Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 28
þurrkið í ofni yfir nótt með skeið í falsinu á ofninum. Bræðið 70% súkkulaði yfir vatnsbaði og dýfið hluta af kökunum í súkkulaði. Þessi uppskrift gefur 25 kökur. Crème caramel heilsukokksins 5 dl rísmjólk 2 msk. hrásykur ¼ tsk. Himalaya-salt 1 tsk. lífræn vanilla 1 tsk. agar agar ½ dl hreint hlynsíróp Setjið rísmjólk, hrásykur, salt og Leggið cashew-hnetur í bleyti í a.m.k. 2 klst. Maukið í matvinnsluvél ásamt öllu nema döðlum og stein- selju. Skerið í döðlurnar eftir endi- löngu og fjarlægið steininn. Setjið maukið í sprautupoka og fyllið döðl- urnar. Saxið steinselju fínt og stráið yfir rétt áður en borið er fram. Kókosmakkarónur heilsukokksins 2 dl lífrænar möndlur 4 dl kókosmjöl 2 msk. agave-síróp 30 g kakósmjör 4 döðlur ¼ tsk. Himalaya-salt ½ tsk. lífrænir vanilludropar Leggið möndlur í bleyti yfir nótt. Sigtið vatnið frá og malið í korn í matvinnsluvél. Setjið restina af hrá- efnunum í matvinnsluvélina og maukið í deig. Mótið kúlur og þrýst- ið á bökunarplötu með bök- unarpappír. Stillið ofninn á 60°C og Döðlur með reyktu cashew-mauki 2 dl cashew-hnetur 2 msk. ólífuolía ½ tsk. reykt paprika 1 msk. næringarger Safi úr 1 límónu ¼ ferskur chilipipar ½ tsk Himalaya-salt 1 hvítlauksgeiri 2 msk. fersk steinselja 25 ferskar döðlur Melónu- og jarðarberjatryllir 250 g vatnsmelóna 100 g frosin jarðarber 2 dl eplasafi 1 msk. fersk minta Allt maukað vel í blandara og bor- ið fram ískalt og svalandi. Fylltir tómatar með ítölsku sólblómapaté 1 dl sólblómafræ 100 g grænar linsubaunir, soðnar 50 g lífrænar maísbaunir, frosnar 5 sólþurrkaðir tómatar 1 hvítlauksrif 1 msk. ólífuolía 2 msk. ferskt basil 3 greinar ferskt timjan 1/6 ferskur chilipipar ½ tsk Himalaya-salt 6 tómatar Leggið sólþurrkaða tómata og sólblómafræ í bleyti yfir nótt. Hellið vatninu af. Sneiðið rúnnaða hlutann á tómötunum af þannig að þeir geti staðið á stilkhliðinni. Takið innan úr tómötunum með skeið og maukið í matvinnsluvél ásamt öllu nema ma- ísbaunum. Smakkið til með Himala- ya-salti og cayenne-pipar. Fyllið tómatana með maukinu, leggið sneiðina sem var skorin af á ská yfir og bakið við 180°C í ca. 25 mínútur. vanillu í pott og látið suðuna koma upp. Hrærið agar agar með 1 msk. af vatni og þeytið út í sjóðandi mjólkina. Hellið í gler- eða postu- línsmót og kælið. Hvolfið á disk og hellið hlynsírópi yfir rétt áður en borið er fram. Sunnlensk súkkulaðikaka 180 g fínt spelt 100 g hrásykur 30 g kakó 1 msk. vínsteinslyftiduft 150 g 70% súkkulaði 150 g döðlur ¼ tsk Himalaya-salt ½ dl ólífuolía 2 msk. „No-Egg“-duft 1 vel þroskaður banani ¾ dl rísmjólk eða sojamjólk 2 tsk. lífræn vanilla Skerið súkkulaði og döðlur í litla bita. Hrærið saman spelt, hrásykur, lyftiduft, salt, döðlur og súkkulaði. Hrærið „No-Egg“-duft í ½ dl af vatni. Blandið olíu, banana, mjólk og vanillu saman við og hrærið vel. Hrærið blautefni saman við þurr- efnin. Bakið við 175°C í ca. 30 mín- útur eða þar til kakan losnar frá köntunum og gaffall sem stungið er í kökuna kemur þurr til baka. Kælið og þekið með sunnlensku kremi. Skreytið með ávöxtum og berið fram með rísrjóma eða venjulegum rjóma. Sunnlenskt krem 2 dl kókosmjólk 2 msk. agave-síróp 175 g 70% súkkulaði Látið suðuna koma upp á kók- osmjólk og agave-sírópi, hellið yfir saxað súkkulaði og blandið vel sam- an. M argir kannast við Fés- bókarsíðuna Heilsu- kokkur.com en þar birtast reglulega allra handa uppskriftir og ábendingar um hollan mat og mat- aræði. Í fermingarveislum er jafnan boðið upp á ýmsar gómsætar krásir og er þá hollustan oft lögð til