Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Laugavegi 86 • sími: 511-2004
Glæsilegt
fermingartilboð
K
rökkunum þarf að finnast skemmtilegt að mæta í myndatök-
una og ljósmyndarinn þarf að vera líflegur. Allt annað er smit-
andi á verri veginn. Gleðin skín í gegn sé myndatakan stund
þar sem allir njóta sín og brosa. Síðustu árin hefur sömuleiðis
orðið talsverð breyting á myndunum sjálfum. Þetta er ekki
jafn þvingað og áður var og þótti öðrum þræði sjálfsagt,“ segir Erling
Aðalsteinsson ljósmyndari.
Þegar náttúran tekur lit
Erling hefur starfað sem ljósmyndari til fjölda ára og starfrækir stofu
á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi með sambýliskonu sinni, Sigríði Sigurlínu
Pálsdóttur, Sillu, sem er förðunarmeistari og stílisti og hefur starfað
með mörgum af fremstu ljósmyndurum landsins. Þar sinna þau ýmsum
myndatökum og eðlilega eru fermingarmyndatökur snar þáttur í starfi
þeirra þegar kemur fram á vorið. Myndatökurnar eru samstarf þeirra
beggja.
„Stelpurnar fara gjarnan í prufugreiðslu áður en kemur að ferming-
unni sjálfri og síðustu árin hefur færst í vöxt að þá séu myndirnar tekn-
ar. Nokkrar myndir sem fara í möppu og nokkrar til viðbótar sem fólk
fær í skjáupplausn og er hægt að sýna til dæmis á skjávarpa í ferming-
arveislunni. Þetta fyrirkomulag er vinsælt,“ segir Erling. „Sumir hafa
viljað skipta upp myndatökunni og koma í síðari áfanga myndatökunnar
síðar á vorinu eða jafnvel um sumarið, þegar náttúran hefur tekið lit. Þá
hefur okkur fundist gaman að fara og taka myndir til dæmis hér vestur
á Gróttu, enda er umhverfið þar sérstaklega myndrænt. Stundum höfum
við líka farið með krökkunum sem hafa áhuga á hestamennsku eitthvað
út í sveit eða annars staðar sem hæfir.“
Ein mynd í kyrtli
Að taka myndirnar úti í náttúrunni segir Erling hluta af þeirri þróun
sem átt hefur sér stað í fermingarmyndatökum síðustu árin; það er að
krakkarnir komi í myndver með einhverja þá hluti sem sýna áhugamál
þeirra. Að vera í búningi íþróttaliðsins síns, með gæludýr eða eitthvað
sem tengist áhugamáli þeirra er stíllinn í dag.
„Við leggjum mikla áherslu á að hafa albúmið fjölbreytt og skemmti-
legt. Í því höfum við kannski bara eina mynd í kyrtli en í gamla daga
voru þær myndir fleiri í albúminu. Ég fermdist árið 1974 og á enn til
myndirnar af mér með þykkt hárið, bartana og breiða svarta flauels-
slaufu. Svona hefur nú tískan breyst rækilega,“ segir Erling.
sbs@mbl.is
Myndatakan er
óþvinguð og
gleðin skín í gegn
Erling myndar á Eiðistorgi með Sillu konu sinni. Myndaal-
búmið fjölbreytt og skemmtilegt. Fyrst myndað á stofunni
og síðar úti í náttúrunni. Gróttan er myndrænn staður
Ljósm/Erling
Myndasmiður „Við leggjum mikla áherslu á að hafa albúmið fjölbreytt og skemmti-
legt,“ segir Erling sem starfrækir ljósmyndastofu sína á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi
’Sumir hafa viljað skipta uppmyndatökunni og koma í síð-ari áfanga myndatökunnar síðará vorinu eða jafnvel um sumarið
Hundastelpa Júlía Steindórsdóttir með hundinn sinn á einstaklega fallegri mynd.
Ballerína Fjóla Stefánsdóttir tekur spor inn í
framtíðina á þeim tímamótum í lífinu.
Hopp Andri Búi Sæbjörnsson er einn margra líf-
legra krakka sem Erling hefur myndað.