Morgunblaðið - 17.01.2012, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2012
✝ Birgir Snæ-fells Elín-
bergsson fæddist á
Akranesi 28. mars
1951. Hann lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 3.
janúar 2012. For-
eldrar hans eru
Fjóla Unnur Hall-
dórsdóttir, f. 24.
október 1922 og
Elínbergur E.
Guðmundsson, f. 8. apríl
1920, d. 22. mars 1998. Syst-
kini Birgis eru: Ragnar, f. 28.
febrúar 1943 og Lára Halla, f.
14. nóvember 1949. Hálf-
bróðir Birgis, samfeðra, er
Benedikt, f. 9. september
1941.
Birgir bjó með Hugrúnu
Þórarinsdóttur frá 1981. Hún
lést 4. október 2009. Hugrún
starfaði hjá Pósti og síma.
Þau bjuggu fyrst á Skarðs-
braut 4 á Akra-
nesi, en áttu sitt
annað heimili að
Maríubaugi 133 í
Reykjavík. Birgir
stundaði ýmis
störf framan af
starfsævinni, m.a.
sjómennsku hjá
Runólfi Hallfreðs-
syni ehf. Árin
1991-1996 var
hann vallarstjóri
á Jaðarsbökkum og 1997 til
2007 starfaði hann hjá Olíu-
dreifingu sem bifreiðarstjóri
og umsjónarmaður olíu-
birgðastöðva og frá 2007
starfaði hann sem bifreið-
arstjóri hjá ýmsum aðilum. Þá
var Birgir formaður Jaðars,
félags stjórnenda á Akranesi
til dánardags.
Útför Birgis Snæfells fer
fram frá Akraneskirkju í dag,
17. janúar 2012 kl. 14.
Elsku besti Biggi okkar.
Eins sárt og það tekur í
hjörtun okkar að hugsa til þess
að kveðjustundin við þig sé
runnin upp, langt fyrir aldur
fram, elsku besti frændi, þá er
það okkur hugarró að vita til
þess að þjáningar líkama þíns
eru ekki lengur að baga þig,
elsku karlinn, okkar ásamt því
að við vitum að þú ert kominn í
góðan faðm ástvina og þá ekki
síst ástarinnar þinnar, hennar
Hugrúnar, og Ella afa.
Við erum ótrúlega þakklát
fyrir að hafa verið svo gæfurík
að eiga þig að og yljum okkur
nú við allar þær yndislegu, fal-
legu, hláturgefandi og skemmti-
legu minningar sem við urðum
svo rík að eignast með þér.
Þú ert og munt ávallt vera í
hjörtum okkar besti frændi í
heimi!
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Við biðjum góðan Guð að
vera stoð og stytta í lífi ömmu,
mömmu, Ragnars og okkur
hinna á þessum tímamótum í lífi
okkar allra sem þekktum þig,
elsku Biggi.
Ástarþakkir fyrir allt,
Unnur Elín, Björn Þór,
Bjarndís Fjóla, Helga Þór-
dís, Berglind Ósk, Birgitta
Lára og Ragna Steina.
Rússíbanareið er orðið sem
lýsir best síðustu mánuðum í lífi
Bigga frænda. Oft voru sporin
inn á Landspítalann mjög þung.
Þakklæti er okkur ofarlega í
huga. Þakklæti fyrir alla þá að-
hlynningu, stuðning, alúð og
vináttu sem starfsfólk Land-
spítalans veitti bæði honum og
okkur aðstandendum. Þakklæti
fyrir ómetanlega vináttu Bigga
frænda og allar samverustund-
irnar bæði í gleði og sorg.
Við eigum margar góðar
minningar í hjörtum okkar en
þó sérstaklega frá síðastliðnu
sumri bæði heima og í sumarbú-
staðnum. Um jólin söknuðum
við þess að hafa þig hjá okkur.
Núna er söknuðurinn ennþá
meiri, en minningin um góðan
dreng lifir áfram.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Bjarndís Fjóla og
Árni Reimarsson.
