SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Síða 9
8. apríl 2012 9
Stuttmyndin Blæbrigðier byggð á smásögueftir Guðrúnu EvuMínervudóttur úr
bókinni Á meðan þú horfir á
mig er ég María mey. Myndin
er hluti af röð
stuttmynda
sem Mbl.
Sjónvarp sýnir
á sunnudögum
í samvinnu við
Kvikmynda-
skóla Íslands.
Anní Ólafs-
dóttir bæði
leikstýrir
myndinni og skrifar handrit en
Blæbrigði er lokaverkefni
hennar frá skólanum en hún
útskrifaðist síðasta vor.
Aðstoðarleikstjóri Blæbrigða
er Elvar Gunnarsson og kvik-
myndatökumaður Hilmir Berg
Ragnarsson.
Myndin fjallar um Lilju,
unga listakonu (Camille Mar-
mié), en hún átti í ástarsam-
bandi við aðra konu, Sunnu
(Vivian Ólafsdóttir), sem
skyndilega hættir að sýna
henni áhuga. „Lilja hverfur inn
í hugarheim sinn þar sem þrá-
hyggjan vex og dafnar um full-
komnu konuna,“ segir í til-
kynningu.
Anní hefur starfað við kvik-
myndagerð frá útskrift. Hún er
að leggja lokahönd á heimild-
armynd um Reykjavík
Runway, sem hún byrjaði á
síðasta sumar. Fleira sem hún
hefur gert tengist tískuheim-
inum en hún gerði stemnings-
myndbandið á sýningu ZISKA,
tískumerki Hörpu Ein-
arsdóttur, á Reykjavík Fashion
Festival sem fram fór í Hörpu
um síðustu helgi. Hún var
ennfremur tökumaður í kvik-
myndinni Einn, eftir Elvar
Gunnarsson.
ingarun@mbl.is
Myndin fjallar um Lilju,
unga listakonu (Camille
Marmié) en hún átti í ást-
arsambandi við aðra konu,
Sunnu (Vivian Ólafsdóttir),
sem skyndilega hættir að
sýna henni áhuga.
Þráhyggja um
fullkomnun
Kvikmyndir
Anní Ólafsdóttir
Anní Ólafsdóttir bæði leikstýrir
myndinni og skrifar handrit en
Blæbrigði er lokaverkefni hennar
frá Kvikmyndaskóla Íslands en
hún útskrifaðist síðasta vor.
UPPFÆRUM
ÍSLAND
AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2012 MIÐVIKUDAGINN 18. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA.
Fundarstjóri er Ari Edwald, forstjóri 365 miðla.
OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16
• Ávarp: Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
• Ávarp: Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi
og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands
UPPFÆRUM STRAX
• Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar Matorku
• Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis
• Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical
• Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands
Netagerð og spjall
• Vetur kvaddur og sumri fagnað. Digital Blur leikur uppfærða nútímatónlist.
SKRÁNING Á WWW.SA.IS
ÞJÓNUSTULANDIÐ
FERÐAMANNALANDIÐ
MATVÆLALANDIÐ
LITLA ÍSLAND
LAND SKÖPUNAR OG
AFÞREYINGAR
LAND IÐNAÐAR OG
ORKUNÝTINGAR
SJÁVARLANDIÐ
HÁTÆKNILANDIÐ