Morgunblaðið - 21.03.2012, Síða 23

Morgunblaðið - 21.03.2012, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 ✝ SigurborgÓlafsdóttir fæddist á Svarfhóli í Hraunhreppi 26. febrúar 1916. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli þann 13. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ólafur Krist- jánsson frá Garðs- enda í Eyrarsveit bóndi, f. 23. september 1880, d. 7. júní 1963, og Ágústína Guð- mundsdóttir frá Litla-Fjalli í Borgarhreppi húsfreyja, f. 21. ágúst 1884, d. 21. desember 1965. Eldri systkini Sigurborgar voru Axel Adolf, f. 1909, d. 1993. Soffía, f. 1911, d. 2008. Yngri systkini Sigurborgar voru Hans Kristján, f. 1918, d. 1939, Stefán Geir, f. 1919, d. 1989, Karl Ágúst, f. 1923, d. 1999. Eftirlifandi er yngsta systir Sigurborgar, Sig- ríður f. 1927. Sigurborg ólst upp í Múlaseli í Hraunhreppi í Mýr- arsýslu en fluttist með fjölskyldu sinni að Álftatungukoti í Álfta- neshreppi. Þann 26. október árið gift Sigurjóni Magnússyni f. 1979, þeirra dætur eru Kristín Birna og Elísabet Hanna. 2) Hjördís Gréta f. 1943, gift Haf- steini Ingvarssyni f. 1936, þeirra börn eru a) Sigurborg f. 1962, d. 2000, hennar börn eru Bryndís Jóna sambýlismaður hennar er Ægir Örn, þeirra synir eru Gunnar Trausti og Stefán Logi- ,Hafsteinn Ingvar og Stefán Lynn. b) Trausti Már f. 1967, giftur Unu Kristínu f. 1970, þeirra börn eru Arnór Ingvi, Samúel Þór, Hjördís Lilja og Viktor Árni. c) Brynja f. 1973, gift Svani Má f. 1972, börn þeirra eru Anna Ingunn, Agnes María og Aron Trausti. 3) Ágústína Hlíf f. 1948, gift Kristófer Guð- mundssyni f. 1937, dóttir þeirrra er Ester K. Vigil f. 1974, gift Er- ick Vigil, hennar börn eru Davíð Már, Kristófer Jónatan, Ethan Alexander. Sigurborg og Trausti hófu búskap í Keflavík en fluttu til Reykjavíkur árið 1958 og bjuggu þar síðan. Útför Sig- urborgar verður gerð frá Ás- kirkju í dag, 21. mars 2012, og hefst athöfnin klukka 13. 1940 giftist Sig- urborg Trausta Jónssyni útgerð- armanni og verk- stjóra frá Vest- mannaeyjum, f. 25. janúar 1913, d. 1984. Foreldrar Trausta voru Jens- ína Teitsdóttir hús- freyja, f. 9. október 1880, d. 1965, og Jón Erlendsson frá Hreiðurborg á Eyrarbakka skip- stjóri, f. 1878, d. 1953. Börn Sigurborgar og Trausta eru 1) Hansína Jóna f. 1941, gift Hólmgeiri Björnssyni, f. 1934, d. 2006. Þeirra dætur eru a) Sig- urborg Íris f. 1966, gift Árna Ei- ríki Bergsteinssyni, þeirra dæt- ur eru Hanna Kristín og Lína Rut. b) Kristín Elísabet f. 1969, gift Agnari Birki Helgasyni, f. 1969, þeirra börn eru Hólmgeir Gauti, Helgi Björn og Agnes Lea. c) Áslaug Eir f. 1979, sam- býlismaður hennar er Pétur Kristmanns f. 1978, þeirra synir eru Guðlaugur Geir og Rík- harður. d) Vigdís Birna f. 1982, Ástkær móðir mín, Sigurborg Ólafsdóttir, er látin. Hún var sterkur persónuleiki og góð manneskja. Hún lifði tímana tvenna sem eðlilegt er á langri ævi. Mamma ólst upp í Múlaseli í Hraunhreppi og hafði sterkar taugar alla tíð til æskustöðva sinna, minntist oft á fegurð stað- arins þar sem Snæfellsjökull blasti við í vestri og úfið hraunið og skógarásarnir í suðri, þar