Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 62
62 | MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
500 Delicious Desserts er bók fyrir áhuga-
kokka á fermingaraldri því eftirréttir eru
kjörleið til að kynnast eldamennskunni,
margir einfaldir og flestir sætir. Hér er eitt-
hvað að finna við allra hæfi.
Íslenski hesturinn er afar ítarlegt og yfirgrips-
mikið rit um hið einstaka hrossakyn sem á Ís-
landi finnst. Eiguleg bók fyrir hestamanninn.
Góðar bækur
gefa skal
The Times Desktop Atlas of the World er
einkar handhægur heimsatlas fyrir þá
sem vilja hnitmiðaða bók um heiminn.
Concise Atlas of the World er bók fyrir þá
sem vilja hafa skýra heimsmynd í kollinum,
vegleg bók og vönduð sem færir lesandanum
skilning og þekkingu á veröld okkar manna.
Veiðimenn Norðursins er margverðlaunuð
ljósmyndabók Ragnars Axelssonar, RAX,
og skartar óviðjafnanlegum ljósmyndum
frá heiminum við Heimskautsbaug.
Reykjavík út og inn er skemmtileg ljós-
myndabók um höfuðstað Íslands, þar sem les-
andinn fer á milli borgarhluta og kynnist hverj-
um stað fyrir sig, oft með alveg nýjum hætti.
Perlur í skáldskap Laxness hefur að
geyma fjölmörg sýnishorn af orð-
snilld Nóbelsskáldsins. Í bókinni er
að finna fjórtán hundruð tilvitnanir
úr verkum Kiljan.
Merkisdagar á mannsævinni er skemmtileg og
fróðleg bók um alla þá hátíðis- og tyllidaga sem
við förum gegnum á lífsleiðinni. Uppruni, merk-
ing og tilgangur allra daganna er hér skýrt fram-
settur af þjóðháttafræðingnum Árna Björnssyni.
Perlur í náttúru Íslands er ítarleg bók um landið
okkar þar sem saman kemur fróðleikur um jarð-
sögu landsins, náttúru landsins frá fjöru til fjalla
og tengingu lands við sögu þjóðarinnar.
Góð bók er lífstíðareign, hvort sem hún talar til
lesandans í máli eða myndum. Á meðan aðrar
gjafir úreldast og slitna blífur bókin og getur
glatt eigandann aftur og aftur. Möguleikarnir til
góðra bókagjafa eru óteljandi þegar fermingar
eru annars vegar en ætla má að einhverjar hug-
myndir leynist hér á síðunni. Af nógu er alltént
að taka í bókaverslunum borgarinnar. Bækurnar
sem hér eru nefndar fást meðal annars í bóka-
verslun Eymundsson.
jonagnar@mbl.is
SKÓLAVÖR‹USTÍG 6B - SÍMI 562 6999
FERMINGARFÖT
Á MÆÐGURNAR
www.marialovisa.com