SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 21

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 21
8. apríl 2012 21 með gæði heims, líka náttúruna. Við eigum að taka Biblíuna al- varlega en ekki bókstaflega. Túlkun Biblíunnar í samtíma varðar, að orð hennar veki líf og verndi. Biblían er ekki handbók um siðferði, heldur farvegur lif- andi orðs Guðs. – Hvernig ætlar þú að beita þér fyrir því að endurreisa orð- spor kirkjunnar? Kirkjan er kölluð til að vera salt og ljós í heiminum. Í því felst m.a. að lýsa upp skúmaskot sálar og sársauka, sem kreppa okkur innvortis og gera okkur hörð og ónæm fyrir þjáningu annarra. Í boðun sinni á kirkjan að skerpa á þeim viðmiðum og gildum, sem gera okkur að Íslendingum og tala kjark og von í þjóðina á tím- um þegar bölmóður og nei- kvæðni fær mikið rými. Kristin trú laðar fólk til lífs í frelsi og ást. Þess vegna lætur kirkjan sig varða hvernig samfélag við byggjum og hvernig manneskj- unni reiðir af. Ef þjóðkirkjunni tekst að miðla þessu og vera sjálf trú mun orðspor hennar batna. Nýleg könnun á trausti til hennar leiddi í ljós, að Íslendingar treysta prestum og söfnuðum betur en þjóðkirkjustofnuninni. Sama könnun sýndi, að fólk sem sækir þjónustu kirkjunnar treystir henni. Það eru góðar fréttir fyrir kirkjuna því það sýnir, að þjónustan sem veitt er í söfnuðunum um allt land er góð. Við þurfum að lyfta þessu starfi betur upp og vekja á því athygli þannig að fleiri fái notið starfs- ins. Það mun leiða til aukins trausts. Traust er forsenda þess, að fólk vilji vera í þjóðkirkjunni og að þau, sem hafa orðið fyrir vonbrigðum með kirkjuna vilji ná sáttum við hana að nýju. Stjórnsýsla kirkjunnar hefur ekki verið eins gegnsæ og skil- virk og við vildum. Úr því þarf að bæta. Ég tel, að Biskupsstofa eigi að vera þjónustumiðstöð kirkjunnar, sem gagnast öllum söfnuðum þjóðkirkjunnar. Kirkjan þarf að taka til í eigin skipulagi og hreinsa burtu það, sem þjónar ekki tilgangi hennar og bæta við því, sem styrkir hana í því að boða fagnaðar- erindið um Jesú Krist. Í skipu- lagsmálum kirkjunnar á að hlusta grannt á heimafólkið og það á að ráða sínum málum að mestu. Dreifræðið er affarasælt. Kirkjan er eins og fjölskylda – Telur þú að með nýjum bisk- upi megi fá aftur til liðs við þjóðkirkjuna þá sem hafa yf- irgefið hana á undanförnum árum? Eitt af mikilvægum hlut- verkum biskups er að stíga inn í almannarýmið og þjóna þjóðinni með því að tala með visku trú- arinnar inn í aðstæður líðandi stundar. Þannig talar biskupinn við þau, sem eru utan kirkju og leggur sitt lóð á vogarskálar. Ég tel brýnt að nálgast þau, sem hafa sagt sig úr kirkjunni á undanförnum árum. Kirkjan er eins og fjölskylda og það er alltaf sárt þegar einhver hverfur á brott, kannski í sársauka og ósætti. Við viljum fá tækifæri til að mæta þessu fólki þannig að það finni sig velkomið í kirkjuna aftur og geti leitað til hennar um þjónustu í dagsins önn og á gleði- og sorgarstundum í lífinu. – Sífellt stærri hluti íbúa landsins ýmist afneitar allri trú eða aðhyllist önnur trúarbrögð en kristni. Er þörf á auknu kristniboði á Íslandi? Ætlar þú að beita þér fyrir því verðir þú kosinn biskup? Allt líf kirkjunnar er kristni- boð. Í öllu sem kirkjan tekur sér fyrir hendur lyftir hún upp boð- skapnum um líf og starf Jesú Krists, sem þjónaði fólki og stóð með því í aðstæðum lífsins. Öfl- ugasta kristniboðið er fólgið í góðu kirkjustarfi, í nærsam- félaginu og á torgi mannlífsins. Kirkjan nýtur mikils mannauðs í starfsfólki og sjálfboðaliðum um allt land í starfi sínu. Það má líka spyrja í þessu samhengi hvernig kirkjan eigi að bregðast við fjölmenningu og fjölbreytileika samfélagsins. Mitt svar er þetta: Kirkjan á að fagna fjölbreytileikanum. Hún á að