undi hún sér í leik og starfi með sam- hentum systkinahópi, oft við eitt fallegasta sólarlag hér á landi. Allt þetta mótaði hana síðar meir og var hún alla tíð hrifnæm og fag- urkeri. Henni var alla tíð annt um foreldra sína og var náin Soffíu systur sinni. Ung fór hún í vetr- arvinnu til Hafna og Grindavíkur og átti góðar minningar þaðan. Með dugnaði og vilja fór hún í nám að Héraðsskólanum á Laug- arvatni og sóttist námið vel enda las hún mikið og var minnug og ættfróð. Á Siglufirði í síldarvinnu kynntist hún Trausta Jónssyni. Þau byggðu sér fallegt hús í Keflavík við Suðurgötu 7 og bjuggu þar í tuttugu ár. Minning- arnar streyma fram þegar ég hugsa til baka, sé mömmu hengja snjóhvítan þvottinn á snúrurnar, skrúbba allar stéttir og rækta garðinn sinn í orðsins fyllstu merkingu. Mamma hafði sína barnatrú sem við systur nutum góðs af, hún kenndi okkur bænir og las mikið fyrir okkur, þetta voru góðar stundir. Hún var harð- dugleg og allt lék í höndunum á henni, var rösk til allra verka og úrræðagóð, var ekki skaplaus en alltaf sanngjörn. Mamma var í hópi ungra kvenna í Keflavík sem stofnuðu Kvenfélag Keflavíkur. Það setti svip á bæjarlifið með skemmtunum og líknarmálum. Þær voru frumherjar að fyrsta leikskólanum hér í Keflavík. Það má segja að mamma hafi verið nokkuð á undan sinni samtíð, hún hafði trú á ræktun hér á svæðinu og taldi að hreyfing hefði góð áhrif á heilsuna enda stundaði hún sund meðan heilsan leyfði og leirböð í Hveragerði sér til heilsubótar áð- ur en Heilsuhælið kom til sögunn- ar. Árið 1959 fluttu foreldrar mín- ir til Reykjavíkur og fór mamma þá að stunda vinnu utan heimilis- ins lengst af sem matráðskona í Landsmiðjunni og víðar. Foreldr- ar mínir ferðuðust mikið um dag- ana, en eftir andlát pabba kom mamma með okkur systrum, tengdasonum og barnabörnum. Hún var ætíð hrókur alls fagnaðar enda með létta og góða lund. Í fjögur ár bjó hún með Skúla Þor- leifssyni, áttu þau góð ár saman en hann lést skyndilega á ferða- lagi erlendis. Hún var ástrík móð- ir, tengdamóðir og amma, fylgdist vel með börnum sínum meðan heilsan leyfði. Mamma þurfti að Sigurborg Ólafsdóttir HINSTA KVEÐJA Kæra langamma okkar Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Kveðja, fyrir hönd barnabarnabarna, Vigdís Birna Hólmgeirsdóttir. SJÁ SÍÐU 24 ✝ Gunnar Ólafs-son vélstjóri fæddist í Hvera- gerði hinn 22. jan- úar 1951. Hann lést 16. mars 2012. Foreldrar hans voru Ingileif Guð- mundsdóttir í Seli, f. 5. júní 1909, d. 5. desember 1993, og Ólafur Einarsson frá Þjótanda, f. 30 júní 1902, d. 25. júní 1962. Systkini Gunnars eru Unnur Ólafsdóttir, f. 29. júlí 1928, d. 28. febrúar 1933, Hulda Ólafs- dóttir, f. 18. júní 1930, d. 7. mars 1931, Einar Ólafsson, f. 25. janúar 1934, d. 3. september 1997, maki Guðrún Guðmunds- dóttir, f. 30. september 1932, Ásta Ólafsdóttir, f. 9. september 1935, d. 13. janúar 1986, maki Árni Sveins- son, f. 19. desem- ber 1933, d. 5. október 2004, og Sesselja Ólafs- dóttir, f. 30. apríl 1942. Gunnar kvæntist Sólveigu Gyðu Guðmunds- dóttur, f. 17. júlí 1946, frá Hvanneyri í Borg- arfirði, hinn 