Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.03.2012, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2012 Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Nýverið sendi tónlistarmaðurinn Úlfur Hansson frá sér tónlistar- myndband við lagið „Black Shore“, en Máni Sigfússon leikstýrði. Lagið er að finna á væntanlegri plötu hans, White Mountain, en hún kemur út hjá Kimi Records í sumar. Hún kom út hjá japanska útgáfufyrirtækinu AfterHours, 11. febrúar. Myndbandið við „Black Shore“ hefur fengið mikla athygli frá frumsýningu en það var valið á ritstjórnarstöð myndbandssíð- unnar Vimeo.com og hafa rúmlega 40 þúsund manns borið það augum. „Ég er mjög ánægður með það hvað myndbandið hefur fengið góð- ar viðtökur, sérstaklega í kjölfar útgáfunnar í Japan,“ segir Úlfur en hann hefur verið iðinn við kol- ann innan íslenskrar jaðarsenu síð- ustu árin og þá helst sem liðs- maður harðkjarnasveitarinnar Swords of Chaos og svo sem bassa- leikari í tónleikahljómsveit Jónsa. Áður hefur hann gefið út plötu undir listamannanafninu Klive og hlaut sú plata afbragðsviðtökur. „Ég ákvað að gefa nýju plötuna út undir mínu eigin nafni, Það er eins konar nýtt upphaf.“ Platan White Mountain er að miklu leyti unnin með hljóðum sem Úlfur tekur upp á ferðaupp- tökutæki sitt. „Það er mjög mikið af vettvangsupptökum og grunn- efniviðurinn í lögunum er tekinn upp í ferðaupptökugræju sem ég tek með mér hvert sem er og svo er mikið af hljóðfærum lagt yfir. Þetta eru hljóð í náttúrunni, ég nota upptökutækið eins og mynda- vél og raða svo hljóðinu upp og við undirspil hljóðfæra. Þetta vekur upp minningar úr ferðalögum.“ Þessi aðferð gefur tónlistinni skemmtilega áferð en Úlfur er framsækinn og óhræddur að prófa eitthvað nýtt. Nú vinnur hann að gerð sjálfspilandi rafhörpu. „Raf- harpan er lokaverkefni mitt í Listaháskólanum. Vonandi tekst mér að gera aðra útgáfu af henni í sumar og kannski fæ ég jafnvel einhverja aðra tónlistarmenn til að búa eitthvað til með henni.“ Úlfur fór í tónleikaferðalag með Jónsa árið 2010 og spilaði sem bassaleik- ari hans. „Tónleikaferðin var ein- staklega skemmtileg og lærdóms- rík. Nýja platan er líka að miklu leyti tekin upp í ferðinni og þannig mættust alls konar áhrif.“ Að sögn Úlfars er margt hægt að læra af Jónsa og Alex Somers sem hafa verið honum innan handar við smíði nýju plötunnar. „Hjálpin frá þeim er ómetanleg. Ég hef lært svo margt af þeim og ég er óend- anlega þakklátur fyrir vináttu okk- ar,“ segir Úlfur en Jónsi og Alex leyfðu honum m.a. að nota hljóð- verið sitt til að vinna að plötunni. Þar tók Úlfur t.d. upp fjölda hljóð- færa sem hann notar á plötunni. Eldfjallaeyjurnar Ísland og Japan Margir Íslendingar sækja til Japans í dag og eru samskipti þjóðanna og tengsl sterkari enn nokkurn tímann fyrr. „Ég gæti al- veg hugsað mér að flytja til Japans og semja tónlist þar. Það er líka gaman hvað þeir virðast vera spenntir fyrir íslenskri tónlist.“ White Mountain er þegar komin út í Japan en kemur ekki í versl- anir á Íslandi fyrr en í sumar en þá kemur allt í senn rafræn útgáfa, geisla-diskur og vínyll. „Það er ungt par sem rekur plötufyr- irtækið AfterHo-urs í Tókýó og þau hafa gefið út þónokkuð af ís- lenskri tónlist. Ég hafði samband við þau, og áður en ég vissi af var hún komin út. Myndbandið hans Mána hefur í kjölfarið vakið mikla athygli svo þetta hefur gengið vel hingað til. Kannski tekst mér jafn- vel að fara til Japans og spila á næstunni.“ Úlfur Myndbandið við „Black Shore“ hefur fengið góðar viðtökur í Japan. Vill búa í Japan og semja íslenska tónlist  White Mountain, plata Úlfs Hanssonar, er komin út í Japan Fylgstu með í MBL sjónvarpi alla miðvikudaga. Ebba Guðný sýnir þér hvernig hægt er að matreiða hollan og góðan mat með lítilli fyrirhöfn. - heilsuréttir LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Toppmyndin á Íslandi í dag 40.000 manns DV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND! PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS „PLEASANT SURPRISE“ -C.B. JOBLO.COM HHHH „EXPLOSIVE“ -J.D.A. MOVIE FANATIC „PURE MAGIC“ -H.K. AIN´T IT COOL NEWS „VISUALLY STUNNING“ -K.S. FOX TV MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND Í 3D PROJECT X Sýnd kl. 6 - 10:15 JOHN CARTER 3D Sýnd kl. 7 SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 SAFE HOUSE Sýnd kl. 10 -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is SMUR-OGSMÁVIÐGERÐIR BREMSUSKIPTI Á 1.000 KRÓNUR! FRAM AÐ PÁSKUM SKIPTUM VIÐ UM BREMSUKLOSSA AÐ FRAMAN FYRIR AÐEINS ÞÚSUND KRÓNUR. TILBOÐIÐ ER Á VINNU EF ÞÚ KAUPIR BREMSUHLUTI HJÁ OKKUR. DUGGUVOGI RVK AUSTURVEGI SELFOSS PITSTOP.IS WWW HELLUHRAUNI HFJRAUÐHELLU HFJ 568 2020 SÍMI Engar tímapantanir FT FBL MBL DV PRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS 40.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% ACT OF VALOR KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.30 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 SVARTUR Á LEIK LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 TÖFRATENINGURINN KL. 3.30 L THIS MEANS WAR KL. 8 - 10.15 14 STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10 SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.30 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.30 L BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ACT OF VALOR KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE VOW KL. 5.40 - 8 - 10.20 L SVARTUR Á LEIK KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THIS MEANS WAR KL. 10.15 14 LISTAMAÐURINN KL. 5.45 - 8 L ACT OF VALOR KL. 8 - 10.10 16 SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10 16 THE VOW KL. 6 L HVAÐ EF SÍÐUSTU FIMM ÁR ÆVI ÞINNAR HYRFU Á EINU AUGNABLIKI? BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM. STARFANDI SÉRSVEITARMENN BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS FARA MEÐ HLUTVERK PERSÓNANNA Í MYNDINNI. SAGAN ER SKÁLDSKAPUR EN VOPNIN OG AÐFERÐIRNAR RAUNVERULEGAR. BYGGT Á RAUNVERULEGUM VERKEFNUM SÉRSVEITA BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS. EKKI MISSA AF ÞESSARI!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.