Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 22
F
arðinn frá Youngblood er
léttur og gerir húðinni
kleift að anda.
„Youngblood-farðinn
getur kallað fram létta
förðun sem ætluð er ferming-
arstúlkum,“ segir María Valdimars-
dóttir hjá Ilma. „Ung húð ætti að
leyfa æskuljómanum að njóta sín og
markmiðið í raun að draga fram það
besta í útliti hvers og eins, fríska að-
eins upp á húðlitinn og skerpa augn-
svipinn.
Einn af kostum farðans er sá að
hann helst lengi fallegur á húðinni
og það þarf í raun ekki að laga hann
til yfir daginn,“ bendir María á. „Það
er mikill kostur þar sem þetta er oft
langur og annasamur dagur.“
Youngblood Starter Kit inniheldur
allt sem þarf fyrir förðunina, eina
sem þarf er að bæta við litalínu eins
og gloss, maskara og ef til vill augn-
skugga, allt eftir því hvað mikla
förðun er um að ræða.
Natural Mineral-farðinn frá
Youngblood getur hentað vel fyrir
þær sem eru með einhver óhreinindi
til að fela, þar sem hægt er að nota
hann sem „concealer“ til að hylja
roða og óhreinindi og bursta svo létt
yfir andlitið. Þannig næst að hylja
það sem þarf að hylja án þess að
förðunin verði of þung.
High Defenition High Defenition
er frábært laust púður yfir allan
farða sem fullkomnar förðunina.
Farðinn helst frísklegur lengur,
sléttir yfirborð húðarinnar og kemur
sérstaklega vel út fyrir myndatök-
una.
Hrein húð er grundvallaratriði
Kristín Guðmundsdóttir hjá
Snyrtistofunni Krismu í Grafarvogi
segir mikilvægt fyrir ungar stelpur
sem eru að byrja að farða sig að
temja sér strax að þrífa húðina vel.
„Hrein húð er undirstaða fallegrar
förðunar þó svo að farðinn geti gert
kraftaverk,“ segir Kristín. „Einnig
er mikilvægt að nota gott rakakrem
undir farðann.“ Kristín segir að-
alkostinn við Youngblood Natural
Mineral Foundation að farðinn sé
það léttur að vel lofti gegnum hann
að húðinni og hann stífli ekki. Þann-
ig megi ná fram náttúrulega fallegri
förðun og hylja misfellur og roða án
þess að virðast áberandi farðaður.
„Ekki spillir heldur að Youngblood-
förðunarlínan er unnin úr nátt-
úrulegum steinefnum. Farðinn er
100% náttúrulegur, olíulaus og án
allra kemískra efna. Vörurnar eru
einstakar fyrir náttúrulegan eig-
inleika sinn að geta andað í gegnum
húðina og henta fyrir allar húðteg-
undir. Merkið býður upp á breiða li-
talínu bæði fyrir andlit, augu og var-
ir.“
jonagnar@mbl.is
Fyrirsæta: Þóra Helgadóttir
Svona notar þú Youngblood:
1. Settu örfáar agnir af farðanum í lokið, rúllaðu innan úr
því með burstanum og dustaðu af með því að slá létt
með burstanum á lokið.
2. Burstaðu andlitið með hringlaga hreyfingum. Byrjaðu
við kjálka og færðu burstann upp á við.
3. Því betur sem burstanum er rúllað um andlitið
því þéttari verður áferðin. Þegar húðin hitnar sam-
lagast farðinn henni fullkomlega.
4. Auðvelt er að stjórna hversu mikið farðinn á að
hylja með því að auka magnið af farðanum.
Mild og falleg
fermingar-
förðun
Á fermingardaginn vilja stúlkurnar líta sem allra
best út og þá er gaman að geta gripið til farða
sem ekki er of áberandi.
Youngblood Natural
Mineral Foundation
Youngblood Minreal
Rice Setting Powder.
Youngblood Sher-
bet Crushed Min-
real Bluxh.
Youngblood Kabuki
Blending Brush
Youngblood Hi-
Definition Hy-
drating Mineral
Perfecting
Powder.
Youngblood Barely
Beige Mineral
Foundation.
22 | MORGUNBLAÐIÐ
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Fermingartilboð
Rúmföt frá 7.990 kr
Sendum frítt úr vefverslun