SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 30

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 30
30 8. apríl 2012 Þ að er áhugavert að velta því fyrir sér hvaða þjóðfélagsöfl eru að takast á og að verki í íslenzku samfélagi um þessar mundir. Eins og jafnan áður eru það hefðbundin hagsmunasamtök á borð við LÍÚ, sem berst nú hart fyrir sinni stöðu í sjávar- útvegsmálum, og svo er augljóst að ný kynslóð kallar eftir auknum áhrifum eins og sjá má á forsetaframboðum þeirra Þóru Arnórsdóttur og Herdísar Þorgeirs- dóttur. Helzta umbrotasvæðið er þó – eins og eðlilegt er – vettvangur stjórnmálanna. Þeir flokkar sem þar takast á hafa í stórum dráttum verið á ferðinni í 80-90 ár. Þeir hafa sundrast og sameinast og þeir hafa fengið ný nöfn en í megin- dráttum búum við við þá flokkaskipan, sem komin var á í kringum 1930. Þeir hafa starfað saman og þeir hafa barizt hver gegn öðrum. Á milli þeirra hafa orð- ið til margvísleg tengsl og stundum náin. Stöku sinnum heift og hatur en í grund- vallaratriðum hefur samfélag stjórnmál- anna verið óbreytt í bráðum hundrað ár. Þar hafa orðið til ættarveldi og valdahóp- ar. Í sumum tilvikum er þriðja og jafnvel fjórða kynslóð sömu ætta á ferð. Þessir hópar hafa stjórnað landinu saman – með öllum venjulegum fyrirvörum – allan þennan tíma. Þeir Ólafur Thors og Einar Olgeirsson voru höfuðandstæðingar í íslenzkum stjórmálum. En Ólafur sá til þess, að eig- inkona Einars fékk greitt þingfararkaup Einars á meðan hann var í fangelsi Breta á stríðsárunum. Og samtal á milli Ólafs og Einars (og/eða Eðvarðs Sigurðssonar, formanns Dagsbrúnar) forðaði stórátök- um á vinnumarkaðnum í nóvember 1963. Í maí 1965 bað Finnbogi Rútur Valde- marsson (afabróðir Þóru Arnórsdóttur og fyrrum þingmaður Sósíalistaflokks og Al- þýðubandalags) mig að bera undir Bjarna Benediktsson, þá forsætisráðherra (þeir voru vinir frá menntaskólaárum), hug- mynd um lausn vinnudeilu, sem þá var í uppsiglingu. Bjarni tók hugmyndinni vel, embættismenn hans lögðust gegn henni, en hann hafði þær ráðleggingar að engu og næstu ár risu 1250 íbúðir fyrir lág- launafólk í Breiðholti á grundvelli samn- inga, sem Guðmundur J. Guðmundsson gerði. Þannig vann stjórnmálaelítan á Íslandi saman, þegar á þurfti að halda, þótt hart væri tekizt á um önnur mál, svo sem Atl- antshafsbandalagið, varnarliðið og út- færslu fiskveiðilögsögunnar. Nú er það áleitin og áhugaverð spurn- ing, hvort valdaskeið þessarar pólitísku yfirstéttar á Íslandi sé að renna sitt skeið á enda, hvort völd hennar hafi hrunið í hruninu og hvort vandræðagangurinn í landstjórninni og á vettvangi stjórnmál- anna síðustu misseri sé til marks um að þessi tiltölulega þröngi valdahópur ráði ekki lengur við það hlutverk, sem honum hafi verið ætlað. Það er lífseig saga og ekki bara hér á Ís- landi að þriðja kynslóð í fjölskyldufyr- irtæki missi það gjarnan út úr höndunum á sér. Eru nýjar kynslóðir stjórnmálaelít- unnar á Íslandi að klúðra því sem að þeim snýr? Þjóðin varð fyrir sálrænu áfalli í hruninu, sem hún er ekki byrjuð að vinna úr. Hitt er alveg ljóst, að hún hefur misst trúna á grunnstofnanir samfélagsins. Staða Alþingis í huga þjóðarinnar eins og hún mælist í könnunum er