Morgunblaðið - 21.03.2012, Side 17

Morgunblaðið - 21.03.2012, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 Íbúar skoða brak eftir sprengju- árás í borginni Karbala, sem er 110 km suður af Bagdad, höfuðborg Íraks. Minnst sextán slíkar árásir voru gerðar í borgum og bæjum víðsvegar um landið í gær og létu að minnsta kosti 43 menn lífið og 200 særðust. Tilræðismönnunum tókst ætlunarverk sitt þrátt fyrir mikinn viðbúnað vegna leiðtoga- fundar Arababandalagsins, sem haldinn verður í Írak í næstu viku. 43 féllu og 200 særðust í sprengjutilræðum Reuters Sextán árásir samtímis víðsvegar um Írak Karl Blöndal kbl@mbl.is Víðtæk leit fer nú fram í Frakklandi að raðmorðingjanum, sem myrti þrjú börn við skóla gyðinga í Tou- louse með köldu blóði á mánudag. Morðin hafa valdið miklu uppnámi í Frakklandi. Maðurinn myrti einnig kennara og telja yfirvöld að hann hafi einnig gert tvær árásir í liðinni viku og skotið þrjá fallhlífarhermenn til bana. Nemendur um allt Frakkland, op- inberir starfsmenn og þingmenn minntust fórnarlambanna með mín- útu þögn í gær. Nicolas Sarkozy, for- seti Frakklands, tók þátt í minning- arathöfn í skóla skammt frá minnisvarða um helför gyðinga í París. Hann sagði eftir athöfnina að yfirvöld hefðu engar vísbendingar um hver hefði verið að verki eða hvað byggi að baki. „Augljóslega er um gyðingahatur að ræða. Árásin á gyð- ingaskólann var glæpur gegn gyð- ingum,“ sagði hann. „En hermenn- irnir? Var það vegna þess að þeir eru komnir aftur frá Afganistan? Var það vegna þess að þeir tilheyra minnihlutahópum? Við vitum það ekki. Við verðum að fara mjög var- lega þar til einhver hefur verið hand- tekinn.“ Hermennirnir þrír voru franskir ríkisborgarar ættaðir frá Norður- Afríku og fjórði hermaðurinn, sem særðist í liðinni viku, var svartur og frá Frönsku Vestur-Indíum. Kennarinn hét Jonathan Sandler og var þrítugur. Morðinginn myrti einnig tvo syni hans, Arieh fimm ára og Gabriel fjögurra ára á götunni fyrir utan skólann. Hann fór síðan inn á skólalóðina og skaut Miriam Monsonego, sjö ára gamla dóttur skólastjóra Ozar Hatorah-grunn- skólans, til bana. Skömmu eftir athöfnina var farið með jarðneskar leifar fórnarlamba árásarinnar við skólann til Parísar og þaðan verða þær fluttar til Ísraels þar sem útför þeirra fer fram í dag. Claude Gueant, innanríkisráð- herra Frakklands, sagði í gær að verið gæti að árásarmaðurinn hefði tekið ódæðisverkið upp á myndavél, sem vitni sögðu að hefði verið fest á bringu hans. Sagði ráðherrann líkur vera á því að hann hygðist birta upp- tökuna á netinu. Engar vísbendingar hafa þó fundist á netinu. Lögregla hefur áhyggjur af að maðurinn muni láta til skarar skríða á ný. Öryggisgæsla hefur verið hert við skóla fyrir gyðinga og múslíma. Við- búnaður hefur verið aukinn í hér- aðinu Midi-Pyrenees þar sem glæp- irnir voru framdir og er nú einu stigi neðar en neyðarástand. Veitir það lögreglu víðtækar heimildir. Ísraelskir fjölmiðlar vara nú við auknum fordómum í Evrópu og sagði blaðið Jerusalem Post að frá 2000 hefði gyðingasamfélagið í Frakklandi orðið fyrir „umfangs- mesta ofbeldi gegn gyðingum frá helförinni“. Raðmorðinginn gengur enn laus  Franska lögreglan hefur engar vísbendingar um hver myrti þrjú börn og kennara á mánudag og þrjá hermenn í liðinni viku  Óttast að morðinginn fremji fleiri óhæfuverk  Talinn hafa myndað morðin Siðmenningin fær ekki bjargað okk- ur frá brjálsemi sumra manna. Nicolas Sarcozy Tóbaksiðnaðurinn er „miskunn- arlaus og slægur óvinur“, sagði Margaret Chan, yfirmaður WHO, heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, á ráðstefnu um tóbak og heilbrigði í Singapúr gær og skor- aði á ríkisstjórnir og almenning að snúa bökum saman gegn sígar- ettuframleiðendum. Hún sagði að tilraunir tóbaks- fyrirtækja til að grafa undan lög- mæti aðgerða yfirvalda til að vernda heilsu almennings jafngiltu afskiptum af innanríkismálum landa. Chan fordæmdi einnig tillögur fyrirtækjanna um að stofna sam- eiginlegar nefndir með stjórnvöld- um til að skipu- leggja herferðir gegn reykingum. „Ekki falla í þá gildru. Það er eins og að skipa nefnd með refum til að hafa um- sjón með hænsnabúinu,“ sagði hún. Í skýrslu, sem kynnt var á ráð- stefnunni í gær, var fullyrt að af- skipti tóbaksframleiðenda hefðu hægt verulega á hnattrænni her- ferð gegn reykingum. Samkvæmt tölum WHO láta sex milljónir manna lífið á ári vegna tóbaksnotkunar, þar af 600 þúsund vegna óbeinna reykinga. Talið er að sú tala geti verið komin upp í átta milljónir manna árið 2030. Miskunnarlaus og slægur óvinur Margaret Chan  Tóbaksframleið- endur gagnrýndir Allt benti til þess að Mitt Romney myndi vinna öruggan sigur í forkosningunum, sem haldnar voru í Illinois, vígi Baracks Obama Bandaríkja- forseta, í gær og færast þar með skrefi nær útnefningu repúblikana til framboðs í forsetakosningunum í nóvember. Romney hafði 15 prósentustiga forskot á Rick Santorum, sinn helsta keppinaut, samkvæmt skoðanakönn- unum. Romney hefur varið milljónum dollara í kosningabaráttuna í Ill- inois. Í auglýsingum hans er Santor- um sagður léttvægur í efnahags- málum og innanbúðarmaður í Washington. Santorum hamraði hins vegar á því að repúblikanar gætu aðeins sigrað Obama ef þeir veldu „sannan íhaldsmann“. Romney með forskot Mitt Romney  Hart barist í for- kosningum í Illinois

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.