Morgunblaðið - 21.03.2012, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 Fulltrúar nýskipaðs ungmennaráðs Sandgerðisbæjar mættu á fund bæjarstjórnar sl. mánudag og tóku við erindisbréfi ráðsins. Hlutverk ráðsins, sem í sitja ungmenni á aldrinum 15-18 ára, er að vera frí- stunda-, forvarna- og jafnréttisráði til ráðgjafar um málefni ungs fólks og getur það komið með tillögur um hvernig best sé að standa að forvarnarmálum barna og ung- menna, hvernig æskilegt sé að haga starfsemi þeirra stofnana bæjarins sem ungmenni sækja og um önnur þau mál sem varða hagsmuni barna og ungmenna. „Þetta er mjög spennandi,“ segir Særún Sif Ársælsdóttir, sem situr í ráðinu. Hún segir það hafa verið áhugavert að sitja bæjarstjórn- arfund. „Það var svolítið formlegt og ólíkt því sem ég hef átt að venj- ast hingað til,“ segir hún en Særún, sem stundar nám við Fjölbrauta- skóla Suðurlands, hefur verið öflug í félagsstarfi undanfarin ár og sat m.a. í nemendaráði þegar hún var í grunnskóla. Aðspurð hverju þau hyggjast beita sér fyrir segir Særún það ekki hafa verið rætt enn, enda nýbúið að skipa ráðið, en það muni skýrast á næstunni. Auk fyrrgreindra atriða getur ungmennaráðið einnig gert tillögu að þátttöku ungmenna í við- burðum á vegum bæjarins. Áhugavert að sitja bæjarstjórnarfund Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Sjö ungmenni í Sandgerði skipuð í sérstakt ungmennaráð Saman Sunneva Ósk Þóroddsdóttir, Harpa Birgisdóttir, Grétar Karlsson, Ágúst Þór Sigfússon, Davíð Smári Árnason, Halldór Jón Grétarsson og Særún Sif Ársælsdóttir skipa ungmennaráð Sandgerðisbæjar. Ingvar P. Guðbjörnsson Hallur Már Hallsson „Þessi ákvörðun kemur ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti vegna þess að hún á sér langan aðdraganda,“ sagði Svandís Svavarsdóttir um- hverfisráðherra um áhrifin sem ákvörðun hennar um að fella úr gildi sérákvæði í reglugerð vegna eldri sorpbrennslustöðva hefur á umrædd sveitarfélög. Ljóst er að sorp- brennslustöðvarnar á Kirkjubæjar- klaustri og í Vestmannaeyjum þurfa frá og með næstu áramótum að upp- fylla sömu skilyrði og aðrar sorp- brennslustöðvar á EES-svæðinu. Svandís segir að umræðan hafi í byrjun komið upp vegna díoxíð- mengunar frá sorpbrennslustöðvum og að hún hafi tjáð sig mjög skýrt um málin strax í upphafi um að hún teldi ástæðulaust að Ísland héldi í undanþáguákvæði frá þessum al- mennu reglum. „Við erum í raun og veru að leggja af undanþáguna og fara þá inn í það umhverfi að við gerum stífustu kröf- ur fyrir íbúa þessa lands og þar með talið þessara sveitarfélaga að því er varðar loftmengun,“ sagði Svandís. Aðspurð hvort til greina kæmi að mæta kostnaði sveitarfélaganna við að uppfylla reglugerðina með ein- hverjum hætti sagði Svandís: „Það er í sjálfu sér ekki á forræði um- hverfisráðuneytisins.“ Hún sagði þó sjálfsagt einhverjar leiðir mögu- legar í þeim efnum og vísaði sem dæmi á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Svandís sagði viðfangsefni fram- tíðarinnar „að sveitarfélögin og ríkið geti komið til móts við sívaxandi kröfur í sorpmálum, bæði aukna flokkun og að lágmarka urðun“. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær spurði Ragnheiður El- ín Árnadóttir ráðherrann um málið. Þar sagði Svandís að tillagan um að fella sérákvæðin út hefði komið frá Umhverfisstofnun á fyrstu dög- um ársins 2011 í ljósi umræðunnar þá um díoxíðmengun. Hún sagði jafnframt að hér væri í fyrsta skipti verið að setja fram heildstæða landsáætlun um málefni sem tengd- ist meðhöndlun úrgangs. Svandís sagði ráðuneytið ekki hafa skoðun á fjölda urðunarstaða og sorp- brennslustaða en þó sýndist sér að sorpbrennslum myndi fækka og sorpurðunarstaðir myndu stækka. Umhverfisráðherra sagði einnig að hún sæi lífrænan úrgang fara í sérstakan farveg og að endurvinnsla yrði aukin. Ófullkomnar sorp- brennslustöðvar hlytu að heyra sög- unni til. Ráðherra nefndi árangur Eyjamanna og sagði: „Það er veru- lega mikið fagnaðarefni að Vest- mannaeyingum hefur gengið að snúa við blaðinu í þeim efnum og nálgast úrgangsmálin af mikilli ábyrgð. Hér eftir sem hingað til er það svo að sorpmál eru á ábyrgð sveitarfé- laganna,“ sagði Svandís. Almennar reglur gildi hér  Rekstur sorpbrennslustöðva í óvissu í árslok  Ráðherra segir sorpmálefni á ábyrgð sveitarfélaga  Stífustu kröfur fyrir íbúa landsins varðandi loftmengun „Hér eftir sem hing- að til er það svo að sorpmál eru á ábyrgð sveitarfélaganna.