skýrt dæmi um þetta. Og í því felst að fólk hefur heldur enga trú á þeim valdahópum, sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni og ráða þinginu. En hefur vantrúin á það sem er og hefur verið áratugum saman leitt til þess að ís- lenzka þjóðin hafi fundið sér nýjan farveg til þess að ráða ráðum sínum? Það blasir a.m.k. ekki við að svo sé. Umbrotin má sjá, viðleitnin er til staðar en það er ekki að sjá að stefnan hafi verið tekin í nýja átt. Stjórnmálaflokkarnir allir virðast vera ófærir um að endurnýja sig og gildir einu, hvort um er að ræða Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu, Framsóknarflokk eða Vinstri græna. Kannski er skýringin að einhverju leyti sú, að hagsmunaöflin í samfélaginu eru enn að takast á innan flokkanna sjálfra. Einu sinni hélt ég að styrkur Sjálfstæðisflokksins væri ekki sízt sá, að hafa alla þessa hópa innan sinna vébanda og að flokkurinn gæti þar með verið hinn afgerandi vettvangur mála- miðlunar innan samfélagsins. Nú spyr ég sjálfan mig að því, hvort þessi fjölbreytni sé kannski orðin Sjálfstæðisflokknum fjötur um fót. Það þarf nýtt blóð að koma til sögunnar til þess að beina samfélaginu í nýjan far- veg og skapa þessari fámennu eyþjóð þá framtíðarsýn, sem hún þarf á að halda. Það nýja blóð kemur ekki frá embætt- ismönnum og bírókratískum klíkum í Brussel. Það kemur bara úr grasrót þjóð- félagsins til sjávar og sveita. Nýjar og óþreyttar kynslóðir Íslendinga, sem hingað til hafa staðið á hliðarlínu eða haldið sig til hlés af öðrum ástæðum þurfa að koma fram á (víg)völlinn og láta til sín taka. En hvernig getur það gerzt? Í Araba- löndunum hafa hinir nýju samskipta- miðlar samtímans orðið sá farvegur, sem ný þjóðfélagsöfl hafa notað til þess að brjótast í gegn. Kannski hefur það gerzt í örmynd hér? Hefur ekki krafan um nýjan forseta hvað sem framboði núverandi forseta líður einmitt orðið til á þeim vett- vangi? Gætu þeir ekki orðið það sker, sem skúta Ólafs Ragnars steytir á? Hver veit nema arabíska vorið geti orð- ið einhverjum hvatning hér norður í höf- um! Óbreytt ástand þýðir stöðnun og svo hnignun. Við getum ekki látið það gerast. Pólitíska yfirstéttin komin að fótum fram – en tekur eitthvað við? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Í byrjun mars árið 1994 var Kurt Cobain, forsprakkieinnar vinsælustu rokkhljómsveitar heims, Nirv-ana, fluttur í skyndi á spítala í Rómaborg eftir aðhafa ætlað sér um of í neyslu áfengis og lyfja. Eig- inkona hans, söngkonan Courtney Love, hafði komið að honum meðvitundarlausum. Cobain rankaði fljótlega við sér en var áfram á spítalanum næstu fimm daga und- ir eftirliti lækna en hann þjáðist einnig af lungnakvefi og barkabólgu. Að því búnu var hann útskrifaður og flaug heim til Seattle í Bandaríkjunum. Síðar lýsti Love því yf- ir að þetta hefði verið fyrsta tilraun bónda síns til að svipta sig lífi en hann glímdi á þessum tíma við geðrask- anir, auk þess sem hann var fram úr hófi sólginn í fíkni- efni. Love hafði miklar áhyggjur af Cobain og 18. mars 1994 hringdi hún í lögreglu og tilkynnti að hann hefði læst sig inni í herbergi á heimili sínu með haglabyssu. Lögregla kom á vettvang og gerði einhverjar byssur og lyf upp- tæk. Þokkalega