Morgunblaðið - 30.01.2012, Síða 4

Morgunblaðið - 30.01.2012, Síða 4
Snjór í Reykjavík Í færð sem þessari fjölgar umferðaróhöppunum. Morgunblaðið/Kristinn BAKSVIÐ Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Eitt af því sem slæma færðin sem hefur ráðið ríkjum á höfuðborg- arsvæðinu undanfarið hefur haft í för með sér er töluverð aukning um- ferðaróhappa. „Ég held að orðið hafi 80-90 árekstrar í síðustu viku. Í venjulegu árferði eru þeir í kringum 60 þannig að þetta er um 40% aukn- ing,“ segir Ómar Þorgils Pálmason hjá Aðstoð & öryggi ehf. sem er með Árekstur.is. „Þetta er búið að vera svona frá því þessi tíð byrjaði,“ segir hann og á þá við síðustu tvo mánuði eða svo. Man ekki eftir öðru eins Ómar man ekki eftir öðru eins. „Ég man ekki eftir svona löngu tímabili, svona miklum vetri,“ segir hann en fyrir utan að hafa verið með Árekstur.is í fimm ár starfaði hann í 20 ár hjá lögreglunni í Reykjavík. Aðstoð & öryggi kemur að í kringum 70% af öllum umferð- aróhöppum á höfuðborgarsvæðinu, þannig að þessar tölur gefa góða mynd af ástandinu. „Þetta er búið að vera voðalega mikið nudd hingað og þangað. Fólk treður sér og er óþolinmótt í um- ferðinni,“ segir hann um eðli óhapp- anna. Er fólk óvant að keyra við vondar aðstæður? „Bæði og, fólk er ekki vant þessu tíðarfari og tekur ekki heldur beint tillit til þess að það er að keyra í frekar slæmum aðstæðum,“ segir hann. Hann verður líka var við að fólk keyri um á lélegum dekkjum. „Það sem við höfum séð er að fólk skiptir ekki yfir á vetrardekkin eins mikið og það gerði fyrir nokkrum árum,“ segir hann en augljóslega eru meiri líkur á því að lenda í óhappi á sumardekkjum í snjó og hálku. „Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Ég sé búnað á bílum sem ég hef ekki séð áður, ekki einu sinni að sumarlagi, dekkin eru orðin svo slit- in. Þetta er ekki algilt en orðið svo- lítið mikið um það.“ Sorgarsögur á hverjum degi Hann segir það jafnan vera áfall fyrir fólk að lenda í umferðaróhappi. „Það skiptir engu máli hvort það er stórt eða lítið, áfallið er alltaf jafn mikið, segir hann. „Fólk talar líka meira um versn- andi kjör sín. Við heyrum sorg- arsögur á hverjum einasta degi, oft á dag. Stór hluti af því sem við er- um að gera er í raun og veru al- menn sálræn skyndihjálp. Mörgum líður virkilega illa. Þegar fólk fær einhvern til að hlusta grípur það tækifærið fegins hendi.“ Ekki efni á viðgerð Ómar hefur heyrt margar sögur af því að fólk hafi hreinlega ekki efni á því að láta gera við bílana sína eða halda þeim skikkanlega við. Hann veit jafnframt dæmi þess að ef fólk lendir í órétti og er með minniháttar skemmda bíla þá láti það ekki gera við bílana heldur spari kostnaðinn við sig. Hann veit ekki dæmi þess að fólk leggi bíln- um en frekar að það æsi sig ekkert yfir beyglaðri hurð eða bretti. Ómar segir eina sögu úr umferð- inni. „Stúlka sem lenti í óhappi var búin að vera lengi að safna fyrir bílnum. Hún bjó í einu herbergi með tveimur dætrum sínum og svo á einu augnabliki eyðilagðist bíllinn. Hún var búin að leggja mikið á sig fyrir þennan bíl sem var í ódýrari kantinum. Maður finnur mikið til með fólki í þessum aðstæðum,“ seg- ir hann. „Við erum uppfullir af álíka raunasögum.