hliðar um stund á meðan hvítur sykur, transfita og annað síður hollt fær að eiga sviðið í einn dag. Auður Ingi- björg er hins vegar á því að veislu- borðið megi búa með hollum mat sem um leið sé fullt eins ljúffengur - ef ekki ljúffengari. Tók slaginn í kreppunni Upphaf Heilsukokksins má rekja til hinnar margnefndu kreppu. „Ég vann hjá Maður lifandi um það leyti sem bankahrunið varð og kreppan skall á í kjölfarið. Ég missti vinnuna eins og svo margir og það varð til þess að ég tók stökkið út í djúpu laugina og stofnaði Heilsukokkinn. Ég hafði gengið með hugmyndina í maganum í 2 til 3 ár og kreppan varð til þess að ég lét verða af því,“ segir Auður. „Ég fann að það var ákveðið gat á markaðnum, ákveðin þörf í þjóðfélaginu fyrir eitthvað í líkingu við þetta. Ég sá fólk endalaust að leita að hollari mat og leiðum til að verða sér úti um hann. Ég hafði þá þegar þróað, samið og margprófað heilsuuppskriftir í 20 ár. Ég átti því feikinóg af efni og hafði öll færi á hendi til að taka slaginn.“ Auður hófst handa á því að setja upp fés- bókarsíðu og viðtökurnar reyndust framar öllum vonum. „Það varð bara hálfgerð sprenging,“ segir Auður en fésbókarsíðan hennar er ein sú vin- sælasta hér á landi með rúmlega 22.000 vini. Þá gaf Auður út bók fyr- ir jólin sem kallast einfaldlega Heilsudrykkir. Skemmst er frá því að segja að bókin var rifin út og seld- ist á endanum upp. Þá hefur Auður haldið námskeið í matreiðslu hollra rétta en er að eigin sögn að færa sig í auknum mæli inn á netið. „ Ég er komin í samstarf við Siggu Lund og nýr vefur fer í loftið þann 1. apríl. Þar mun ég birta ýmiss konar pistla um hollan mat ásamt vídeóinns- lögum.“ Auðvelt að breyta yfir í hollt Sem fyrr segir er háborin hollusta ekki alltaf leiðarljósið þegar kemur að því að matbúa fyrir ferming- arveislurnar. En Auður minnir á að það sé alls ekki svo að velja þurfi á milli þess að hafa bragðgott og hollt. „Það er svo auðvelt að breyta til- teknum réttum til hollari vegar,“ segir hún með áherslu. „Sem dæmi má nefna að bara með því að skipta hvítu hveiti út fyrir spelt er tekið stórt stökk í átt að hollari mat, sem eftir sem áður er alveg jafn bragð- góður,“ bætir hún við. „Það er ein- mitt eitt það skemmtilegasta við matseldina, að breyta gömlum og klassískum réttum til hollari vegar með því að nota hollari innihaldsefni, og það án þess að nokkur einasti gikkur af gamla skólanum verði þess var,“ segir Auður og hlær við. „Ágætt dæmi um þetta er súkkulaði- og döðlukakan, sem alla jafna er stútfull af hvítum sykri. Hana má gera transfitulausa, sleppa hvítum sykri og meira að segja gera eggja- lausa líka. Svo er hún þakin ljúf- fengu súkkulaðikremi, alveg hreint meinhollu. Þetta er mjög lýsandi dæmi þess hvernig gera má sígilt hnossgæti að hollum mat með því að velta innihaldinu aðeins fyrir sér,“ segir Auður. Hún gefur hér les- endum nokkrar gómsætar upp- skriftir sem allar sóma sér prýðilega á hvaða fermingarhlaðborði sem er, ljúffengar og hollar í senn. jonagnar@mbl.is Hollustan í aðalhlutverki Það er enginn vandi að reiða fram veisluborð hlaðið ljúffengu og hollu góðgæti, segir Auður Ingibjörg Konráðsdóttir hjá Heilsukokkur.is Morgunblaðið/Eggert Ljúffengt Auður Ingibjörg Konráðsdóttir er potturinn og pannan í Heilsukokki.com. Hún segir einfaldasta mál að hafa hollustu í fyrirrúmi í fermingarveislunni og gefur lesendum hér úrval spennandi uppskrifta. 28 | MORGUNBLAÐIÐ Hannaðu fermingarkortið á oddi.is Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is NÝR END URB ÆTT UR VEF UR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.