SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Page 21
8. apríl 2012 21
með gæði heims, líka náttúruna.
Við eigum að taka Biblíuna al-
varlega en ekki bókstaflega.
Túlkun Biblíunnar í samtíma
varðar, að orð hennar veki líf og
verndi. Biblían er ekki handbók
um siðferði, heldur farvegur lif-
andi orðs Guðs.
– Hvernig ætlar þú að beita
þér fyrir því að endurreisa orð-
spor kirkjunnar?
Kirkjan er kölluð til að vera
salt og ljós í heiminum. Í því felst
m.a. að lýsa upp skúmaskot sálar
og sársauka, sem kreppa okkur
innvortis og gera okkur hörð og
ónæm fyrir þjáningu annarra. Í
boðun sinni á kirkjan að skerpa á
þeim viðmiðum og gildum, sem
gera okkur að Íslendingum og
tala kjark og von í þjóðina á tím-
um þegar bölmóður og nei-
kvæðni fær mikið rými. Kristin
trú laðar fólk til lífs í frelsi og ást.
Þess vegna lætur kirkjan sig
varða hvernig samfélag við
byggjum og hvernig manneskj-
unni reiðir af.
Ef þjóðkirkjunni tekst að
miðla þessu og vera sjálf trú mun
orðspor hennar batna. Nýleg
könnun á trausti til hennar
leiddi í ljós, að Íslendingar
treysta prestum og söfnuðum
betur en þjóðkirkjustofnuninni.
Sama könnun sýndi, að fólk sem
sækir þjónustu kirkjunnar
treystir henni. Það eru góðar
fréttir fyrir kirkjuna því það
sýnir, að þjónustan sem veitt er í
söfnuðunum um allt land er góð.
Við þurfum að lyfta þessu starfi
betur upp og vekja á því athygli
þannig að fleiri fái notið starfs-
ins. Það mun leiða til aukins
trausts. Traust er forsenda þess,
að fólk vilji vera í þjóðkirkjunni
og að þau, sem hafa orðið fyrir
vonbrigðum með kirkjuna vilji
ná sáttum við hana að nýju.
Stjórnsýsla kirkjunnar hefur
ekki verið eins gegnsæ og skil-
virk og við vildum. Úr því þarf
að bæta. Ég tel, að Biskupsstofa
eigi að vera þjónustumiðstöð
kirkjunnar, sem gagnast öllum
söfnuðum þjóðkirkjunnar.
Kirkjan þarf að taka til í eigin
skipulagi og hreinsa burtu það,
sem þjónar ekki tilgangi hennar
og bæta við því, sem styrkir
hana í því að boða fagnaðar-
erindið um Jesú Krist. Í skipu-
lagsmálum kirkjunnar á að
hlusta grannt á heimafólkið og
það á að ráða sínum málum að
mestu. Dreifræðið er affarasælt.
Kirkjan er eins og fjölskylda
– Telur þú að með nýjum bisk-
upi megi fá aftur til liðs við
þjóðkirkjuna þá sem hafa yf-
irgefið hana á undanförnum
árum?
Eitt af mikilvægum hlut-
verkum biskups er að stíga inn í
almannarýmið og þjóna þjóðinni
með því að tala með visku trú-
arinnar inn í aðstæður líðandi
stundar. Þannig talar biskupinn
við þau, sem eru utan kirkju og
leggur sitt lóð á vogarskálar.
Ég tel brýnt að nálgast þau,
sem hafa sagt sig úr kirkjunni á
undanförnum árum. Kirkjan er
eins og fjölskylda og það er alltaf
sárt þegar einhver hverfur á
brott, kannski í sársauka og
ósætti. Við viljum fá tækifæri til
að mæta þessu fólki þannig að
það finni sig velkomið í kirkjuna
aftur og geti leitað til hennar um
þjónustu í dagsins önn og á
gleði- og sorgarstundum í lífinu.
– Sífellt stærri hluti íbúa
landsins ýmist afneitar allri trú
eða aðhyllist önnur trúarbrögð
en kristni. Er þörf á auknu
kristniboði á Íslandi? Ætlar þú
að beita þér fyrir því verðir þú
kosinn biskup?
Allt líf kirkjunnar er kristni-
boð. Í öllu sem kirkjan tekur sér
fyrir hendur lyftir hún upp boð-
skapnum um líf og starf Jesú
Krists, sem þjónaði fólki og stóð
með því í aðstæðum lífsins. Öfl-
ugasta kristniboðið er fólgið í
góðu kirkjustarfi, í nærsam-
félaginu og á torgi mannlífsins.
Kirkjan nýtur mikils mannauðs í
starfsfólki og sjálfboðaliðum um
allt land í starfi sínu.
