SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Blaðsíða 14
14 8. apríl 2012
Já! svöruðu systkinin Helga Þóra ogÓlafur Haukur, eins og önnur börn,þegar séra Örn Bárður Jónsson íNeskirkju spurði hvort þau vildu
leitast við að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs
síns.
„Þessi dagur var í mínum huga mjög
þýðingarmikill enda tek ég ferming-
arheitið alvarlega,“ segir Ólafur Haukur
og fjölskyldan öll var gríðarlega ánægð og
stolt.
Ólafur Haukur og Helga Þóra fæddust 5.
desember 1998. Móðir þeirra er Helga
Guðrún Johnson og Kristinn Gylfi Jónsson
er faðir þeirra. Að auki eiga Helga Guðrún
og Kristinn Gylfi þau Auði, sem er tvítug,
og Jón Bjarna, sem er 18 ára.
Mikið tilstand
Fjölskyldan tók daginn snemma eins og
nærri má geta. Fjölskylduvinurinn Arna
Guðrún Þorsteinsdóttir var svo elskuleg
að stökkva á fætur í dagrenningu, eins og
Helga Guðrún orðaði það, til að greiða
Helgu Þóru, sem fékk bæði fléttur og
slöngulokka. Stóra systir púðraði hana
svolítið og puntaði áður en hún skellti sér í
fermingarkjólinn. Lánaði henni svo hvítt
pelsdýr um hálsinn í stað kápu, en veðrið
var einstaklega milt og stillt svo engin þörf
var á yfirhöfn.
„Ég hef aldrei áður upplifað svona mik-
ið tilstand. Hárgreiðsla og förðun og
hvaðeina,“ segir Helga Þóra. „En ég get
ekki sagt annað en að ég hafi haft mjög
gaman af þessu. Mér fannst athöfnin í
kirkjunni mjög hátíðleg og eftirminnileg.
Stóri bróðir, Jón Bjarni, sér til þess að bindishnútur fermingardrengsins ́sé fullkominn. Auður stóra systir púðrar Helgu Þóru.Helga Þóra í snyrtingu að morgni dags.
Gott að deila
sviðsljósinu
Hvorki meira né minna en þrennir tvíburar
fermdust í Neskirkju á laugardagsmorgni um
síðustu helgi. Sunnudagsmogginn fylgdist með
einum þeirra, Ólafi Hauki og Helgu Þóru Krist-
insbörnum, frá morgni til kvölds.
Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Texti: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Myndarleg! Fermingarbörnin sæl á svip meðan móðirin, Helga Guðrún Johnson, smellir af.
Beðið eftir kyrtlum. Þarna sjást Hrafnhildur Birta Valdimarsdóttir, Aníta Ósk Birgisdóttir og Ragna Birna Ægisdóttir, auk Helgu Þóru.