Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ
M
ér hefur alltaf fundist
gaman að baka því
þannig fær sköp-
unargleðin að njóta
sín,“ segir Halldór
Sigurðsson, bakari og konditor-
meistari. Nú á útmánuðum stendur
hann fyrir námskeiðum í kransa-
kökugerð fyrir fermingarbörn og
foreldra þeirra. Námskeið þessi,
sem hann hefur staðið fyrir í nokkur
ár, eru haldin í samstarfi við Blóma-
val og haldin í verslunum fyrirtæk-
isins víða um land. Námskeiðin eru
með líku lagi og sambærileg
fræðslukvöld í konfektgerð sem
jafnan hafa verið vinsæl.
Bæði leikni og kunnáttu þarf, að
sögn Halldórs, þegar baka skal
kransakökur. Massinn sem bakað
skal úr þarf að vera rétt samsettur
og fylgja verður uppskrift nokkuð
nákvæmlega. Þegar búið er að vinna
deigið eru mótaðir úr því hringir,
sem eru mældir nákvæmlega svo
þeir geti raðast hver upp á annan á
turninn sem myndar kökuna.
Akureyringar fjölmenna
„Þetta er svolítið vandaverk en
virkilega skemmtilegt. Og í þessu
sambandi er margt að hafa í huga, til
dæmis má deigið ekki vera meira en
átta til tíu mínútur í 170 gráða heit-
um blástursofni. Kjarninn í kökunni
verður að vera blautur – þannig
kemur hið sanna og góða bragð sem
er svo mikilvægt,“ segir Halldór,
sem einnig kenndir fólk að útbúa
súkkulaði og annað það sem er svo
mikilvægt til að skreyta tertuna
góðu. Og það lætur fólk sér vel líka –
enda hafa námskeiðin verið vel sótt
og ekki síst hafa Akureyringar fjöl-
mennt þegar Halldór er norðan
heiða í þeim tilgangi að kenna fólki
kransakökugerð.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Meistari Halldór Sigurðsson hefur lengi starfað við bakstur og kökugerð. Hann fór af stað með kransakökunámskeiðin fyrir nokkrum árum og hafa þau verið fjölsótt og lukkast vel.
Blautur kjarni og bragðið sanna
Sveifla Þetta er svolítið vandaverk en virkilega skemmtilegt, segir Halldór um baksturinn.
Mæðgur Leitað ráða um baksturinn og hið sanna bragð sem ná skal fram í fermingarkökunni góðu.
Bakar í Blómavali og kennir kransakökugerð. Kunnátta
og leikni. Stutt kvöldnámskeið fyrir fermingarbörn og
foreldra. Skemmtilegt, segir Halldór Sigurðsson.