Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.03.2012, Blaðsíða 19
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík • Sími: 552 3939 • Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30 • Opið um helgar frá 18:00 - 23:30 • frakkar@islandia.is • www.3frakkar.com ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant ...Grrratineraðar gellur FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Afkoma Smáralindar á árinu 2011 var jákvæð um 1,034 milljónir, sem eru veruleg umskipti í rekstri frá árinu 2010. Dótturfélag Landsbankans, Reg- inn, tók Smáralindina yfir seinni hluta árs 2009 og árið 2010 var versl- unarhúsnæðið sett í söluferli en ekki bárust ásættanleg tilboð þannig að ráðist var í allsherjar endurskoðun á rekstrinum. Á árinu 2011 var félagið endurfjármagnað með verðtryggð- um lánum frá Landsbanka og Ís- landsbanka og öll erlend lán félags- ins, ásamt skuldabréfaflokki í Kauphöllinni greidd upp. Í fréttatilkynningu frá Smáralind kemur fram að fjárfestingar þess á árinu 2011 voru 198 milljónir. Eigna- safn félagsins var endurmetið um áramótin í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Reistu skemmtigarð Aðspurður hvort um mikil um- skipti sé að ræða í rekstrinum segir Sturla Gunnar Eðvarðsson að svo sé. „Það varð samdráttur hér eins og alls staðar í þjóðfélaginu árið 2008,“ segir Sturla, en hann var gerður að framkvæmdastjóra félagsins 2010. „En núna er hvert einasta pláss í Smáralindinni nýtt, okkur tókst að fá góðar verslanir inn í hús. Þar sem það gengur svona vel að þá stefnir móðurfélagið að því að fara í skráningu í Kauphöllinni á öðr- um ársfjórðungi. En ef þú vilt vita eitthvað meira um það ættirðu kannski að tala við þá hjá Regin. Við finnum annars fyrir mikilli eft- irspurn eftir verslunarrými og við höfum notað velgengnina til að styrkja stöðu okkar. Við reistum til dæmis 2000 fer- metra skemmtigarð á tveimur hæð- um þar sem Vetrargarðurinn var áð- ur. Skemmtigarðurinn hefur gert mikið fyrir veitingarekstur á svæð- inu og það er upplifun fyrir alla ald- urshópa að koma í hann,“ segir Sturla. borkur@mbl.is Umskipti í rekstri Smáralindar  Fjölgun gesta fyrstu mánuði ársins 2012 er um 12% Morgunblaðið/Sigurgeir S. Verslunarmiðstöð Verslun landsmanna minnkaði verulega á árinu 2008 en nú er hún að taka verulega við sér, segir Sturla Eðvarðsson hjá Smáralind. Smáralindin » Í Smáralindina koma yfir 4 milljónir manna á ári. » Félagið verður 11 ára í ár. » Afkoma félagsins 2011 var jákvæð um 1.034 millj- ónir. » Um áramót var eigið fé félagsins aukið um 3 millj- arða og var eiginfjárhlutfall Smáralindar í árslok 40%. STUTTAR FRÉTTIR ● Hagnaður Eim- skipafélagsins á árinu 2011 eftir skatta var um 2,1 milljarður króna og rekstrarhagnaður (EBITDA) um 7 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfallið var 62,3% í lok ársins. Flutn- ingamagn í sigl- ingakerfum félagsins á Norður- Atlantshafi jókst um rúm 5% á milli ára. Afkoman er í takt við væntingar stjórn- enda, segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, í tilkynningu frá félaginu. Sjö milljarða rekstrar- hagnaður Eimskips Flutningamagnið jókst um 5%. ● Nær allir stjórnendur 400 stærstu fyr- irtækja landsins telja aðstæður í atvinnu- lífinu enn slæmar en þeim fjölgar sem bú- ast við að þær batni eftir sex mánuði. Þetta er helsta niðurstaða könnunar á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyr- irtækja landsins sem gerð var í febrúar og mars og birt er á vef Samtaka atvinnulífs- ins. Yfirleitt er nægt framboð af starfsfólki og skortur á því afmarkaður við tilteknar greinar. Að jafnaði er hvorki búist við fjölgun starfsmanna á næstunni né mikilli aukningu fjárfestinga á árinu. Verðbólguvæntingar hafa aukist mikið að und- anförnu, sem og væntingar um hækkun stýrivaxta, og búist er við því að gengi krónunnar veikist áfram. Mikill meirihluti stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins telur aðstæður í atvinnu- lífinu slæmar og hefur það mat lítið breyst undanfarin ár. Nú telja 64% stjórnenda aðstæður slæmar en hlutfallið var 67% í síðustu könnun sem gerð var í lok síðast- liðins árs. Rúmur þriðjungur telur að þær séu hvorki góðar né slæmar en aðeins 2% að þær séu góðar. Sem fyrr er hljóðið þyngra á landsbyggðinni, en fjórir af hverjum fimm stjórnendum á landsbyggðinni telja aðstæður slæmar en þrír af hverjum fimm á höfuðborgarsvæðinu. 64% stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í atvinnulífinu slæmar Aðstæður Meirihluti segir þær slæmar.                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-.+/ +//.00 +,-.1+ ,,.22+ ,+.1-3 +3.-2- +21.11 +.4,+, +/0 +--.51 +,-.0/ +//./, +,1.53 ,,.2/- ,+.32, +3.-/+ +23.+4 +.4,4- +/0.43 +--.42 ,,1./0-3 +,-.1/ ,55.0 +,1.04 ,,.0-+ ,+.3/- +3.10- +23.42 +.42 +/4.+- +--.// Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.