Morgunblaðið - 23.03.2012, Síða 23

Morgunblaðið - 23.03.2012, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2012 Minnsta öndin Urtendur synda á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Urtöndin er minnsta önd í Evrópu. Íslenska urtöndin er að mestu leyti farfugl, en nokkur hundruð urtanda hafa þó vetursetu hér. Ómar Á dögunum lýsti ráð- herra efnahagsmála, Steingrímur J. Sigfús- son, því í blaðagrein að enn væru þeir til sem ekki hefðu meðtekið þann árangur í efna- hagsmálum sem rík- isstjórnin hefur náð. Þeir hinir sömu öm- uðust meðal annars yfir því að fjárfesting í at- vinnulífinu væri ekki næg og stög- uðust á því að hagvöxturinn væri allt of mikið drifinn áfram af aukinni einkaneyslu. Eftir hrun bankakerf- isins hefur það verið gagnrýnt að yf- irvöld hlustuðu ekki nægjanlega vel á þá sem vöruðu við því að hagvöxtur áranna fyrir hrun hefði verið að hluta til innistæðulaus, drifinn áfram af of miklum lántökum. Viðbrögð núver- andi efnahagsmálaráðherra við gagn- rýni um einkaneysludrifinn hagvöxt eru umhugsunarefni og ráðherrann virðist horfa fram hjá þeim fjölmörgu hættumerkjum sem nú blasa við í efnahagslífinu. Vaxandi vanskil fyrirtækja Fyrirtækið Creditinfo birti á dög- unum gögn um vanskil fyrirtækja. Þar kom fram að um 6.300 fyrirtæki væru nú í vanskilum, um fimmtungur allra fyrirtækja á Ísland og áætlað væri að hátt í tvö þúsund fyrirtæki myndu bætast við á þennan lista á næstu mánuðum. Þessar tölur gefa til kynna að íslensk fyrirtæki eiga við vaxandi vandamál að etja, sem meðal annars koma fram í of litlum fjárfest- ingum og því að störfum fjölgar ekki. Atvinnuleysi óbreytt Á liðnu ári mældist vissulega um- talsverður hagvöxtur. En hann var drifinn áfram af neyslu og auknum sjávarafla, fyrst og fremst makríl. Það sem veldur áhyggjum er hversu hægt gengur að vinna á atvinnu- leysinu þrátt fyrir hagvöxt. Hagvöxt- urinn skilaði ekki nægjanlega mörg- um nýjum störfum, atvinnuleysi er ennþá yfir sjö prósentum. Nýjustu tölur Hagstofunnar styðja þessa nið- urstöðu. Ekkert hefur miðað í þess- um efnum, þrátt fyrir síendurteknar yfirlýsingar forsætisráðherra um væntanlega fjölgun starfa. Ósjálfbær einkaneysla Aukin einkaneysla á sér einkum rætur í kjarasamningum sem byggðir voru á þeirri forsendu að fjárfesting myndi aukast mjög hratt á samnings- tímanum. Jafnframt tók stór hluti landsmanna út hluta af séreignarlíf- eyri á liðnu ári og jókst neysla sam- fara því. Einnig hefur yfirdráttur heimilanna aukist hratt að undanförnu og er óþarfi að útlista hversu alvarlegt merki það er. Fjárfestingar ónóg- ar Fjárfestingin í at- vinnulífinu hefur vissu- lega tekið við sér, enda hafði hún farið niður í algert lágmark. En sú aukning er langt í frá nægjanleg til þess að standa undir þeim hagvexti sem við þurfum til þess að vinna niður at- vinnuleysið. Fjárfestingar þurfa því að aukast miklu meira til þess að hag- kerfið komist aftur á réttan kjöl og á það bæði við erlendar sem og inn- lendar fjárfestingar. Frumforsenda þess að svo megi verða er að það dragi verulega úr pólitískri óvissu í landinu. Verðbólga og fasteignabóla Á sama tíma og þessi óveðurs- merki hrannast upp, er verðbólga langt yfir markmiði Seðlabankans og sjá má merki um eignabólu á fast- eignamarkaði. Verðbólgan hækkar lán heimilanna og étur upp kaup- hækkanir, kjör almennings munu rýrna vegna þessa og yfirvofandi er vaxtahækkun Seðlabankans. Þar með hækkar vaxtakostnaður bæði heim- ilanna og fyrirtækjanna, og hærri vextir draga úr hvata til að fjárfesta. Upplausn og klofningur Þessi vandamál verða erfiðari við- fangs