Morgunblaðið - 09.03.2012, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ | 57
Persónuleg þjónusta
í 20ár
Fermingin og
áhugamálin!
fyrir dansara
fyrir dýravini
fyrir íþróttagarpa
Munið
fermingarbréfið
með afslættinum!
Opið til kl. 21:00 öll kvöldwww.hjahrafnhildi.is • Sími 581 2141
Glæsilegur
sparifatnaður
í úrvali
Stærðir 36-52i -
Þ
að er segin saga að snúið
getur verið að finna ferm-
ingargjöf sem gleður við-
komandi fermingarbarn í
bráð og lengd. Ekkert var-
ir að eilífu en sumar gjafir endast þó
betur en aðrar. Þegar kemur að
gjöfum sem halda verðgildi sínu til
langs tíma litið gæti verið sterkur
leikur að gefa stól í herbergi ferm-
ingarbarnsins sem er ekki einasta
glæsilegt stáss nú þegar, heldur
mun halda gildi sínu sem sígild
hönnun um ókomna tíð.
Hagnýta hliðin á gjöfinni er sú að
markaður með notuð húsgögn eftir
eftirsóttustu hönnuði er ákaflega
virkur og vel með farin eintök sem
komin eru til ára sinna geta haft
aukið söfnunargildi og verið enn
verðmætari en sams konar eintak
beint úr kassanum. Því mætti leiða
líkum að því að gjöfin geri gagn
ásamt því að vera áberandi prýði svo
lengi sem viðtakandinn kærir sig um
að eiga gripinn, og ef og þegar að því
kemur að selja ætti það að reynast
tiltölulega létt verk án þess að gjöfin
þurfi að seljast með afföllum, svo
fremi sem eigandinn hefur farið vel
með hana. Meðfylgjandi myndir
gefa ágætis dæmi um slík húsgögn.
Sannarlega svolítið mikil fjárfesting,
en talsvert öruggari en margar aðr-
ar. Ekkert bankahrun rýrir verð-
gildi Svans eftir Arne Jacobsen, vel
að merkja.
jonagnar@mbl.is
Fjárfesting í fermingargjöf
Svanurinn, Swan Chair,
eftir Arne Jacobsen (1958)
Womb Chair ásamt fótskemli eftir Eero Saarinen (1946)
Kollar úr gegnheilli hnotu eftir
Ray og Charles Eames (1960)
Panton Chair eftir Verner
Panton (1960)
Öllum er í mun að gefa
fermingargjöf sem veitir
viðtakandanum gagn og
gaman til lengri tíma, og
helst út ævina. Að kaupa
sígilda mublu gæti gert
það og verið ágæt fjárfest-
ing í leiðinni.
Moooi Smoke Chair, eftir
Maarten Baas (2002)
Barcelona Chair eftir
Mies van der Rohe (1929)