“ Nauðsynlegt er að fara varlega, keyra eftir aðstæðum og gefa sér góðan tíma, segir Ómar spurður um góð ráð í umferðinni. „Fólk á ekki að vera að flýta sér í þessari færð sem er búin að vera,“ segir hann og það sé betra að koma fimm mín- útum of seint en að lenda í árekstri. Aldrei sé góð vísa of oft kveðin. Um 40% fleiri árekstrar  Ökumenn óþolinmóðir í umferðinni og troða sér  Bíleigendur spara sér viðgerðarkostnað og keyra um með beyglurnar  Bílar sem lenda í óhöppum jafnvel á mjög slitnum sumardekkjum 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 2012 Erlendur Ólafsson er verkstjóri hjá GB tjónaviðgerðum þar sem hann hef- ur starfað síðastliðin 14 ár. Hann segir meira hafa verið að gera en venju- lega á verkstæðinu að undanförnu. „Það er augljós aukning þessa síð- ustu tvo mánuði. Tjónum fjölgar í takt við verra veður og færð.“ Aðspurður segist hann gruna að fólk veigri sér í einhverjum tilfellum við að láta gera við bílinn. „Það sést á verkefnastöðu hjá okkur og öðrum bílaverkstæðum yfirleitt. Bílaflotinn eldist og fólk kippir sér síður upp við smá dældir. Bíllinn er kannski gamall og ef þetta truflar ekki notkun á bílnum er fólk ekkert endilega að láta laga það.“ Aukningin er í takt við veður eins og hefur alltaf verið, segir Erlendur. „Þetta er eins og á hverjum vetri. Sérstaklega þegar þetta kemur fyrir- varalítið, hálka að morgni til, þá er fólk óundirbúið,“ segir hann en bendir á að hópur bíleigenda eigi jafnvel eftir að koma með bílinn í viðgerð. „Það er erfitt að segja til um þetta nákvæmlega. Margir láta ekki gera við bílinn sinn fyrr en mörgum mánuðum síðar ef þetta er minniháttar tjón. Þetta getur skilað sér til viðgerðarmanna löngu seinna.“ Venjulegar vetrarannir FÓLK BÍÐUR MEÐ AÐ LÁTA GERA VIÐ BÍLINN Agnar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri tjónasviðs VÍS, tek- ur undir orð Ómars hjá Aðstoð & öryggi. „Ég get staðfest þetta. Ég var einmitt að skoða þetta fyrir helgina. Það hefur verið mun meira um árekstra hérna að und- anförnu. Mér sýnist á skráning- unum hjá okkur að þetta sé meira svona nudd. Það eru ekki búin að vera stærri slys að sjá þegar maður horfir í tölurnar. Aukningin er í þessu nuddi,“ segir hann og bendir á að þegar göturnar hafi verið orðnar svona þröngar eins og í síðustu viku hafi ekki þurft mikið til, ekki síst þegar hálkan sé svona mikil undir. Nudd en ekki stærri slys FLEIRI TJÓNATILKYNNINGAR HJÁ VÍS Morgunblaðið/Eggert Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Um 160-170 manns eru nú við vinnu við Búðarhálsvirkjun og er unnið bæði við jarðgangagerð og steypu- mannvirki. Að sögn Gísla Krist- óferssonar, yfirverkstjóra Ístaks, hefur tekist að halda vinnu áfram við virkjunina og standast verkáætl- un þrátt fyrir að óvenjusnjóþungt hafi verið á svæðinu og mikið og langvarandi frost með litlum hléum. „Það eru viss vandkvæði þegar við höfum svona mikinn snjó og kulda en í heildina hefur þetta geng- ið ágætlega. Það er steypuvinnan sem er helst erfið við þessar veð- urfarsaðstæður en hún hefur samt gengið nokkuð vel eftir,“ segir Gísli. Stórum áföngum virkjunarinnar á að skila í vor og í byrjun sumars eins og stöðvarhúsinu svo að véla- verktaki komist að með sinn búnað og inntaksmannvirkinu sem verk- takar þurfa að komast að í lok apríl. „Við gerum okkur miklar vonir um að það náist. Það birtir nú öll él upp um síðir,“ segir Gísli. Hann segir menn ekki láta óblíð- ar aðstæður hafa áhrif á sig. Virkj- unarframkvæmdirnar sjálfar séu snúin og flókin verkefni og veturinn sé því kannski ekki alltaf það erf- iðasta. „Auðvitað er þetta mikil viðbót- arvinna sem ekki þyrfti að koma til ef þessir verkáfangar stýrðust inn á sumar en svona er þetta bara. Þetta eru hörkukarlar sem vinna þarna og láta þetta ekkert á sig fá,“ segir hann. Menn harka af sér vetur- inn við Búðarhálsvirkjun  Óvenjusnjóþungt og kalt á framkvæmdasvæðinu í vetur Morgunblaðið/RAX Virkjun Frá framkvæmdum í haust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.