16. desember 1978. Eignuðust þau Ingu Maríu, f. 5. desember 1979, Sigrúnu Klöru, f. 5. júní 1982, d. 11. júní 1982, og Gunnar Óla, f. 11. maí 1984. Fyrir átti Gunnar soninn Gísla Torfa, f. 16. desember 1971, og Sólveig soninn Guðmund Frey Magnús, f. 27. janúar 1974, sem Gunnar gekk í föðurstað. Árið 2001 giftist Inga María Heiðari Birni Torleifssyni, f. 24. mars 1979, og eiga þau börnin Thelmu Maríu, f. 9. janúar 2002, Söru Katrínu, f. 14. maí 2006, og Birni Snæ, f. 17. mars 2010. Árið 2008 giftist Guð- mundur Camilu Abad Magnús og eiga þau börnin Leon Abad Magnús, f. 21. júlí 2009, d. 21. júlí 2009, Leonu Abad Magnús, f. 3. ágúst 2010, og Lionel Tý Abad Magnús, f. 27. febrúar 2012. Á sínum yngri árum starfaði Gunnar á sjó áður en hann hóf störf hjá Sveinbirni Runólfs- syni. Frá árinu 1984 var hann vélstjóri hjá Eimskip, þar af sem yfirvélstjóri á MS Goða- fossi síðustu ár. Útför Gunnars fer fram frá Grafarvogskirkju 21. mars 2012 kl. 13. Elsku pabbi, nú er komið að kveðjustund eftir langa og erfiða baráttu við bráðahvítblæði, sem næstum tók tvö ár. Við vorum öll svo vongóð þegar þið mamma fór- uð til Svíþjóðar og þú fékkst nýjan berg, áttum við stundir þar sam- an. Þú varst svo glaður og tókst svo vel á móti okkur og þú leist miklu betur út. Svo tók sjúkdóm- urinn sig upp aftur, þetta er búinn að vera mjög erfiður tími og von- brigðin mikil. Þú varst ótrúlega sterkur og vongóður í gegnum þetta allt saman, en svo breyttist allt snögglega þegar sjúkdómur- inn tók sig upp aftur fyrir mánuði og hallaði fljótt undan fæti. Við viljum kveðja þig með söknuði og ást. Þín börn, Inga María og Gunnar Óli. Mágur minn er látinn, aðeins rúmlega sextugur, eftir harða baráttu við erfiðan sjúkdóm síð- astliðin tæp tvö ár. Gunnar var vélstjóri á skipum Eimskipa og var á hafi úti er hann kenndi sér meins en vildi ljúka túrnum. Þetta varð hans síðasta ferð. Gunnar var einstaklega nota- legur maður, rólegur og yfirveg- aður í orðum og gerðum. Engan hef ég þekkt sem var jafn laginn við allt verklegt sem hann tók sér fyrir hendur. Ég get vel séð það fyrir mér að hann hafi verið happafengur vinnuveitenda sinna í starfi sínu sem vélstjóri, og ekki ólíklegt að ýmsu hafi verið bjarg- að fyrir horn á hafi úti á löngum og glæsilegum starfsferli. Kynni okkar urðu nánari eftir að þau Sólveig keyptu sumarhús í næsta nágrenni við okkur bræður í Giljareitum við Laugarvatn. Hittumst við reglulega og áttum skemmtilegar samverustundir þar sem umhverfið í bústaðaland- inu, þjóðmálin og fjölskyldumálin voru rædd. Þær stundir verða varðveittar með öðrum góðum minningum um þennan heiðurs- mann. Ein þeirra var ferðin okkar í fornbílnum hans austur í Land- eyjar að heimsækja bróðurson okkar systkina. Það var hrein un- un að vera með honum í þessum líka glæsivagni, enda naut hann þess í ríkum mæli að vera við stjórnvölinn með okkur sex inn- anborðs. Þar var sko pláss fyrir tvo farþega í framsætinu! Gunnari og Sólveigu leið vel í bústaðnum og voru þau samhent í því að búa sem best að fjölskyld- unni sinni sem naut þess að dvelja í þessu