Morgunblaðið - 23.03.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 23.03.2012, Síða 10
Við höfum átt í stormasömu sambandi í fjölda ára. Við hittumst fyrst afeinhverri alvöru á unglingsárunum. Stundum hittumst við bara einusinni í viku, jafnvel bara einu sinni í mánuði en stundum er eins ogstrengur á milli okkar sé órjúfanlegur og við verðum að hittast mörg- um sinnum á dag. Samband okkar hefur aldrei verið gott, aldrei. Það hefur kannski komið einn og einn dagur þar sem ég hef verið sátt en dagar gremju og óánægu eru svo sannarlega miklu, miklu fleiri. Það er svo loksins núna að ég hef náð nægjanlegum þroska til að skilja að það er kominn tími á aðskilnað. Þetta gengur ekki lengur. Ég setti mér því óvenjulegt áramótaheit, við mynd- um ekkert hittast á þessu ári. Og ótrúlegt en satt, mér hefur tekist að standa við það. Hver veit nema það muni teygjast úr þessu áramótaheiti og samskiptum okkur sé lokið fyrir fullt og allt, um aldur og ævi. Það er sjálfsagt ólíklegt en það er núverandi draumur minn. Hvers vegna ætti ég svo sem að vera að púkka upp á einhvern sem segir mér að ég sé ekki nógu góð í hvert skipti sem við hitt- umst. Hingað og ekki lengra. Við erum skilin að skiptum, ég og baðvigtin mín. Það eru ófáir morgn- arnir sem við höfum hist og hún hefur ákvarðað ham- ingju mína þann daginn. Hún hefur ósjaldan sett svip sinn á mataræðið mitt. Í veislum hef ég sneitt hjá dýrindis kræsingum þar sem við vigtin áttum í erjum áður en í veisluna var farið. Svo kem ég heim úr veisl- unum og reiðist út í vigtina fyrir að hafa tekið frá mér þessar ljúffengu kökur og borða eins og eitt eða tvö súkkulaðistykki, bara til að sýna henni að það er ég sem ræð. Ég tel mig vera að ná áttum á því hvað það er sem ég þarf að gera til að lifa heilbrigðu lífi, til að huga mínum og líkama líði vel þau ár sem ég á eftir. Jú, vissulega þarf ég að hreyfa mig, helst í um hálftíma á dag, ég þarf að borða holla og fjölbreytta fæðu, ég þarf að takast á við krefjandi verkefni til að þjálfa þetta gráleita og slímuga efni í höfðinu, ég þarf að verja tíma með mínum nánustu, ég þarf að vera meðvituð um líðan mína og leita læknis ef ég tel eitthvað athugavert við hana, ég má ekki neita mér um lystisemdir lífsins (eins og til dæmis súkkulaði) og kannski fyrst og síðast þarf ég að vera sátt við sjálfa mig. Ég segi því; Vertu sæl vigt, megirðu hverfa úr lífi mínu að eilífu. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.Is HeimurSignýjar Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is M ig hefur alltaf langað til að verða leikari og ég stefni að því að fá að leika aðal- hlutverk á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og í Þjóðleikhúsinu,“ segir Esther Helga Klemenzardóttir ellefu ára sem veit greinilega hvað hún vill, rétt eins og hún Lína Langsokkur sem hún leikur í samnefndu leikriti sem Leikfélag Hveragerðis sýnir um þessar mundir. Esther hefur vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu í hlutverkinu, enda kann hún vel við sig uppi á sviði. Það er hættulegt að þegja of lengi Sumir segja að hún gæti alveg verið að leika sjálfa sig, svo lík sé hún stelpunni rauðhærðu og uppátækjasömu sem býr með apa og doppóttum hesti og er dóttir sjóræningja. Esther Helga Klemenzardóttir hefur slegið í gegn í hlutverki Línu Langsokks hjá Leikfélagi Hveragerðis. Ljósmyndir/Dagskráin Fréttablað Suðurlands. Káta stelpan sterka Esther kann vel við sig í hlutverki Línu Langsokks. Hér er hún ásamt leikstjóranum Sigurgeiri Hilmari Friðþjófssyni. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Fjarðargata 13-15 ~ 220 Hafnarfjörður ~ Sími 565 5666 fjordur.is Vinaleg verslunarmiðstöð Manúela Ósk Harðardóttir heldur úti skemmtilegu bloggi undir slóðinni manuelaosk.com. Þar setur hún inn allskonar færslur, margt áhugavert úr tískuheiminum sem hún fylgist greinilega vel með. En hún setur líka inn myndir úr eigin daglegu lífi, alls- konar skemmtilegheit. Eins og til dæmis þá málshætti sem hún og börnin fengu úr páskaeggjum þegar þau tóku forskot á sæluna um dag- inn. Hún setti líka nýlega inn myndir af tveimur flíkum sem hún keypti í Kolaportinu, en þar rakst hún á Max Mara og Escada, merkjavöru sem hún hélt að væri ekki hægt að finna í portinu góða. Hún setur líka stundum inn alls konar hugleiðingar og gull- korn sem hún finnur á netinu, til dæmis þessi orð sem sögð eru koma frá Georg Elliot: „It is never too late to be who you might have been.“ Vefsíðan www.manuelaosk.com Tískugaur David Beckham skreytti bloggið einn daginn í janúar á þessu ári. Tíska og fleira á bloggi Manuelu Hátíð franskrar tungu er haldin árlega um allan heim en þá er fagnað fjöl- breytileika franska málsins og menn- ingu frönskumælandi þjóða. Í tilefni af þessum alþjóðlega við- burði mun franska sendiráðið sýna ein- stakt samansafn af vinsælustu sjón- varpsauglýsingum síðustu áratuga, frá hinum frönskumælandi heimi. Þar sem ýmis lönd hafa tengsl við frönskuna eru auglýsingarnar á ólíkum tungu- málum s.s. frönsku, rómönsku og víet- nömsku. Saman mynda þær tveggja klukkustunda kvikmynd sem verður sýnd allan daginn á KEX Hostel, í dag, föstudag 23. mars, frá klukkan 11-23. Endilega… …sjáið franskt auglýsingafár Amélie Franskri tungu fagnað í dag. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Glæsilegur hópur Allir kátir að lokinni frumsýningu og unga kynslóðin í meirihluta leikarahópsins. »Hvers vegnaætti ég svo sem að vera að púkka upp á ein- hvern sem segir mér að ég sé ekki nógu góð í hvert skipti sem við hittumst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.