SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 7
8. apríl 2012 7
Óvenjulegt er að knatt-spyrnulið sé að mestu skipaðheimamönnum nú til dags.Að minnsta kosti lið sem eitt-
hvað er varið í að fylgjast með!
Þegar grannt er skoðað getur það meira
að segja farið eftir því hvernig á málið er
litið, hver telst heimamaður og hver ekki.
En það er önnur saga.
Frægasta heimamanna-dæmi knatt-
spyrnusögunnar er líklega þegar Celtic
varð Evrópumeistari 1967, fyrst breskra
félagsliða; þá voru allir leikmenn liðsins
fæddir í borginni eða næsta nágrenni
hennar.
Manchester United tefldi á tímabili fyr-
ir fáeinum árum fram mörgum strákum,
sem komu upp í aðalliðið úr unglinga-
starfinu; Neville bræðurnir, Gary og Phil,
David Beckham, Paul Scholes, Ryan Giggs
og Nicky Butt voru þar samtíða við frá-
bæran orðstír. Liðið var óstöðvandi um
tíma.
Fleiri dæmi mætti nefna en þau eru
sjaldgæf, það nýjasta auðvitað besta lið
heims í dag, Barcelona. Furðu margir
snillinganna sem þar leika listir sínar
komu í heiminn í borginni eða þar í
grennd. Máttarstólpar þó fjarri eins og
Alves hinn brasilíski og argentínska
undrið Messi. Einhver kann þó að spyrja:
Telst hann ekki heimamaður? Hann kom
upp úr unglingastarfi félagsins! Það var
vegna þess að Barcelona fékk fjölskylduna
til að flytja frá Argentínu þegar strák-
urinn var liðlega tíu ára, af þeirri ástæðu
hve mikið efni hann þótti. Velta má fyrir
sér hugtakinu. Hve lengi þarf aðkomu-
maður að búa á Akureyri til að teljast
heimamaður?
Stundum fullyrða áhugamenn um
þennan skemmtilega boltaleik að þeir vilji
helst af öllu sjá „sína“ menn skrýðast
búningi eigin félags; stráka (eða stelpur)
úr bæjarfélaginu og helst ekki einu sinni
úr röðum annars liðs, þó innan bæjar-
markanna sé. En hvort er betra að
horfa á „sína“ menn ef liðið getur
aldrei neitt, eða að það sé skipað
nokkrum gestum, í bland við heima-
menn, og árangur náist? Að liðið
Chelsea 14 ára. Hvenær á að byrja að telja?
Lampard kom til Chelsea 17 ára en eng-
inn kyssir merkið á treyjunni þó af meiri
ástríðu en téður Frank.
Er Manuel Neuer, markvörður Bayern
München og Þýskalands, heimamaður?
Hann er frá Gelsenkirchen og hóf ferilinn
hjá Schalke ’04 og kom ekki til Bayern
fyrr en á síðasta ári. Er þó að sjálfsögðu
orðinn „okkar maður“ á vörum Bæverja.
Ekki síður en einn þekktasti forveri hans,
Oliver Kahn, sem var frá Karlsruhe.
Og þetta á ekki bara við um útlönd. Hve
margir „uppaldir“ KR-ingar voru í
meistaraliði síðasta árs? Hve margir „al-
vöru“ FH-ingar í FH-liðinu?
Skipti þetta einhverju máli?
Heimafenginn
baggi hollastur?
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Frá Gelsenkirhen... Manuel Neuer, mark-
vörður Bayern og þýska landsliðsins.
Franskur!Franck Ribery átti stóran þátt í
sigri Bayern gamla liðinu sínu, Marseille.
AP AP
’
Hvort er betra að liðið
mitt „geti eitthvað“
eða að það sé að
mestu skipað heimamönn-
um?
vinni glæsta sigri og gleðji stuðnings-
mennina.
Því verður hver að svara fyrir sig.
Hætt er við því að stuðningsmenn
Chelsea í London, svo dæmi sé tekið,
væru til í slag við þann sem héldi því fram
að John Terry og Frank Lampard væru
ekki heimamenn. Hóf þó hvorugur fer-
ilinn með Chelsea; fyrsta félag beggja var
West Ham, en Terry fór reyndar til
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni kynnir byggingu 49 þjónustuíbúða að Hólabergi 84 í
Reykjavík. Íbúðirnar verða tengdar við Menningarmiðstöðina Gerðuberg þar sem mikið og öflugt
félagslíf er fyrir eldri borgara. Að auki er bókasafn staðsett í Gerðubergi sem og mötuneyti.
Í nánasta umhverfi Gerðubergs er heilsugæsla, tannlæknastofa, bakarí, Fella- og Hólakirkja auk
þess sem Breiðholtslaug er hinum megin götunnar.
GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR FYRIR ELDRI BORGARA
KYNNIR
Hólaberg 84, Reykjavík
FAGRABERG
Allar nánari
upplýsingar á
www.fagraberg.is
Söluaðili: Byr fasteignasala
Sími: 483 5800 - www.byrfasteign.is
Byggingaraðili:
Sveinbjörn Sigurðsson hf.
www.fagraberg.is
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TILBÚNA
R
TIL AFHENDINGAR Í NÓVEM
BER!
Verð frá:
65 fm íbúð, stæði í bílakjallara
22.292.000,- kr.*
90 fm íbúð, stæði í bílakjallara
30.085.000,- kr.*
* Verð miðast við byggingavísitölu í apríl 2012.