Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 32
V
ið höfum orðið vör við þá
þróun að fólk hefur áhuga
á að gera veitingar sjálft
fyrir veislurnar og þá er
gott að geta nálgast mikið
af girnilegum og góðum uppskriftum
á einum stað,“ segir Guðný Steins-
dóttir, markaðsstjóri Mjólkursamsöl-
unnar. Á uppskriftavef MS má finna
uppskriftir fyrir veislur af flestum til-
efnum – meðal annars ferming-
arveislur. Af einstökum réttum þar
má meðal annars nefna snittur,
spennandi smárétti, tartalettur, inn-
bakaða osta, ostabakka og gómsætar
tertur sem hæfa vel í ferming-
arveislur
Vefsetrið Gott í matinn er vel sótt.
Þar er að finna alls átján upp-
skriftaflokka, til dæmis uppskriftir að
pitsum og osta- og skyrtertum; kald-
ar og heitar sósur, bakstur, fisk- og
kjötrétti og svona mætti áfram telja.
Á vefnum eru einnig hugmyndir að
ostabökkum. Í flokknum fermingar-
og veisluuppskriftir eru 50 upp-
skriftir og von á fleiri á næstunni.
Uppskriftir á tveggja vikna fresti
Í tengslum við vefinn er starf-
ræktur uppskriftaklúbbur MS en fólk
innan vébanda hans fær sendar upp-
skriftir á tveggja vikna fresti. „Nú
fyrir fermingarnar höfum við tekið
saman fjölda af uppskriftum sem
henta fyrir fermingarveislur og nú
þegar vorið nálgast eru ostabakk-
arnir líka mjög vinsælir, til dæmis
bakkar með Óðalsostum og myglu-
ostum ásamt grænmeti og sultum.
Fremur auðvelt er að gera slíka
bakka og þeir höfða til flestra,“ segir
Guðný sem leggur áherslu á að á
uppskriftavefnum góða megi finna
uppskriftir sem hæfa jafnt byrj-
endum í matargerð sem og lengra
komnum. Allir eigi að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Rúllur með reyktum laxi,
rjómaosti og piparrót
Úr þessari uppskrift eiga að nást
um 20 stk.
20 sneiðar reyktur lax
reyklaxamauk:
125 g rjómaostur
125 g rjómaostur með kryddblöndu
1 tsk. rifin piparrót
250 g reyktur lax
2 msk. saxaður ferskur graslaukur
salt og nýmalaður svartur pipar
½ msk. sítrónusafi
2 msk. sýrður rjómi
Aðferð Blandið saman rjómaost-
unum, kryddið með piparrót, sí-
trónusafa, salti og nýmuldum svört-
um pipar. Saxið graslaukinn og bætið
saman við. Saxið laxinn 250g og bætið
saman við og hrærið vel. Leggið
sneiðarnar á bakka og setjið rjóma-
ostalaxamaukið á sneiðina og rúllið
upp. Skreytið með smá doppu af
sýrðum rjóma á toppinn og skreytið
með graslauk.
Tortillur með pepperoni-osti
og spínati
Úr þessu nást ca. 30 bitar, 6 bitar úr
hverri rúllu
5 stk. stórar tortillukökur
125 g rjómaostur
150 g pepperoni-ostur rifinn
25 sneiðar pepperoni-sneiðar eða saxað
200 g spínat
100 g rauðlaukur saxaður
Aðferð Hitið tortillurnar á pönnu svo
það sé auðveldara að vinna með þær.
Raðið á bretti eða borð. Smyrjið með
rjómaosti, og stráið pepperoni-
ostinum yfir. Leggið pepperoni-
sneiðarnar á og bætið við spínati og
söxuðum rauðlauk. Rúllið upp og
kælið. Skerið í sneiðar og setjið sýrð-
an rjóma á toppinn.
Espressosúkkulaðiterta
Botn
125 g smjör
100 g flórsykur
250 g hveiti
2 eggjarauður
2 msk. kalt vatn
Aðferð: Blandið saman smjöri, flór-
sykri og hveiti. Bætið þar næst í
eggjarauðum og vatni. Hrærið vel
saman. Þrýstið deiginu í springform
ca. 28 cm og setjið vel upp á kantinn.
Kælið í ca. 1 tíma. Setjið smjörpapp-
írsörk í botninn og hrísgrjón yfir
hann og bakið botninn við 180°C í 20
mínútur. Fjarlægið smjörpappírinn
og hrísgrjónin og bakið í 5 mínútur í
viðbót.
Fyllingin
6 blöð matarlím
4 dl rjómi
1 dl nýmjólk
600 gr suðusúkkulaði
100 g smjör
1,5 dl sterkt espressokaffi
Aðferð Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn. Sjóðið saman mjólk og
rjóma og takið af hellunni. Bætið í
söxuðu súkkulaðinu, hrærið vel sam-
an, bætið þar næst í smjörinu og
hrærið vel saman. Kreistið vatnið vel
af matarlíminu og leysið það upp í
espressokaffinu. Blandið saman við
súkkulaðifyllinguna og að lokum hell-
ið fyllingunni í tertubotninn og kælið
vel. Berið fram með þeyttum rjóma
eða góðum ís.
Gott í matinn er vinsælt vefsetur. Tugir girnilegra
uppskrifta með mjólkurvörum. Ostarnir eru í önd-
vegi. Fólk vill útbúa veisluna sjálft, segir Guðný
Steinsdóttir hjá Mjólkursamsölunni.
Uppskriftirnar
á einum stað
Expresso súkkulaði-
terta er afar ljúffeng.
Rúllur með reyktum
laxi, rjómaosti og
piparrót.
Mjólkurdís Nálgast mikið af girnilegum og góðum uppskriftum á einum
stað,“ segir Guðný Steinsdóttir sem er markaðsstjóri hjá MS.
Morgunblaðið/Ómar
Tortillur með peppe-
roni-osti bragðast
frábærlega.
32 | MORGUNBLAÐIÐ
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
FERÐATASKA
FRÁBÆR FERMINGARGJÖF
Fermingjargjöf fyrir stráka og stelpur
Kíktu á drangey.is
Mikið úrval af
gjafavöru fyrir
dömur og herra
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
15% afsláttur
áður 23.400kr.
nú 19.900kr. áður 18.800kr.
nú 15.900kr. áður 12.900kr.
nú 10.900kr.