SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 34
34 8. apríl 2012
Þórarinn Hannesson er íþrótta-kennari við GrunnskólaFjallabyggðar og mikill félags-málamaður. „Meðgangan að
Ljóðasetrinu var nokkur ár; segja má að
þetta hafi byrjað haustið 2005 þegar við
í ungmennafélaginu Glóa, sem ég stýri
á Siglufirði, leituðum okkur að nýjum
verkefnum. Þá datt mér í hug að halda
ljóðakvöld; fá einhverja bæjarbúa til
þess að koma og lesa, helst ef menn
ættu eitthvað sem þeir hefðu sjálfur ort
og vildu leyfa öðrum að heyra,“ segir
Þórarinn við Sunnudagsmoggann.
Vantaði hlutverk fyrir húsið
Þórarinn hefur sjálfur fengist svolítið
við kveðskap. „Ég hef sent frá mér
tvær ljóðabækur með óhefðbundnum
kveðskap og sú þriðja er á leiðinni, en
hef meira verið í tónlistinni; samið
bæði lög og texta og hef sent frá mér
þrjá geisladiska með frumsömdu efni,“
segir hann.
Verkefnið um ljóðið vatt upp á sig.
„Ég stóð fyrir nokkrum ljóðakvöldum í
tvo vetur og úr varð þriggja daga
ljóðahátíð, Glóð, sem ég byrjaði með
haustið 2007 á vegum ungmennafélags-
ins og við höfum haldið á hverju ári
síðan. Við höfum fengið nokkur af
þekktustu skáldum landsins í heim-
sókn, auk þess sem heimamenn hafa
látið ljós sitt skína. Við höfum lagt sér-
staka áherslu á að virkja börn til góðra
ljóðaverka á þessari hátíð.“
Árið 2008 kviknaði hugmynd um að
stíga skrefið til fulls og koma setrinu á
koppinn. „Ég átti hús við Túngötu þar
sem ég hafði verið með söluturn og
myndbandaleigu, en ég var búinn að fá
nóg af því að vinna allan sólarhringinn!
Ég var í fullu starfi sem kennari, spil-
aði, söng, þjálfaði, skrifaði fyrir bæj-
arblaðið, var að vasast í bæjarpólitík-
inni og hafði rekið verslunina í níu ár
þegar ég lét gott heita á þeim vett-
vangi. Mig vantaði hutverk fyrir húsið
og þá fæddist hugmyndin um að koma
á fót ljóðasetri. Svona lagað er hvergi
til á landinu og jafnvel þótt víðar væri
leitað; þetta er algjörlega orginal hug-
mynd, sem bróðir minn fékk, Elvar
Logi Hannesson, leikari og leikstjóri á
Þórarinn Hannesson stofnandi Ljóðasetursins: Hér geta menn kynnt sér helstu strauma og stefnur í íslenskum kveðskap allt frá landnámsöld til okkar tíma á aðgengilegan hátt.
Húsið hallar undir flatt. Ljóðasetrið er til húsa við Hafnargötu í miðbænum á Siglufirði.
Fjöldi gamalla ljóðabóka er til sýnis í setri Þórarins Hannessonar á Siglufirði.
Ljóðið er flutt
til Siglufjarðar
Þórarinn Hannesson er mikill unnandi ljóða en
hefur gengið skrefinu lengra en nokkur annar í
ljóðelsku; stofnaði og rekur Ljóðasetur Íslands.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is