Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ | 61
Morgunblaðið/hag
Vorboði Fermingar eru vísbending þess að vorið sé í nánd. Fyrstu ferm-
ingarnar eru gjarnan í Grafarvogskirkju, fjölmennustu sókn landsins.
Mikilvægur
undirbúningur
Fyrir krakka á fjórtánda ári er stórt skref að játast gildum
kristinnar trúar eða annarra siða. Fermingarfræðslan er
mikilvægur undirbúningur; en þar er tæpt á ýmsum
stærstu spurningum mannlegrar tilveru og leitað svara
við þeim. Hvort þau fást er önnur saga; mestu skiptir að
velta fyrir sér tilverunni og helstu rökum hennar. Og svo
skiptir ekki síður máli að nálgast hlutirna með gleði og
þau þrjú fermingarbörn sem hér er rætt við nefna öll hve
fræðsla vetrarins hafi verið sérlega skemmtileg.
„Mér hefur fundist
ferming-
arfræðslan fram-
andi og skemmti-
leg. Áður taldi ég
mig vita sitt lítið af
hverju um inntak
kristinnar trúar en
þegar við fórum
að kryfja þetta
þekkti ég aðeins helstu stikkorðin.
Það er gaman að fara í gegnum boð-
orðin tíu; að baki hverju þeirra er mikil
saga og sterk skilaboð,“ segir Daníel
Már Guðmundsson sem fermist í
Seljakirkju í Breiðholti 1. apríl nk.
„Sjálfsagt verður allur gangur á því
hvernig manni tekst í fyllingu tímans
að fylgja inntaki boðorðanna. Þú skalt
ekki mann deyða, segir eitt boðorð-
anna og sjálfsagt kemst maður í gegn-
um lífið án slíkra ódæðisverka. Annað
er hins vegar vandasamara. Að girn-
ast ekkert sem náunginn á er hægara
sagt en gert. Maður sér alltaf eitthvað
spennandi og áhugavert í annarra
eigu sem gaman væri að eiga og mað-
ur hlýtur að girnast. Lífið er fullt af
freistingum,“ segir Daníel um ferm-
ingarfræðsluna sem hófst í byrjun
október sl. Síðan þá hafa krakkarnir
komið reglulega í Seljakirkju til sr. Val-
geirs Ástráðssonar og Ólafs Jóhanns
Borgþórssonar.
„Fermingarfræðslan hefur verið
skemmtileg og oft hlegið í tímum. Og
svo hefur verið bryddað upp á ýmsu
skemmtilegu, til dæmis með ferðalag í
Vatnaskóg í haust. Þá þurfum við að
mæta í tíu messur yfir veturinn og ég
vænti þess að ná fullu skori núna í
mars, hef mætt í sjö messur í vetur en
þarf að ná tíu áður en að fermingunni
kemur,“ segir Daníel Már – sem er
sonur Guðmundar Björgvins Daníels-
sonar og Margrétar Valgerðar Helga-
dóttur sem á fermingardeginum halda
syninum veislu í sal Ölduselsskóla.
Daníel Már Guðmundsson
Mikil saga og
sterk skilaboð
„Ferming-
arfræðslan hefur
verið mjög áhuga-
verð. Fyrir mér lá
nánast beint við
og kom af sjálfu
sér í mínu tilviki að
fara í borgarlega
fermingu hjá Sið-
mennt, enda hef
ég aldrei trúað á Guð, hef aldrei tekið
þátt í neinu kristilegu starfi eða leitt
hugann að trúarlegum efnum. Það
hafði líka áhrif að Steinunn systir mín
fermdist borgaralega fyrir tveimur ár-
um og ég ákvað að fylgja hennar
dæmi,“ segir Hrafnhildur Einarsdóttir.
Hrafnildur býr með foreldrum sínum
í Sólbyrgi í Reykholtssdal og er í 8.
bekk Kleppjárnsreykjaskóla. Níu krakk-
ar eru í árgangi hennar og tvö fermast
borgaralega. Önnur fermast kirkjulegri
fermingu og hafa í vetur mætt til
spurninga hjá Borgarfjarðarprestum.
„Ég tel mig fá góðan undirbúning
fyrir lífið með borgaralegri fermingu.
Fræðslan byggist upp á helg-
arnámskeiðum; hinu fyrra í febr-
úarbyrjun og svo er annað námskeið
núna í mars. Þarna höfum við farið yfir
marga áhugaverða hluti, meðal annars
fjallað um málefni líðandi stundar,
brotið þau til mergjar og myndað okkur
skoðun á þeim sem við svo þurfum að
rökstyðja út frá ýmsum vinklum svo
trúverðugt sé. Svo hefur verið fjallað
um fíkniefni, kynlíf og fleiri mál sem
krakkar á mínum aldrei velta eðlilega
mikið að velta fyrir sér. Þannig hefur
fermingarfræðslan verið mjög áhuga-
verð og það hefur sömuleiðis verið
gaman að kynnast nýjum krökkum en
við erum alls 22 í mínum hópi,“ segir
Hrafnhildur sem fermist 22. apríl. Síðar
sama dag verður fermingarveislan
haldin í Reykholtsdal þar sem foreldrar
hennar, þau Einar Pálsson og Kristjana
Jónsdóttir, stunda garðyrkjubúskap.