Það má líka spyrja í þessu
samhengi hvernig kirkjan eigi að
bregðast við fjölmenningu og
fjölbreytileika samfélagsins. Mitt
svar er þetta: Kirkjan á að fagna
fjölbreytileikanum. Hún á að
opna, en ekki loka á straumana
sem móta samfélagið og menn-
inguna. Kirkjan er kölluð til að
þjóna heiminum og gerir ekki
upp á milli þeirra sem tilheyra
henni og annarra. Í því sem öðru
eigum við að fylgja fordæmi Jesú
Krists, sem elskaði fólk og þjón-
aði algerlega.
– Hver er afstaða þín til
hjónavígslu samkynhneigðra?
Ég er fylgjandi henni og vann
að breytingu á afstöðu þjóð-
kirkjunnar til einna hjúskap-
arlaga. Ég fagna því, að samkyn-
hneigðir geti gengið í hjónaband
fyrir augliti Guðs og manna. Við
erum lánsöm, að á Íslandi ríkir
samstaða um, að mismuna ekki á
grundvelli kynhneigðar og að
hér eru í gildi ein hjúskaparlög.
Þjóðkirkjan var samstiga lög-
gjafanum þegar lögin tóku gildi
27. júní 2010 og tók sama dag í
notkun nýtt hjónavígsluform
fyrir alla, sem gifta sig í kirkj-
unni.
Kirkjan lítur hjónaband sam-
kynhneigðra sömu augum og
hjónaband karls og konu. Sömu
áskoranir og gleðiefni mæta
þeim og bæn kirkjunnar yfir
hjónum lýtur að því sama hvort
sem um er að ræða tvo karla,
tvær konur eða karl og konu.
Bænin er, að hjónunum auðnist
að elska hvort annað, treysta og
vera trú á lífsgöngunni.
Styrkja þarf kirkjuþing
– Hvert finnst þér að hlutverk
leikmanna og kirkjuþings eigi
að vera?
Kirkjuþing hefur æðsta vald í
málefnum kirkjunnar og þar
starfa prestar og leikmenn í
sameiningu að því að bæta
regluverk kirkjunnar og marka
henni stefnu. Meirihluti þing-
manna eru leikmenn og forseti
kirkjuþings kemur úr þeirra
röðum. Við þurfum að styrkja
kirkjuþing að mínu mati og festa
í sessi menningu samstarfs og
gagnsæis.
Frumvarp til nýrra þjóð-
kirkjulaga markar stefnu í þá átt
og að styrkja leikmenn enn frek-
ar sem forystufólk í þjóðkirkj-
unni. Ég er fylgjandi þeirri
stefnu og tel aukna þátttöku og
ábyrgð leikmanna forsendu þess
að kirkjan dafni á 21. öldinni.
Það er viska lútherskrar
kirkju, að öll þau sem eru skírð,
séu fullgildir meðlimir í kirkj-
unni. Þessi hugsun var hvati
þróunar íslensks lýðræðis og
lýðveldis. Lúthersk kirkja á ekki
að vera biskupakirkja eða
prestakirkja. Það er mikilvægt
að hafa þetta í huga þegar við
metum skipulag kirkjunnar. Að-
alatriðið er auðvitað að skipulag
kirkjunnar og stjórnsýsla hennar
þjóni erindi hennar – sem er að
boða trú á Jesú Krist og miðla til
fólks hinum stórkostlegu frétt-
um um ást Guðs.
Minni stjórnsýslubiskup
– Kirkjan hefur verið gagnrýnd
fyrir mikla miðstýringu úr
Reykjavík. Munt þú beita þér
fyrir meiri valddreifingu og
gera grasrótina, sóknirnar um
allt land virkari?
Á síðustu árum hefur mikið af
verkefnum kirkjunnar færst frá
ráðuneyti yfir til Biskupsstofu,
sem er skrifstofa biskups Íslands
og kirkjuráðs. Nauðsynlegt er að
greina skýrar á milli þannig, að
mörkin milli verkefna kirkju-
þings og kirkjuráðs annars vegar
og biskups Íslands hins vegar séu
skýrari.
Ég hef talað fyrir því, að bisk-
up Íslands verði minni stjórn-
sýslubiskup og meiri kirkju-
biskup og tel nauðsynlegt, að
hann stígi út úr því hlutverki að
vera framkvæmdastjóri kirkj-
unnar og inn í það hlutverk að
vera andlegur leiðtogi, í sam-
ræmi við skilning lútherskra
kirkna á eðli biskupsembætt-
isins. Að mínu mati á biskup
ekki að vera í forsæti í kirkju-
ráði, en hann á að sitja alla fundi
kirkjuráðs með tillögurétt og
málfrelsi og atkvæðisrétt.
Ég er fylgjandi því, að draga úr
miðstýringu og tel að verkefni
megi hýsa í prófastsdæmum og/
eða sóknum. Dæmi um slíkt eru
verkefni á sviði æskulýðsstarfs.
Ég hef ýmis verkefni í huga sem
ég vil gjarnan að verði til-
raunaverkefni. Við eigum að
virkja þekkingu og frumkvæði
heima í héraði og nýta okkur
visku heimafólks og mannauð
kirkjunnar um allt land.
