SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Blaðsíða 31
8. apríl 2012 31
Það er sama hvar okkurber niður, dægur-tónlistarfólk um allanheim, frá Elvis og Bítl-
unum, hefur sett sína villtustu
vonir og sárustu angist í búning
dægurlaganna og sungið sig inn
í hjörtu milljóna. Íslensk dæg-
urlög eru þar engin undantekn-
ing, þörfin fyrir ást og óttinn
við höfnun eru yrkisefni í
mjúku skallapoppi, diskó- og
danstónlist og harðasta rappi.
Í tilefni dymbilviku og páska
viljum við velta þessari tjáningu
ástar og ótta í dægurlögunum
fyrir okkur í ljósi yfirstandandi
daga. Hér verða skoðuð tvö
dægurlög sem fjalla um þrána
eftir ást og óttann við höfnun og
hafa skírskotun í þemu dymb-
ilviku og páska – dauða og upp-
risu.
„Ég var að leita að ást“
Lagið Þú komst við hjartað í
mér gaf Páll Óskar út á plötunni
Allt fyrir ástina árið 2007. Hjal-
talín gerði það síðar vinsælt í
eftirminnilegri útgáfu. Yrk-
isefnið er ástin sem kviknar á
skemmtistað þegar tveir ein-
staklingar mætast og það veldur
straumhvörfum í lífinu sem
verður heilt og gott upp frá
þessu:
„Á diskóbar ég dansaði frá
cirka tólf til sjö.
Við hittumst þar með hjörtun
okkar brotin bæði tvö.“
Diskóbarinn er umhverfið þar
sem hið óvænta gerist, brotin
hjörtu sem hafa laskast í átök-
um lífsins mætast og verða heil.
Páll Óskar syngur um ástarleit-
ina sem ber árangur. Afleiðing-
unni má lýsa sem kraftaverki og
upprisu, úr vonbrigðum og ein-
manaleika rís hugrekki og líf.
„Ég þori að mæta hverju sem er,
þú komst við hjartað í mér“
syngur hann. Páll Óskar segir
þannig ástarsöguna sem upp-
risusögu páskanna.
„Vil ekki vakna því þá
ferðu mér frá“
Á öðrum diskóbar er önnur saga
sögð um fólk í leit að ást, en nú
frá sjónarhóli föstudagsins
langa.
„Á diskóstað ég dansaði frá
cirka tólf til sjö
við mættumst þar með klofin
okkar opin bæði tvö.“
Þessi hending er í laginu
Föstudagurinn langi sem kom
út á samnefndri plötu rapp-
sveitarinnar Úlfur Úlfur árið
2011. Þremenningarnir í Úlfur
Úlfur sækja sér yrkisefni og inn-
blástur úr ólíkum áttum að eigin
sögn:
„Innblásturinn er alls staðar
að; hvort sem um er að ræða
kvenfólk og næturbrölt eða
æskuna og tilfinningalíf. Áhrifa-
valdarnir eru sömuleiðis úr öll-
um áttum og er þá hvorki spurt
um stíl né stefnu. Niðurstaðan
er frumleg nálgun á popptónlist
sem spannar allan skalann.“
Í Föstudeginum langa er
nokkuð ljóst að Páll Óskar er
áhrifavaldurinn. Bæði lögin
fjalla um mót tveggja ein-
staklinga á skemmtistað. En
formerkin eru öfug. Á meðan
ástin er upprisa hjá Páli Óskari
er hún uppspretta angistar hjá
úlfadrengjunum. Föstudagurinn
langi er ekki ástarsöngur heldur
lostasöngur sem fjallar um end-
urtekin skyndikynni sem veita
tímabundna lausn. Viðlagið tjáir
þetta vel:
„Þetta er föstudagurinn langi
aðeins 52 á ári
Sólin sest en stendur svo upp
þú vaknar og gengur svo burt
Vil ekki sofna, ég vil vera þér
hjá
vil ekki vakna því þá ferðu
mér frá
morguninn eftir þegar allt
verður grátt
þú ferð þína leið og ég í öfuga
átt“
Helgarnar eru allar eins og
þær einkennast af „ást“ sem
kviknar og slokkar, en skilur
ekkert eftir sig. Leitin að ástinni
og óttinn við einveru leiðir til
hringrásar þar sem föstudag-
urinn langi er endurtekinn
vikulega. Upprisan á sér aldrei
stað og páskarnir koma aldrei,
því um leið og sögumaður vakn-
ar hverfur vonin um ástina –
„þú ferð þína leið og ég í öfuga
átt“.
„Þú komst inn í líf mitt“
Það sem við látum okkur varða
mestu skilgreinir hver við erum.
Svona má endurorða hugsun
Pauls Tillichs um það sem vekur
okkur mesta von og mestan ugg.
Sögurnar sem dægurlögin segja
snúast um það hvernig leitin að
ástinni knýr okkur áfram og
leiðir annaðhvort til lífs eða
dauða, til páska eða föstudagsins
langa.
Föstudagurinn langi stendur
hér fyrir tálsýnina um ástina,
fyrir hina óuppfylltu von sem
rætist ekki og skilur þess vegna
eftir sig vonleysi og angist.
Páskarnir standa fyrir hina upp-
fylltu ást, vonina sem rættist og
leiðir til hugrekkis og öryggis.
Að skilningi kristinnar kirkju
heyra föstudagurinn langi og
páskadagur saman. Annar fylgir
á eftir hinum og getur ekki án
hans verið. Fyrstur er föstudag-
urinn langi, svo páskadagur.
Dægurlögin tvö sem hér hefur
verið fjallað um draga fram
megineinkenni á hvorum degi
fyrir sig, annars vegar er end-
urtekning og vonleysi, hins
vegar nýtt upphaf og von.
Hinn kristni páskaboðskapur
er sá að vonin móti lífið, þrátt
fyrir allt sem dregur úr okkur
kjarkinn og bendir til hins
gagnstæða. Á páskadegi verður
angist og ótti að ást, dauði verð-
ur að lífi, vonleysi að von.
Föstudagurinn langi verður
að Þú komst við hjartað í mér.
Höfundar eru prestar.
Dauði og
upprisa á
diskóbar
Árni Svanur Daníelsson og
Kristín Þórunn Tómasdóttir.
Páll Óskar Hjálmtýsson
í fullum diskóskrúða.
Lykillinn að því að skilja
menningu og hópa er að
setja fingur á það sem
vekur með fólki mestan
ótta og mesta von. Þetta
sagði guðfræðingurinn
Paul Tillich. Í dægurtónlist
birtist þetta sem þrá eftir
því að vera elskuð og ótti
við að vera skilin eftir.
Árni Svanur Daníelsson og
Kristín Þórunn Tómasdóttir
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Flísar framtíðarinnar
gæði og glæsileiki á góðu verði