vegna þess að búið er að skapa mikla óvissu um ýmis grundvall- aratriði í samfélagi okkar. Breytingar á stjórnarskránni hafa farið í ein- hvern furðufarveg, sjávarútvegs- málin eru í uppnámi og augljóst er að orkunýtingarstefnan er í gíslingu vegna ósættis innan ríkisstjórn- arflokkanna. Gjaldeyrishöftin herðast enn og það vantar allan kraft af hálfu ríkisstjórnarinnar til að leysa þann mikla vanda. Því miður er það staðreynd að pólitísk óvissa og að- gerðaleysi er vaxandi efnahags- vandamál á Íslandi, einmitt á þeim tíma sem við þurfum mest á að halda festu og ábyrgð í störfum rík- isstjórnar og Alþingis. Eftir Illuga Gunnarsson » Fyrirtækið Credit- info birti á dögunum gögn um vanskil fyrir- tækja. Þar kom fram að um 6.300 fyrirtæki væru nú í vanskilum Illugi Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Veikleikar í hagstjórninni Hið nýja Alþingi kemur mér sífellt meira og meira á óvart. Ekki af því að það hvarfli að mér að þar sitji eitthvað öðruvísi fólk eða ver gefið en áður var. Ég býst við að greind- arstigið sé svipað og að þingmennirnir vilji verða að gagni og ná árangri. Þeir eru alls ekki verri ræðumenn en þar hafa setið og margir nokkuð góðir. En Alþingi er ekki sá hornsteinn í umræðu og vinnubrögðum sem það á að vera. Enn er það hjáleiga ríkisstjórnarinnar og ber þess merki að margt gengur á afturfót- unum á þeim bæ. Ætla ég þó alls ekki að halda því fram að rík- isstjórnin hafi ekki náð að vinna úr mörgum erfiðum verkefnum eftir hrun, það hefur vissulega tekist. Það tókst einnig hinum sakfelda Geir H. Haarde, fyrrver- andi forsætisráðherra, með neyð- arlögunum haustið 2008. Neyð- arlögin voru sett til að höggva skuldir óreiðumanna og einka- banka frá bryggju Íslands. Þar átti sér stað björgunaraðgerð sem skipti öllu máli þá og um alla framtíð og flestir þingmenn studdu. Líklega losuðum við Ís- lendinga við átta til tíu þúsund milljarða í þessari lagasetningu einni. Alþingi nær hinsvegar ekki sjálfstæði sínu og virðingu nema að taka ákvörðun um að sækja þau völd sem þingið á að hafa og styrkja Alþingi á kostnað fram- kvæmdavaldsins, ríkisstjórnar og ráðuneyta. Þar á ég við faglega lögfræðilega og skipulega. „Æi, þegiðu“ og ,,forsetaræfillinn“ Alþingi starfar fyrir opnum tjöldum í málstofunni og allir geta fylgst með orðræðunni sem þar fer fram. Hinsvegar er mikið talað um að opna allt og gefa fólki kost á að vera upplýst jafnóðum, þar fara stjórnarliðar oft fyrir liði. Mikið hefur verið hrært í þing- sköpum Alþingis síðustu ár og þau verða flóknari og flóknari og öllum erfiðari eftir því sem þeim er meira breytt með orðaflækjum. Forseti Alþingis hefur þann nýja sið að djöflast á þingbjöllunni og reynir að hamra flóknar reglur sem enginn þingmaður nær að skilja eða nema þrátt fyrir löng námskeið í upphafi þingmennsk- unnar. Þetta þvarg setur ljótan blett á störf þingsins og er eyðilegging á ræðum þingmanna og virðingu Alþingis. Við hlið forsetans situr jafnan embætt- ismaður oftast skrif- stofustjórinn sjálfur sem stöðugt áminnir forsetann að leiðrétta þingmanninn og kenna honum rétta siði. Bjallan glymur og glymur. En svo þegar kemur að ljótu orðbragði þá heyrir forsetinn ekkert og vítir ekki dólgslega framgöngu eins og dæmin sanna sem eru vissulega brot á þingsköpum. Einn þing- maður sagði nýlega í ræðu ,,for- setaræfillinn.