Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 11
Tískuvika Fyrirsæta baksviðs á tískusýningu Stinu Goyaback. Fjölbreyttur hópur Fjórða tölublaðið af Bast Ma- gazine kom út nú í febrúar og hið næsta kemur 15. maí. Hópurinn í kringum tímaritið hefur stækkað og við það starfar nú fólk frá ýms- um löndum. Í hópnum er m.a. að finna Dani, Svía, Rússa og Finna. Á samnefndri heimasíðu er síðan bloggað um allt milli himins og jarðar. „Við fylgjumst vel með öllu því sem er að gerast í lista- og menn- ingarlífinu. Við förum t.d reglulega til London, Parísar og svo til Ís- lands. Við tökum einnig virkan þátt í því sem er að gerast hérna í Kaupmannahöfn. Það má því segja að við sækjum okkar innblástur héðan og þaðan. Við erum þakk- látar fyrir dyggan lesendahóp okk- ar sem vex og dafnar og hafa allir tekið okkur mjög vel,“ segir Haf- rún. Tímaritið og bloggið má finna á vefslóðinni http://bast-magaz- ine.com. MAKE by Þorpið kallast átaksverkefni í atvinnusköpun á sviði vöruhönnunar og listiðnaðar á Austurlandi. Verkefnið fór af stað fyrir tveimur árum með stuðningi þriggja stoðstofnana á Austurlandi; Þekkingarnets, Þróunarfélags og Menningarráðs Austurlands. Er markmiðið að byggja upp tengslanet, ráðgjöf, mennt- un og þjónustu fyrir vöruþróun og markaðssetningu og leggja þannig grunn að hönnun sem atvinnugrein á Austurlandi. Hráefni frá svæðinu „Samfélagið fyrir austan hefur tekið þessu verkefni ótrúlega vel og það hefur vakið mikinn áhuga. Þetta hefur gerst skref fyrir skref en áhuginn á að taka þátt eykst sífellt og er verkefnið farið að spyrjast út. Þann- ig var t.d. hópur frá Royal College of Art frá London með vinnustofu fyrir austan síðastliðna helgi. Verk- efnið hæfir líka tíðarandanum vel og nú vonumst við til að fólk verði áfram duglegt að taka þátt,“ segir Karna Sigurðardóttir Ýmislegt hefur sprottið út úr verkefninu en miðað er við að í því geti allir hönnuðir, hönnunarhugsuðir og frumkvöðlar tekið þátt. Áhersla er lögð á að nota hráefni af Austurlandi, hreindýraafurðir, við úr Hall- ormsstaðarskógi, þæfða ull úr frá Ullarvinnslu frú Láru á Seyðisfirði, ál og stein frá Borgarfirði eystri. Hvert verkefni hefur sína sýn en hugmyndafræðin er að búa til kjöraðstæður fyrir hönnuði á Íslandi. Meðal verkefna sem styðja við hugmyndafræði MAKE by Þorpið á Austurlandi eru vöruþróunarverk- efnið Norðaustan 10 og Fish Factory – Sköp- unarmiðstöð á Stöðvarfirði svo aðeins fáein séu nefnd en nánar má lesa sér til um verkefnið á www.make.is. Einnig verður verkefnið kynnt á Hönnunarmars í Brims húsi, Geirsgötu 11, en sýningin verður opnuð klukkan 16 fimmtudaginn 22. mars. Vöruhönnun og listiðnaður á Austurlandi MAKE by Þorpið á Hönnunarmars DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 Í kvöld klukkan átta verður heimspekikaffi í Gerðubergi undir yfirskriftinni Grín/Alvara. Þar ætlar Gunnar Her- sveinn að stjórna umræðum um húmor og leikkonan Helga Braga Jónsdóttir verður gestur, en hún hefur tekið þátt í ótal gamanþáttum í sjónvarpi, m.a. Fóstbræðrum og Áramótaskaupinu. Á bloggi Gunnars Hersveins má m.a. lesa eftirfarandi um fyrirbærið húmor: Engum hefur tekist að skilgreina húmor eða gera grein fyrir kímnigáfunni, þótt margir hafi gert góðar og nytsam- legar tilraunir og jafnvel smíðað viðamikil kerfi í þeirri við- leitni. Gleði og hlátur eiga sér sjálfstætt líf óháð kímni- gáfunni og fasta búsetu í manninum. En þau eru jafnframt fylgifiskar kímninnar. Hlátur veit þó ekki alltaf á gott því fátt óttast sá hrokafulli og þrjóski meira en háð og hlátur annarra. Húmor þræðir króka og kima mannlífsins, svo virðist vera sem enginn áfangastaður sé honum óviðkom- andi. Hann er utan marka og innan, siðlaus og siðlegur, líkur kitli og hnífstungu. Óvæntur. Lífið er stutt ef kímni- gáfuna skortir, því húmor er lækning og hlátur lengir lífið og gleðin er fjörefni hugans. Ein þekktasta kenningin um húmor snýst um að grínið losi um uppsafnaða spennu í líkama og sál. Húmor getur tekið undir staðal- ímyndir, hann get- ur viðhaldið kúg- un. En hann getur líka verið þáttur til að brjóta niður harðstjórn. Húmor getur verið viðeigandi eða óviðeigandi, grófur og góðlát- legur, meiðandi og græðandi. Hann getur opinberað kyn- þáttahatur eða hatur á konum eða körlum. Hann getur líka verið áhrifarík samfélagsgagnrýni. Húmor getur verið ógn, svo hættulegur að hann hefur verið kenndur við djöf- ulinn (fyrr á öldum). Kímnigáfan er sammannleg og ekki er ólíklegt að hver þjóð búi við sitt sérafbrigði af húmor. Ísland er bæði örríki og dvergríki. Hvernig er húmorinn þar? Hvað einkennir ís- lenska fyndni? Leitað verður svara við þessum spurn- ingum og öðrum á heimspekikaffinu í kvöld. Aðgangur er ókeypis. Grín og alvara – heimspekikaffi í Gerðubergi í kvöld Morgunblaðið/Ernir Hlátur Gleðin er fjörefni hugans og næsta víst að þessum stúlkum hefur liðið vel eftir þessa hláturroku. Húmor er lækning og hlátur lengir lífið Helga Braga Jónsdóttir Gunnar Hersveinn Safnaðu litlum listaverkum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.