lá hins vegar á Cobain sem tjáði lögreglu að hann væri aðeins að fela sig fyrir Love. Undir lok mánaðarins reyndu Love og nokkrir af nán- ustu vinum Cobains að fá hann til að rita sig inn í áfeng- is- og fíkniefnameðferð. Tók hann þeirri umleitan illa í fyrstu en samþykkti á endanum að láta slag standa. Þeg- ar Cobain kom á meðferðarstofnunina í Los Angeles 30. mars virkaði hann í prýðilegu formi, ræddi vanda sinn fjálglega við starfsfólk og lék við eins og hálfs árs gamla dóttur sína, Frances Bean. Það reyndist hinsti fundur þeirra feðgina. Kvöldið eftir skrapp Cobain út í garð til að fá sér sígar- ettu. Þar með var meðferðinni lokið en söngvarinn not- aði tækifærið til að klifra yfir girðingu við stofnunina og láta sig hverfa. Hann tók leigubíl út á flugvöll og flaug aftur heim til Seattle. Á leiðinni sat hann við hliðina á Duff McKagan, bassaleikara Guns N’ Roses, og enda þótt ágætlega færi á með þeim skynjaði McKagan að ekki var allt með felldu. Það upplýsti hann síðar. Næstu daga sást Cobain hér og þar í Seattle en hvorki Love né nánustu vinir hans vissu hvar hann hélt til. 3. apríl sá Love sig tilneydda að ráða einkaspæjara til að freista þess að hafa uppi á eiginmanni sínum. Nirvana átti að koma fram á Lollapalooza-tónlistarhátíðinni 7. apríl en afboðaði, þar sem enginn var söngvarinn. Degi síðar, 8. apríl 1994, knúði rafvirki dyra á húsi Cobains í Lake Washington. Hann var þangað kominn til að setja upp öryggiskerfi. Enginn svaraði en þar sem raf- virkinn sá mann liggja hreyfingarlausan á gólfinu með haglabyssu í fanginu gerði hann lögreglu viðvart. Maðurinn, sem reyndist vera Kurt Cobain, var látinn og komst réttardómstjóri að þeirri niðurstöðu að hann hefði dáið þremur dögum áður. Rannsókn á andlátinu leiddi í ljós að um sjálfsvíg hefði verið að ræða. Í blóði Cobains fundust leifar af heróíni og diezepam og í grennd við líkið nokkuð langt bréf sem túlkað var sem sjálfsvígsorðsending. Í bréfinu, sem stílað var á ímynd- aðan vin Cobains, „Boddah“, segir meðal annars: „Ég hef ekki notið þess að hlusta á og skapa tónlist … í of mörg ár núna.“ Love las hluta bréfsins við minningar- athöfn sem haldin var um Cobain tveimur dögum síðar. Þar dreifði hún einnig hluta af klæðum hans. Ýmsar samsæriskenningar hafa verið um dauða Kurts Cobains, eins og jafnan þegar frægt fólk fellur frá í Bandaríkjunum, en ekki hefur tekist að hrekja þá nið- urstöðu að hann hafi fallið fyrir eigin hendi. Cobain var aðeins 27 ára er hann lést. Hann var rokk- elskum harmdauði enda einn áhrifamesti tónlistar- maður sinnar kynslóðar. Líf hans, einkum seinni árin, einkenndist á hinn bóginn af vanlíðan og sennilega hef- ur fósturfaðir Cobains, Dave Reed, hitt naglann á höf- uðið: „Það skipti engu máli þótt annað fólk elskaði hann; hann unni sjálfum sér einfaldlega ekki nóg.“ orri@mbl.is Cobain finnst látinn Mæðgurnar Courtney Love og Frances Bean Cobain. ’ Í blóði Cobains fundust leifar af heróíni og diezepam og í grennd við líkið nokkuð langt bréf sem túlkað var sem sjálfsvígsorðsending. Kurt Cobain naut mikilla vinsælda á stuttum ferli í tónlist. Getty Images Á þessum degi 8. apríl 1994

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.