“ Sá var að tala um forseta Íslands, þá voru engar vít- ur. Forsetinn er að vísu ekki vin- sæll í stjórnarliðinu eftir að hafa skapað einn þjóðarvilja gegn Ice- save. Voru það ekki 98% þeirra rúmlega 70% atkvæðisbærra manna sem tóku þátt í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni um það undarlega mál og höfnuðu samn- ingi ríkisstjórnarinnar við Bretana og Hollendingana? Ísland væri trúlega gjaldþrota hefði sá ósann- gjarni skuldabaggi verið sam- þykktur. Ráðherra sagði á dög- unum ,,æi, þegiðu,“ við annan þingmann engar vítur áttu sér stað. Allt þetta hefur að vísu gerst í þingsögunni áður eins og orðin ,,skítlegteðli,“ „gunga og drusla“ og „þegiðu Vilhjálmur,“ bera með sér og eru oft rifjuð upp. Ég minnist þess að þingmaður sagði við mig einhverju sinni „æi, þeg- iðu Guðni“, við drukkum að vísu kaffi saman á eftir og jöfnuðum málin sjálfir. Auðvitað á forseti fyrst og fremst að víta svona munnsöfnuð og halda fast í prúð- mennsku og drengilega umræðu. Nú færast víturnar út í nefnd- irnar. Svo gerðist það undarlega á dögunum að þingmaðurinn, Vigdís Hauksdóttir, skýrði frá því á fés- bók sinni sitjandi á nefndarfundi, einum tuttugu mínútum eftir að erindrekar stjórnlagaþingsins höfðu yfirgefið nefndina. En þeir höfðu lagt til að horfið yrði frá skoðanakönnun sem fáir að vísu skilja um margorð drög að nýrri stjórnarskrá. Þá vítir forseti þing- manninn strax samkvæmt frétt sem óðamála flokkssystir forset- ans flytur Alþingi. Hér áður fyrr fyrir tíma fésbókarinnar hefðum við Össur Skarphéðinsson gert okkur erindi og gengið út til að ,,pissa“, en í leiðinni hringt erindið til fréttamanna og engum þótt merkilegt að svo stór frétt færi strax í loftið. Frétt sem alla þjóð- ina varðar um og snýr að umræðu um stjórnarskrána. Stjórnarskráin er biblía réttlætisins og leikregln- anna í lýðræðisríki. Hvernig var nú hin brotlega frétt á fésbók Vig- dísar skoðum það, hún skrifar ,,Stórfrétt – nú var eiginlega end- anlega verið að slá út þjóð- aratkvæðagreiðslu um skýrslu stjórnlagaráðs samhliða forseta kosningunum.“ Hvað er vítavert í þessari frétt, gestirnir farnir, er- indið skýrt, ekki vitnað beint í þá eða nöfn þeirra nefnd. Kannski bara vont fyrir forsætisráðherra vegna gefinna loforða. Ætlaði nefndin að senda út fréttatilkynn- ingu eða hvernig átti að koma skilaboðum þingmanna stjórnlaga- þingsins til þingsins eða almenn- ings? Var þessi mikla frétt ævar- andi leyndarmál? Hvenær er fundur lokaður hálflokaður eða op- inn? Allt sem gerist í nefndum eru upplýsingar fyrir þingmenn sem þeir ræða í flokkum sínum og þinginu og hafa gert alla tíð. Hvað er til ráða forseti vor? Auðvitað er þetta allt vitleysa og engin leið að framfylgja svona reglum. Svo varð ég vitni að því að stjórnmálaforingi kallaði flokk sértrúarsöfnuð í ákveðnu um- deildu máli. Þá sagðist forseti iðr- aðist þess að hafa ekki vítt hann, enda kölluðu sárþjáðir þingmenn safnaðarins ummælin argasta níð. Ekki ljótt orð trúarsöfnuður eða sértrúarsöfnuður, ja, stærri orð hafa nú fallið og umdeildari. Jæja, það er ekki auðvelt að venjast reglunum hjá hinu nýja Alþingi. Er ekki rétt, ágætu þingmenn og virðulegi forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, að einfalda reglurnar á ný, minnka formlegheitin um hæstvirtan og háttvirtan og opna nefndirnar þannig að starf þeirra fari jafnvel fram í heyrandi hljóði. Ellegar að banna tölvurnar og gemsann og þá fésbókina í leiðinni inni á fund- unum og loka herlegheitunum. Eftir Guðna Ágústsson »Mikið hefur verið hrært í þingsköpum Alþingis síðustu ár og þau verða flóknari og flóknari og öllum erf- iðari eftir því sem þeim er meira breytt með orðaflækjum. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþm og fv. varafor- seti Alþingis. „Nú þykir mér tíra á tíkarskarinu,“ á Alþingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.