yndislega umhverfi. Hann hefur án efa hugsað sér að geta dvalið þar löngum stundum þegar um hægðist. Gunnar barðist hetjulega til hinstu stundar og það var aðdáun- arvert að fylgjast með því hvernig Sólveig og börnin þeirra stóðu við hlið hans á þessum erfiða tíma. Við Sirrý þökkum samfylgdina og vottum fjölskyldunni okkar innilegustu samúð. Guð blessi minninguna um góðan dreng. Ásgeir. Gunnar Ólafsson MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít ✝ Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, BRYNJA SVANDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, Þverholti 5, Vopnafirði, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 13. mars, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju föstudaginn 23. mars og hefst athöfnin kl. 14.00. Kristján Magnússon, Guðfinna Kristjánsdóttir, Magnús Kristjánsson, Anna Dóra Halldórsdóttir, Signý Björk Kristjánsdóttir, Höskuldur Haraldsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför VIGDÍSAR AUÐUNSDÓTTUR, Borgarnesi. Aðstandendur. ✝ Þökkum þeim fjölmörgu sem auðsýndu hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra ÓLAFS Á. EGILSSONAR. Ítrekum þakkir til starfsfólks í Mörkinni 2-4, fyrir að annast um Ólaf af kostgæfni. Egill Ólafsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Pjetur Þ. Maack, Hinrik Ólafsson, Drífa Harðardóttir, Margrét E. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN STEFÁN BJARTMARZ, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 17. mars. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 28. mars kl. 13.00. Helga Elsa Jónsdóttir, Jónína Bjartmarz, Pétur Þór Sigurðsson, Óskar Bjartmarz, Svava Schiöth, Jón Friðrik Bjartmarz, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Björn Bjartmarz, Sigríður María Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskulegur bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, EYJÓLFUR PÉTURSSON fyrrverandi bóndi á Nautaflötum í Ölfusi, Úthaga 3, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi sunnudaginn 18. mars. Þorbergur Pétursson, Rós Ólafsdóttir, Soffía Pétursdóttir, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GRÍMHILDUR ÓLAFSDÓTTIR frá Strandhöfn, sem lést á hjúkrunardeild Sundabúðar, Vopnafirði, þriðjudaginn 13. mars, verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju laugar- daginn 24. mars kl. 14.00. Guðjón Jósefsson, Ísfold Helga Kristjánsdóttir, Þórunn Ólöf Jósefsdóttir, Sverrir Kristinsson, Hildur Jósefsdóttir, Hilmar Jósefsson, Birgitta Guðjónsdóttir, Jökull Jósefsson, Ingibjörg Matthíasdóttir, Oddný Kristín Jósefsdóttir, Bjarni Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn, vinur og frændi, SVANUR STEINAR RÚNARSSON, Ásunnarstöðum, Breiðdal, lést laugardaginn 17. mars. Útför hans fer fram frá Heydalakirkju, Breiðdal, laugardaginn 24. mars kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rúnar Ásgeirsson, Guðrún Friðriksdóttir, Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, Sigurður Viðarsson, Hildur Ellen Rúnarsdóttir, Ólöf Rún Rúnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.