“ Svandís Svavarsdóttir Hin árstíðabundna inflúensa er á hröðu undanhaldi á landinu eftir að hafa náð hámarki sínu í 8. viku ársins, þ.e. vikuna 19.-25. febrúar. Þá bárust sóttvarnalækni tilkynn- ingar um 380 tilfelli inflúensulíkra einkenna en í síðustu viku voru þau 174. „Í viku eitt voru þetta 38 tilfelli og svo fór þetta í hæstu hæðir í áttundu viku, í 380 tilfelli, en hefur síðan verið að dala,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir. Hjá Læknavaktinni í Kópavogi var toppnum náð í 7. viku og aftur í 10. viku en í báðum vikum sóttu 104 ein- staklingar vaktina með inflúensulík einkenni. Þeim fækk- aði hins vegar í 89 í 8. viku og voru 96 í 9. viku. Haraldur segir líklega tilviljun að topparnir hafi verið tveir, enda hafi ekki nema 27 sótt vaktina með flensueinkenni í síð- astliðinni viku. Sóttvarnalæknir segir að sú flensa sem sótt hafi á landsmenn undanfarnar vikur sé af hinum hefðbundna H3N2-stofni og lítið hafi farið fyrir svínaflensunni sem gekk hér yfir 2009. „Við höfum nánast ekkert séð af nýja svínaflensustofn- inum, hann sést bara ekki,“ segir Haraldur en of snemmt sé þó að fagna. „Svínaflensan gæti auðvitað komið í kjöl- farið á árstíðabundnu flensunni en það er óvíst, við erum svo ofboðslega vel bólusett gegn þeim stofni,“ segir hann. Það sem af er ári hafa 2.017 tilfelli inflúensulíkra ein- kenna verið tilkynnt en þau voru 10.299 allt árið 2009. holmfridur@mbl.is Tilfellum inflúensulíkra einkenna fækkar mjög Morgunblaðið/Árni Sæberg Flensa Aðeins 27 leituðu til Læknavaktarinnar með flensueinkenni í síðustu viku en 104 vikuna á undan.  Voru flest 380 í 8. viku árs- ins en 174 í síðastliðinni viku „Mér finnst vel koma til greina að skoða þetta en það hefur ekki verið sett upp vinna utan um það,“ sagði Oddný G. Harð- ardóttir fjár- málaráðherra að- spurð hvort til greina kæmi að taka upp skattaafslátt fyrir þá sem eiga um langan veg að fara til og frá vinnu daglega, en slíkt kerfi tíðkast bæði í Noregi og í Danmörku. „Við þurfum auðvitað að fara yfir þessi mál vegna þess að með hækk- andi bensín- og olíuverði skapast alls konar svona vandamál og mér finnst sjálfsagt að við skoðum það.“ Ekki vitað hvaða fyrirtæki önn- ur verði seld í stað bankanna Oddný var spurð nánar út í um- mæli sín um síðustu helgi þar sem hún nefndi að til greina kæmi að selja aðrar ríkiseignir eða innleysa arðgreiðslur frá ríkisfyrirtækjum til að uppfylla tekjumarkmið ríkissjóðs á yfirstandandi fjárlagaári í stað sölu hlutabréfa í bönkunum. „Við erum ekki búin að setja þetta niður,“ sagði Oddný. „Það eina sem liggur fyrir er að við þurfum að uppfylla þessi tekju- markmið og við verðum og munum finna leiðir til þess,“ sagði Oddný. ipg@mbl.is Skatta- afsláttur skoðandi Oddný G. Harðardóttir  Óljóst hvaða eignir verði hægt að selja Skrofan er kom- in, Ingvar A. Sig- urðsson í Eyjum sá eina við Bjarnarey í gær. Í fyrra kom hún ívið seinna, þær fyrstu sáust þá 29. mars, að sögn Ingvars. Skrofur eyða ævinni að mestu á sjó og koma nær eingöngu í land til að verpa, það gera þær hér eingöngu í Eyjum. Talið er að pörin séu nokk- ur þúsund. Þær eru svartar að ofan en hvítar að neðan, vænghaf getur orðið nær 90 sentimetrar. Skrofan mætt í Eyjum Skrofa Snemma á ferð í Eyjum. Veldu einhverja tíu ávexti á ávaxtamarkaði Krónunnar – fyrst og fre mst ódýr! og þú borgar...

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.