– Aðskilnaður ríkis og kirkju.
Er hann þegar hæfilegur, hvaða
fyrirkomulag kýst þú?
Það gefur að mínu mati ekki
alveg rétta mynd að spyrja um
aðskilnað ríkis og kirkju eins og
staðan er nú því að það er sam-
band á milli kirkjunnar og rík-
isins og það verður áfram þótt
tengslin breytist. Betra er að
spyrja hvernig þessi tengsl eigi
að vera. Hið opinbera verður að
hafa afskipti af trúfélögum og
starfsemi þeirra, rétt eins og
menntastofnunum. Þjóðkirkjan
er langstærsta trúfélagið, sem
flestir tilheyra og með viðamestu
starfsemina.
Um samband ríkis og trúfélaga
þarf að ræða og ég mun beita
mér fyrir samtalinu sem biskup
Íslands. Það þarf að ríkja sátt um
fyrirkomulag og starf trúfélag-
anna í landinu og að því vil ég
vinna. Ósátt um samband ríkis
og kirkju þjónar ekki mark-
miðum kirkjunnar.
Varðandi stjórnarskrána þá tel
ég, að í henni eigi að vera grein
um grundvallargildi og að í þeirri
grein eigi að nefna kristni. Nýja
gildaákvæði norsku stjórn-
arskrárinnar er fyrirmynd, sem
mér hugnast og tel þarft að ræða.
Ég tel einnig, að standa eigi í
stjórnarskránni að hin evang-
elísk-lútherska kirkja sé þjóð-
kirkja, en ég held ekki að það
hafi úrslitaáhrif á líf og lífsmögu-
leika þjóðkirkjunnar hvort hún
er varin í stjórnarskrá. Þar koma
til önnur atriði svo sem trú-
málalöggjöf, virðing fyrir samn-
ingum sem ríki og kirkja hafa
gert, þjóðkirkjulöggjöf og al-
menn þróun íslensks samfélags
og menningar. Þjóðkirkjan á
ekki að njóta forréttinda eða sér-
réttinda umfram önnur trúfélög
í landinu.
– Nú innheimtir ríkið sókn-
argjöld fyrir kirkjuna en lækkar
þau að hentugleikum. Telur þú
rétt að kirkjan hafi heimild til
að ákveða sjálf sín sóknargjöld
svipað og sveitarfélög ákveða
útsvar?
Það er ekki ágreiningur um
sóknargjöldin sem slík. Vandinn
er sá, að ríkið hefur innheimt
þessi félagsgjöld en ekki skilað
þeim að fullu til trúfélaganna í
landinu, þar með talið þjóð-
kirkjunnar. Ég tel að ríkið eigi að
standa við ákvæðin í lögum um
sóknargjöld og eigi að standa full
skil á þeim sóknargjöldum sem
það innheimtir.
Í máli innanríkisráðherra við
setningu kirkjuþings síðasta
haust kom fram, að sóknargjöld
hafa verið skert mun meira en
framlög til annarra sambærilegra
stofnana. Úr þessu þarf að bæta
strax, enda miklir hagsmunir í
húfi því skerðingin kemur niður
á starfi kirkjunnar um allt land.
Baráttan fyrir leiðréttingu sókn-
argjaldanna verður eitt af þrem-
ur fyrstu verkum mínu í emb-
ætti.
– Hvernig biskup þarf kirkjan
nú?
Þjóðkirkjan þarf biskup sem
hefur skýra framtíðarsýn, hún
þarf biskup sem getur eflt sam-
kennd innan kirkjunnar og hún
þarf biskup, sem getur talað
þannig til kirkjufólks og þjóð-
arinnar, að þau sem hafa gengið
úr kirkjunni vilji ganga í hana
aftur.
Sameiningartákn
Biskup þarf á öllum öldum að
bera elsku í hjarta sínu, elsku til
samstarfsfólks síns, safnaðanna,
samfélagsins og skapara síns.
Biskupinn á að vera sameining-
artákn og sem slíkur þarf hann
að koma vel fram fyrir kirkjuna
og vera trúverðugur talsmaður
þess breiða og litríka samfélags,
sem þjóðkirkjan er. Það er svo
lykilatriði, að biskupinn virki og
valdefli fólkið í kringum sig –
þannig blómstrar og dafnar
kirkjan til góðra verka.
Það er vor í kirkjunni og fram-
tíð kirkjunnar er björt á meðan
hún heldur sig við orðið, sem
leysir og frelsar. Við göngum inn
í páskahátíðina og fáum enn einu
sinni að meðtaka undur uppris-
unnar og leyfa henni að verða að
veruleika í lífi okkar. Jesús
Kristur lifði til að rétta fólk við
og endurvekja líf heimsins. Af
þeirri ástarsögu Guðs þiggur
kirkjan erindi sitt, tilgang og líf.
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 23:30
Opið um helgar frá 18:00 - 23:30
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Ferskt og freistandi