Góður vinur og félagi, Birgir
Elínbergsson, hefur kvatt okk-
ur.
Við félagar hans í Verkstjór-
afélagi Akraness (síðar Jaðar,
félag stjórnenda á Akranesi),
kunnum Birgi miklar þakkir
fyrir það hvernig hann náði að
lífga okkar félag við, eftir að
sumarhús okkar í Húsafelli fór
forgörðum. Birgir var mikill
baráttumaður og tók vel á er á
móti blés. Hann stóð fyrir kaup-
um á fellihýsi til þess að félagar
og þeirra fjölskyldur gætu kom-
ist í útilegur og síðar sá hann
um kaup á húsbíl sem félagar
gátu fengið afnot af.
Hugur Birgis stóð hærra,
hann vildi að félagið eignaðist
sumarhús að nýju. Hann vann
að þessum málum af miklum
dugnaði með öðrum í stjórn
Jaðars. Er Birgir fékk augastað
á sumarhúsi í landi Kambshóls í
Hvalfjarðarsveit, héldu engin
bönd. Birgir gekk frá kaupum á
þessu glæsilega húsi og fékk í
lið með sér marga félaga til að
gera bústaðinn kláran til út-
leigu fyrir félagsmenn. Í ágúst
á liðnu ári var Birgir að bera á
bústaðinn fúavara með öðrum
félögum í stjórninni. Birgir
sagði þá góð orð sem eru okkur
minnisstæð er vorum með hon-
um. Þessi orð voru: „Ég mun
fylgjast með ykkur.“ Líklega
hefur okkar félagi vitað meira
um sinn sjúkdóm en við.
Birgir var gamansamur, en
hafði jafnframt ákveðnar skoð-
anir á hlutunum og fylgdi þeim
eftir. Hann bar hag þessara
verkefna og félagsins mjög fyrir
brjósti og sýndi ódrepandi
dugnað þrátt fyrir veikindi sín.
Er við félagar hans komum í
heimsókn til hans á sjúkrabeð-
inn var alltaf fyrsta spurning
Birgis: Hvernig gengur með bú-
staðinn okkar í Kambshóls-
landi? Hann var vel með á nót-
unum til loka, þrátt fyrir
erfiðan sjúkdóm sem hann varð
að lokum að láta undan.
Í Norðurási 9 í landi Kambs-
hóls í Hvalfjarðarsveit er þessi
bústaður. Þar sló hjarta þessa
góða félaga, sem nú er sárt
saknað og eigum við honum
mikið að þakka fyrir hans for-
ystu í félaginu.
Við félagar í stjórn Jaðars,
félags stjórnenda á Akranesi,
sendum móðir Birgis og systk-
inum og öðrum aðstandendum
samúðarkveðjur.
F.h. stjórnar,
Einar Bjargmundsson
varaformaður.
Birgir Snæfells
Elínbergsson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÞÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn
2. janúar.
Útförin verður frá Áskirkju miðvikudaginn
18. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Þórarinn J. Óskarsson, Jóhanna Kristjánsdóttir,
Elín Óskarsdóttir, Jón Leví Tryggvason,
Pálína G. Óskarsdóttir, Rafn Sigurðsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
ÞÓRLEIF SIGURÐARDÓTTIR
iðnrekandi,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Haukanesi 18,
verður jarðsungin frá Garðakirkju fimmtu-
daginn 19. janúar kl. 15.00.
Jón Hjartarson, María Júlía Sigurðardóttir,
Sigurður Hjartarson, Edda Sigríður Sigfúsdóttir,
Gunnar Hjartarson, Sigríður Baldursdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, stuðning og hlýhug við andlát
og útför elskulegu móður minnar, dóttur,
systur og mágkonu,
JÓNÍNU ÁSMUNDSDÓTTUR,
Alexandriu í Virginíuríki,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 6. desember.
Guð blessi ykkur öll.
