Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 58
S
trákalínan í fermingarklippingum í ár ber keim
af rokk- og róltímabilinu og gætir sterkra áhrifa
úr þekktum sjónvarps- og bíómyndum og frá
hljómsveitum,“ segir Ævar Østerby, hár-
snyrtimeistari og einn eigenda hársnyrti-
stofunnar Slippsins við Skólavörðustíg. Eyrún Guðmunds-
dóttir, hársnyrtir á Slippnum, segir rómantíska
tískustrauma í anda vinsælla kvikmynda ráðandi í stelpu-
klippingum og -greiðslum að þessu sinni.
Náttúrulegt útlit
„Hjá stelpunum er það umfram allt náttúrulegt útlit sem
ræður,“ segir Eyrún. „Aðalatriðið er að halda í æskuna og
gera allt í hófi, ekki of mikið af neinu. Áhrifin eru greinileg
úr kvikmyndum á borð við Sense and Sensibility eða Emma,
eftir bókum Jane Austen sem gerast í lok 18. og í byrjun 19.
aldar.“
Og hún heldur áfram: „Hárið er látlaust en rómantískt og
hárskraut notað í hófi, þá helst gamaldags hárkambar eða
spennur með semelíusteinum. Margar stelpur safna hári
fram að fermingu og því er sítt hár mjög ráðandi hjá þeim á
fermingardaginn. Margar vilja hafa hárið slegið en sumar
eru til í að breyta til og taka hárið upp sem er mjög fallegt.“
Horft til James Deans
Ævar segir tíma rokksins og rólsins ríkjandi í strákak-
lippingum, tímabilið um 1955, í bland við árin í kringum
1970 þegar allt var orðið frjálslegra. „James Dean er stóra
fyrirmyndin,“ segir hann. „Stutt hár er ráðandi og þá að-
allega snöggt í hliðunum en þyngra að ofan og greitt laus-
lega.
Tískulínan virkar kæruleysisleg og afslöppuð en er út-
hugsuð. Snöggklippt hár í anda aðalpersónanna í sjón-
varpsþáttunum Mad Men er líka vinsælt, vel greitt og
snyrtilegt.“
beggo@mbl.is
Meðfylgjandi myndir sýna nýjustu hártískulínur hjá
fermingarbörnum á hársnyrtistofunni Slippnum. Ævar
Østerby klippti strákana og Eyrún Guðmundsdóttir og
Agnes Hrönn Gunnarsdóttir greiddu stelpunum.
Rokk með rómantík
Bókmennta- og kvikmyndahetjur eru fyrirmyndir fermingarhártískunnar í vor
Rómantískar bylgjur og hárið fest upp í
hliðunum með hárspennum.
Hárið vafið í
flottan snúð og
tekið upp.
Morgunblaðið/Golli
Jane Austen nú-
tímans; fastar
fléttur teknar upp
aftan í hnakka og
restin af hárinu
fest lauslega upp.
Dæmigerður
James Dean,
stutt í hlið-
um og topp-
urinn greidd-
ur upp.
Vel snyrt hár og afslappað yfirbragð í anda
sjónvarpsþáttanna Mad Men.
Hárið greitt
í lausa
fléttu og
rúllað upp,
einfalt og
rómantískt.
Stutt hár í anda
jaðarmenningar
Lundúna sjöunda
áratugarins; áhrif
frá hljómsveit-
unum The Speci-
als og Jam.
58 | MORGUNBLAÐIÐ