opna, en ekki loka á straumana sem móta samfélagið og menn- inguna. Kirkjan er kölluð til að þjóna heiminum og gerir ekki upp á milli þeirra sem tilheyra henni og annarra. Í því sem öðru eigum við að fylgja fordæmi Jesú Krists, sem elskaði fólk og þjón- aði algerlega. – Hver er afstaða þín til hjónavígslu samkynhneigðra? Ég er fylgjandi henni og vann að breytingu á afstöðu þjóð- kirkjunnar til einna hjúskap- arlaga. Ég fagna því, að samkyn- hneigðir geti gengið í hjónaband fyrir augliti Guðs og manna. Við erum lánsöm, að á Íslandi ríkir samstaða um, að mismuna ekki á grundvelli kynhneigðar og að hér eru í gildi ein hjúskaparlög. Þjóðkirkjan var samstiga lög- gjafanum þegar lögin tóku gildi 27. júní 2010 og tók sama dag í notkun nýtt hjónavígsluform fyrir alla, sem gifta sig í kirkj- unni. Kirkjan lítur hjónaband sam- kynhneigðra sömu augum og hjónaband karls og konu. Sömu áskoranir og gleðiefni mæta þeim og bæn kirkjunnar yfir hjónum lýtur að því sama hvort sem um er að ræða tvo karla, tvær konur eða karl og konu. Bænin er, að hjónunum auðnist að elska hvort annað, treysta og vera trú á lífsgöngunni. Styrkja þarf kirkjuþing – Hvert finnst þér að hlutverk leikmanna og kirkjuþings eigi að vera? Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum kirkjunnar og þar starfa prestar og leikmenn í sameiningu að því að bæta regluverk kirkjunnar og marka henni stefnu. Meirihluti þing- manna eru leikmenn og forseti kirkjuþings kemur úr þeirra röðum. Við þurfum að styrkja kirkjuþing að mínu mati og festa í sessi menningu samstarfs og gagnsæis. Frumvarp til nýrra þjóð- kirkjulaga markar stefnu í þá átt og að styrkja leikmenn enn frek- ar sem forystufólk í þjóðkirkj- unni. Ég er fylgjandi þeirri stefnu og tel aukna þátttöku og ábyrgð leikmanna forsendu þess að kirkjan dafni á 21. öldinni. Það er viska lútherskrar kirkju, að öll þau sem eru skírð, séu fullgildir meðlimir í kirkj- unni. Þessi hugsun var hvati þróunar íslensks lýðræðis og lýðveldis. Lúthersk kirkja á ekki að vera biskupakirkja eða prestakirkja. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga þegar við metum skipulag kirkjunnar. Að- alatriðið er auðvitað að skipulag kirkjunnar og stjórnsýsla hennar þjóni erindi hennar – sem er að boða trú á Jesú Krist og miðla til fólks hinum stórkostlegu frétt- um um ást Guðs. Minni stjórnsýslubiskup – Kirkjan hefur verið gagnrýnd fyrir mikla miðstýringu úr Reykjavík. Munt þú beita þér fyrir meiri valddreifingu og gera grasrótina, sóknirnar um allt land virkari? Á síðustu árum hefur mikið af verkefnum kirkjunnar færst frá ráðuneyti yfir til Biskupsstofu, sem er skrifstofa biskups Íslands og kirkjuráðs. Nauðsynlegt er að greina skýrar á milli þannig, að mörkin milli verkefna kirkju- þings og kirkjuráðs annars vegar og biskups Íslands hins vegar séu skýrari. Ég hef talað fyrir því, að bisk- up Íslands verði minni stjórn- sýslubiskup og meiri kirkju- biskup og tel nauðsynlegt, að hann stígi út úr því hlutverki að vera framkvæmdastjóri kirkj- unnar og inn í það hlutverk að vera andlegur leiðtogi, í sam- ræmi við skilning lútherskra kirkna á eðli biskupsembætt- isins. Að mínu mati á biskup ekki að vera í forsæti í kirkju- ráði, en hann á að sitja alla fundi kirkjuráðs með tillögurétt og málfrelsi og atkvæðisrétt. Ég er fylgjandi því, að draga úr miðstýringu og tel að verkefni megi hýsa í prófastsdæmum og/ eða sóknum. Dæmi um slíkt eru verkefni á sviði æskulýðsstarfs. Ég hef ýmis verkefni í huga sem ég vil gjarnan að verði til- raunaverkefni. Við eigum að virkja þekkingu og frumkvæði heima í héraði og nýta okkur visku heimafólks og mannauð kirkjunnar um allt land. – Aðskilnaður ríkis og kirkju. Er hann þegar hæfilegur, hvaða fyrirkomulag kýst þú? Það