 17.01.2012, Side 17
Hefur verið lagt Snekkjan Britannia.
Breska ríkisstjórnin hefur hafnað
þeirri hugmynd menntamálaráðherr-
ans Michaels Gove að breska ríkið
greiði fyrir nýja snekkju handa
bresku konungsfjölskyldunni í tilefni
af 60 ára krýningarafmæli Elísabetar
drottningar síðar á árinu. Gove lagði
þetta til í bréfi sem hann ritaði menn-
ingarmálaráðherra landsins. Tals-
maður Davids Camerons forsætis-
ráðherra gaf lítið fyrir þessa
hugmynd í gær, sagði hana vera í litlu
samræmi við sparnaðaráform ríkis-
stjórnarinnar. Snekkju drottningar,
Britannia, hefur verið lagt.
Vilja ekki
konunglega
snekkju
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
Tveir úlfaldar takast
á í glímukeppni úlf-
alda í bænum Selcuk,
nálægt borginni Izm-
ir í vestanverðu
Tyrklandi. Hundruð
úlfalda tóku þátt í
keppninni og þús-
undir manna fylgdust
með henni.
Keppnin er haldin
árlega í bænum í jan-
úar. Í hverri glímu
eru tvö karldýr látin
takast á og sá úlfaldi
sem nær að bylta
andstæðingnum
hreppir kvendýr sem
fylgist með rimm-
unni.
Glímu-
keppni
úlfalda
Reuters
Norska dagblaðið Verdens Gang
hefur birt fjórar skýrslur geðlækna
sem hafa rannsakað geðheilsu
fjöldamorðingjans sem varð 77
manns að bana í Ósló og Útey 22.
júlí. Þar kemur meðal annars fram
að ódæðismaðurinn iðrast einskis,
lætur fara vel um sig í fangelsi og
segir að vistin þar sé eins og dvöl í
leikskóla.
Torry Pedersen, ritstjóri Ver-
dens Gang, ákvað að birta skýrsl-
urnar í heild þrátt fyrir viðvaranir
lögreglu um að upplýsingalekar í
fjölmiðla hefðu truflað rannsóknina.
Ein skýrslnanna er eftir tvo réttar-
geðlækna, Synne Serheim og Tor-
geir Husby, sem komust að þeirri
niðurstöðu að fjöldamorðinginn
væri ósakhæfur vegna ofsóknar-
geðklofa. Skýrt var frá meginnið-
urstöðum þeirra í desember.
Heilaþveginn ofstækismaður
Þrjár skýrslnanna eru eftir geð-
lækninn Randi Rosenqvist sem
kemst að þeirri niðurstöðu að
fjöldamorðinginn sé ekki ósakhæfur
vegna geðveiki. Hún rekur „af-
brigðilegar yfirlýsingar“ hans til
þess að hann sé heltekinn af kenn-
ingum samtaka, sem berjast gegn
auknum áhrifum íslams í Evrópu,
og lýsir honum sem heilaþvegnum
félaga í öfgasamtökum. „Hann hef-
ur byggt hugmyndir sínar að miklu
leyti á bresku, eða ensku, hreyfing-
unni og hefur ekki haft samband við
Norðmenn með sömu hugmyndir.“
Rosenqvist segir að fjöldamorð-
inginn lýsi prísundinni sem „leik-
skóla“. Hann noti æfingasal
fangelsisins til að lyfta lóðum, lesi
bækur um sögu landa, spili tölvu-
leik þar sem hann byggi borg og
horfi á kvikmyndir. „Hann getur
hringt bjöllu til að fá neftóbak eða
sígarettur,“ skrifar Rosenqvist.
Geðlæknirinn segir að fjölda-
morðingjanum hafi þótt það fyndið
að geðlæknar skyldu hafa komist að
þeirri niðurstöðu að hann væri
ósakhæfur vegna ofsóknarbrjál-
æðis.
bogi@mbl.is
Fangelsið eins
og „leikskóli“
Fjöldamorðinginn iðrast einskis
Vonast eftir byltingu
» Morðinginn telur að fjölda-
morðin leiði til byltingar í Noregi.
» „Hann segist vona að átökin í
samfélaginu séu skýrari núna,“
segir í skýrslu geðlæknis um
fangann.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á
gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í
eindaga til og með 16. janúar 2012, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og
með 5. janúar 2012 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið
hafa í eindaga til og með 16. janúar 2012, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og
tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á
gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi,
launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og
aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar
sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af
ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteigna-
gjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum
skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins
og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar,
sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald,
búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í
framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu
skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan
kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert
fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til
að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af
ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem
lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir
gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði
þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki
í þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. janúar 2012
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
OPIÐ HÚS
Viðjugerði 8 - Reykjavík
LAUST STRAX
Glæsilegt bjart og stílhreint 290 fm einbýlishús
á þessum frábæra stað í hjarta borgarinnar.
Opið hús verður þriðjudaginn 17. janúar milli kl. 12:00 og 13:00
og aftur sama dag milli kl. 17:00 og 18:00