Hrafnhildur Einarsdóttir
Borgaralegt
lá beint við
„Sjálfsagt fer fjöldi
krakka í fermingar-
fræðsluna með
efasemdir um trú-
málin og þau hafa
ekki endilega mik-
inn áhuga á því að
fermast. En mín
reynsla er sú að
smám saman komi
áhuginn, sérstaklega ef skemmtilegur
prestur leiðir fræðslustarfið og segir
vel frá. Ég þekkti ekki mikið til kristinna
fræða í haust þegar við byrjuðum en
núna finnst mér þetta horfa allt öðru-
vísi við,“ segir Hanna Rakel Bjarnadótt-
ir sem fermist frá Seltjarnarneskirkju 1.
apríl næstkomandi.
Fermingarfræðslan á Nesinu hófst í
október sl. og í allan vetur hefur ár-
gangurinn sem fæddur er 1998 mætt í
vikulega tíma hjá sr. Bjarna Þór Bjarna-
syni sem í vetur þjónar Seltjarnar-
nessókn, en einnig mæta þau í messur
á sunnudögum.
„Auðvitað voru og eru ákveðin atriði
í Biblíunni sem ég efast um og legg
ekki mikinn trúnað á. Ritningin segir til
dæmis frá því að Guð hafi skapað
heiminn á sex dögum og tekið sér frí
þann sjöunda. Mér finnst þetta frekar
ólíklegt miðað við það sem ég hef lært í
skóla. Sr. Bjarni segir að þessar efa-
semdir séu í góðu lagi, enginn þurfi að
taka Biblíuna jafn bókstaflega og nátt-
úrufræðibók,“ segir Hanna Rakel sem
bætir við að fermingarfræðslan vegna
fermingarinnar í vor hafi öll verið sér-
staklega áhugaverð. Dagarnir tveir
sem fermingarhópurinn var saman í
Vatnaskógi nú í byrjun mars verði öll-
um eftirminnilegir.
„Og svo er það fermingarveislan
sem verður haldin í sal úti í bæ og
þangað koma ættingjar og vinir til að
samfagna okkur fjölskyldunni. Ég
hlakka mikið til þessa dags,“ segir
fermingarstúlkan á Seltjarnarnesinu.
Hanna Rakel Bjarnadóttir
Biblían ekki
náttúrufræðibók
F
ermingardagurinn er einn
af stóru dögum lífsins, einn
þeirra daga í lífinu þegar
manni finnst maður vera
eitthvað og skipta máli. Ekki svo
að skilja að mér hafi fundist ég
eiga það skilið. Ég kunni ekki allt
sem ég átti að
læra fyrir ferm-
inguna og mér
var ekki sérlega
rótt yfir því,“
segir sr. Hjálm-
ar Jónsson, dóm-
kirkjuprestur í
Reykjavík, sem
fermdist á Ak-
ureyri vorið
1964. Hann segir
frá sinni ferm-
ingu í ævisögunni Hjartslætti sem
út kom haustið 2009.
„Reynsla mín af fermingardeg-
inum hefur vissulega skýrst eftir
að hafa fylgt mörgum hópum
fermingarbarna gegnum fræðslu
og fermingu. Um leið og ég minn-
ist þessa tíma í mínu lífi vil ég að
þeim líði vel í kirkjunni sinni, að
þau finni sig þar örugg og í sam-
félagi sem þau megi treysta. Þar
er fólk sem vill þeim ekkert annað
en allra besta. Það skiptir líf
manns máli,“ segir sr. Hjálmar og
nefnir einnig fermingargjafirnar
sem voru Kodak-myndavél, arm-
bandsúr, skrifborð, stóll og ein-
hverjir peningar.
„Ég hef aldrei séð neitt rangt
eða ljótt við fermingargjafir, þvert
á móti. Gjafirnar skipta vissulega
máli en fermingin sjálf og áhrifin
sem hátíðin bar skiptu miklu
meira máli. Ég held að krakkar í
dag sem eiga allt hugsi jafnvel
ennþá síður um gjafir en við gerð-
um forðum,“ segir sr. Hjálmar.
sbs@mbl.is
Einn af
stóru dög-
um lífsins
Sr. Hjálmar
Jónsson.
JAKKAFÖT FRÁ
SKYRTUR FRÁ
EGYPSK BÓMULL
18980,-
6990,-
ÁVALLT VEL KLÆDDUR
AKUREYRI S:4627800. SMÁRALIND S:5659730. KRINGLUNNI S:5680800. LAUGAVEGI S:5629730