gefur að mínu mati ekki alveg rétta mynd að spyrja um aðskilnað ríkis og kirkju eins og staðan er nú því að það er sam- band á milli kirkjunnar og rík- isins og það verður áfram þótt tengslin breytist. Betra er að spyrja hvernig þessi tengsl eigi að vera. Hið opinbera verður að hafa afskipti af trúfélögum og starfsemi þeirra, rétt eins og menntastofnunum. Þjóðkirkjan er langstærsta trúfélagið, sem flestir tilheyra og með viðamestu starfsemina. Um samband ríkis og trúfélaga þarf að ræða og ég mun beita mér fyrir samtalinu sem biskup Íslands. Það þarf að ríkja sátt um fyrirkomulag og starf trúfélag- anna í landinu og að því vil ég vinna. Ósátt um samband ríkis og kirkju þjónar ekki mark- miðum kirkjunnar. Varðandi stjórnarskrána þá tel ég, að í henni eigi að vera grein um grundvallargildi og að í þeirri grein eigi að nefna kristni. Nýja gildaákvæði norsku stjórn- arskrárinnar er fyrirmynd, sem mér hugnast og tel þarft að ræða. Ég tel einnig, að standa eigi í stjórnarskránni að hin evang- elísk-lútherska kirkja sé þjóð- kirkja, en ég held ekki að það hafi úrslitaáhrif á líf og lífsmögu- leika þjóðkirkjunnar hvort hún er varin í stjórnarskrá. Þar koma til önnur atriði svo sem trú- málalöggjöf, virðing fyrir samn- ingum sem ríki og kirkja hafa gert, þjóðkirkjulöggjöf og al- menn þróun íslensks samfélags og menningar. Þjóðkirkjan á ekki að njóta forréttinda eða sér- réttinda umfram önnur trúfélög í landinu. – Nú innheimtir ríkið sókn- argjöld fyrir kirkjuna en lækkar þau að hentugleikum. Telur þú rétt að kirkjan hafi heimild til að ákveða sjálf sín sóknargjöld svipað og sveitarfélög ákveða útsvar? Það er ekki ágreiningur um sóknargjöldin sem slík. Vandinn er sá, að ríkið hefur innheimt þessi félagsgjöld en ekki skilað þeim að fullu til trúfélaganna í landinu, þar með talið þjóð- kirkjunnar. Ég tel að ríkið eigi að standa við ákvæðin í lögum um sóknargjöld og eigi að standa full skil á þeim sóknargjöldum sem það innheimtir. Í máli innanríkisráðherra við setningu kirkjuþings síðasta haust kom fram, að sóknargjöld hafa verið skert mun meira en framlög til annarra sambærilegra stofnana. Úr þessu þarf að bæta strax, enda miklir hagsmunir í húfi því skerðingin kemur niður á starfi kirkjunnar um allt land. Baráttan fyrir leiðréttingu sókn- argjaldanna verður eitt af þrem- ur fyrstu verkum mínu í emb- ætti. – Hvernig biskup þarf kirkjan nú? Þjóðkirkjan þarf biskup sem hefur skýra framtíðarsýn, hún þarf biskup sem getur eflt sam- kennd innan kirkjunnar og hún þarf biskup, sem getur talað þannig til kirkjufólks og þjóð- arinnar, að þau sem hafa gengið úr kirkjunni vilji ganga í hana aftur. Sameiningartákn Biskup þarf á öllum öldum að bera elsku í hjarta sínu, elsku til samstarfsfólks síns, safnaðanna, samfélagsins og skapara síns. Biskupinn á að vera sameining- artákn og sem slíkur þarf hann að koma vel fram fyrir kirkjuna og vera trúverðugur talsmaður þess breiða og litríka samfélags, sem þjóðkirkjan er. Það er svo lykilatriði, að biskupinn virki og valdefli fólkið í kringum sig – þannig blómstrar og dafnar kirkjan til góðra verka. Það er vor í kirkjunni og fram- tíð kirkjunnar er björt á meðan hún heldur sig við orðið, sem leysir og frelsar. Við göngum inn í páskahátíðina og fáum enn einu sinni að meðtaka undur uppris- unnar og leyfa henni að verða að veruleika í lífi okkar. Jesús Kristur lifði til að rétta fólk við og endurvekja líf heimsins. Af þeirri ástarsögu Guðs þiggur kirkjan erindi sitt, tilgang og líf. ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30 Opið um helgar frá 18:00 - 23:30 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞRÍR FRAKKAR Café & Restaurant Ferskt og freistandi

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.