Maríanna Sif Jónsdóttir,
Kristín Ögmundsdóttir, Sigurjón Kristinsson,
Ásmundur Leifsson, Petra Stefánsdóttir,
Pálína Ásmundsdóttir, Jón Ásmundur Pálmason,
Bára Inga Ásmundsdóttir, Jón Sveinn Björgvinsson,
Kristinn Þór Sigurjónsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
ODDS C.S. THORARENSEN
fv. apótekara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild A-6 á Landspítala
Fossvogi fyrir góða umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur öll.
Unnur Long Thorarensen,
Ragnheiður Katrín Thorarensen,
Elín Thorarensen, Úlfar Örn Friðriksson,
Unnur Alma Thorarensen, Sindri Sveinbjörnsson,
Stefán Thorarensen, Ástríður Thorarensen,
Baldvin Hafsteinn Thorarensen, Ásta Michaelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
SOFFÍU GUÐMUNDSDÓTTUR,
tónlistarkennara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og
heimilisfólki á Droplaugarstöðum fyrir sam-
fylgdina síðustu ár.
Jón Hafsteinn Jónsson,
Guðmundur Karl Jónsson,
Olga Björg Jónsdóttir,
Nanna Ingibjörg Jónsdóttir,
Jón Ingvar Jónsson, Brigitte M. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR GÍSLASON,
sem lést 7. janúar síðastliðinn, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
19. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Erna Adolphsdóttir.
✝
Alúðarþakkir færum við þeim fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför
RAGNARS SVEINSSONAR
frá Siglufirði,
Fjóluhlíð 1,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 3. hæð
Hjúkrunarheimilisins Sólvangs, Hafnarfirði, fyrir frábæra
umönnun sl. 6 ár, og starfsfólki sjúkrahúss Siglufjarðar þökkum
við hlýju og aðhlynningu sumarið 2010.
Erla Þórðardóttir,
Fríða, Þórður Axel, Elísabet, Ragnhildur, Sveinn,
tengdabörn, barnabörn og langafabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
BJARNI GUÐMANN ÁGÚSTSSON,
til heimilis að Víðigerði 19, Grindavík,
andaðist laugardaginn 14. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Lára Karen Pétursdóttir.
✝
Innilegustu þakkir til vina og vandamanna
fyrir auðsýnda vináttu og samúð vegna and-
láts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
HELGA HJARTARSONAR,
Hlíf 2,
Ísafirði,
er lést á FSÍ 9. nóvember 2011.
Guðný M. Einarsdóttir,
Hjörtur Ágúst Helgason, Albína Helgason,
Þór Ólafur Helgason, Álfhildur Jónsdóttir,
Sigurrós Emma Helgadóttir, Ómar Valdimarsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HERFRÍÐUR VALDIMARSDÓTTIR,
Hebba í Brekku,
Skagafirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
fimmtudaginn 12. janúar, verður jarðsungin
frá Löngumýrarkapellu í Skagafirði
laugardaginn 21. janúar kl. 14.00.
Valdís Óskarsdóttir,
Magnús Ingi Óskarsson, Signý Jóhannesdóttir,
Rósa Margrét Hjálmarsdóttir, Jón Halldór Björnsson,
Erla Hlín Hjálmarsdóttir, Davíð Bjarnason,
Óskar Ingi Magnússon, Renata S. Blöndal,
Jóhannes Páll Magnússon,
Árni Freyr Magnússon
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HÖRÐUR SUMARLIÐASON,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi föstudaginn 13. janúar.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 25. janúar kl. 13.00.
Erna Hartmannsdóttir,
Jenný Kamilla Harðardóttir,
Oddný Guðbjörg Harðardóttir, Eiríkur Hermannsson,
Dagný Magnea Harðardóttir, Bjarni Reykjalín,
Heiða Björk Reimarsdóttir, Magnús Karlsson,
Kristín Helga Reimarsdóttir, Sigurvin Einarsson,
Linda Sólveig Reimarsdóttir, Rúnar Guðjónsson,
Sigurlína Anna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.