SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 43

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Side 43
8. apríl 2012 43 og í raun allt þar á milli. Á kápumynd bókarinnar er horft af Kárahnjúkastíflu ofan í nær alveg vatnslaust gljúfrið og blasa ummerkin um brambolt mannanna við á börmum þess og í botninum. Í fyrstu myndunum milli spjaldanna má síðan tala um ægifegurð, hið súblíma, annars vegar í mynd sem sýnir Lóma- gnúp og Öræfajökul og annarri þar sem horft er á Gullfoss neðan af gilbarminum. Margar myndanna eru teknar í rigningu og undir mjólkurhvítum himni, sem varpar jafnri lýsingu á landið sem skráð er í smæstu atriðum á stóra filmuna. Heiti sumra gefa í skyn hvar þær eru teknar, F35 frá 1999 sýnir þannig brú á ónefndri jökulá og F208 ónefnt lón við þjóðveg. Canal frá árinu 2000 sýnir frá- veituskurð einhvers staðar á Þjórsár- svæðinu en mörg verkanna eru frá virkj- anasvæðum og uppistöðulónum: þarna er rafstöð við Þórisvatn, Hrauneyjalón, verið er að leggja raflínur í Þóristungum, á sama stað eru gámar og kassahaugur við búðir verkamanna, og nokkrar myndir sýna mannanna verk við Kára- hnjúkavirkjun. Sumar þessara mynda birtast sem pör, af sama sjónarhorni, nánast óbreyttu, en áratugur hefur liðið milli mynda. Þarna eru komin sömu sjónarhornin sem Becker talar um og þótti heillandi að skapa. Tíminn í myndapörum „Það hreif mig hvað þessir staðir höfðu breyst lítið á þessum tíu til tólf árum,“ segir hann. „Að sumu leyti hreifst ég af ógreinanlegri breytingu, af því sem er nær óbreytt, frekar en af því sem aug- ljóslega er annað en var. Gríðarlega mikið getur breyst í lífi manns á einu, tveimur eða tíu árum – en hins vegar er erfitt að greina þennan tíma í ósnortinni náttúru. Er mögulegt „að ljósmynda tímann“? Það var ný og heillandi upplifun að glíma við að skilja og skynja tímann á þennan hátt,“ segir hann. Þessi skoðun á tímanum sem hefur lið- ið birtist á áhugaverðan hátt í mörgum pörum í bókinni. Oftast hefur Becker fundið sama sjónarhornið og myndar við sömu birtuskilyrðin. Á bryggju í Nes- kaupstað hafði árið 2000 verið hrúgað upp nót með gulum netakúlum en tíu ár- um síðar var annarskonar nót á sama stað og björgunarbúnaður kominn á húsvegg- inn þar sem ekkert var áður, ef einhver skyldi detta í sjóinn. Á Siglufirði myndar hann sama sérkennilega hornhúsið, einnig með tíu ára millibili, og við fyrstu sýn hefur fátt breyst en þegar betur er að gáð er það margt: skilti hefur sigið, annað horfið, málning er horfin af gangstétt- arkanti og nýtt þak komið á húsið við hliðina. Sláandi er að sjá í tveimur pörum hvað skriðjöklar hafa hörfað við Öræfa- jökul og í ljósmyndum af Bjarnarfossi undir Eyjafjöllum líða 12 ár á milli þess að Becker bröltir upp í hlíðina, setur upp vélina og smellir af. Munurinn er lítill, fyrir utan að vatnsrennslið er minna á seinni myndinni. Þessi litla breyting finnst honum einmitt heillandi. „Hlut- lægt séð virðist fossinn ekkert hafa breyst á þessum tólf árum, það er eins og seinni myndin gæti hafa verið tekin nokkrum mínútum á eftir þeirri fyrri,“ segir hann. „En huglægt séð þá bætist persónuleg sýn eða upplifun við það sem blasir við. Minningar mínar um staðinn óma í myndinni. Að sjá þetta landslag að nýju, í sömu birtu en tólf árum síðar, er eins og að fletta upp á bókamerki sem sett hefur verið í bók minninganna. Þessi huglæga upplifun er eitthvað sem ég einn sé og skynja, en það að ég bendi á hana getur hjálpað öðrum að upplifa svipaða hluti.“ Margt sýnt, annað gefið í skyn Ekki fer mikið fyrir fólki í íslenskum myndheimi Beckers. Hann myndar reyndar sömu mótorkrosskappana árin 2001 og 2011 og sjá má fólk við störf, eins og þrjá menn við að rista torf árið 2002. Sú sýn sem birtist í mörgum nýjustu myndunum, af húsum sem ekki hefur tekist að ljúka við eftir bankahrun, er þó áhugaverð, því þar má finna fyrir fólkinu sem býr í hálfbyggðum byggingunum þrátt fyrir að aðstæðurnar séu ekki þær sem draumar stefndu að, eða fjarveran í beinagrindum húsanna gefur í skyn hvað átti að vera. Með hlutlægri nálguninni auðnast listamanningum að sýna að- stæðurnar en einnig að gefa margt í skyn. Útgefandi bókar Beckers, sem er í stóru broti og glæsilega prentuð og inn- bundin, er gæðaforlagið Hatje Cantz. ’ Gríðarlega mikið get- ur breyst í lífi manns á einu, tveimur eða tíu árum – en hins vegar er erfitt að greina þennan tíma í ósnortinni náttúru. Tvískipt mynd frá Dýrafirði, 07/2002, 07/2011 Til vinstri er útfall klukkan fimm um morgun en hægra megin fellur að á sama tíma, níu árum síðar. Jökulsá á Brú 07/2010 Becker hefur myndað talsvert á virkjanasvæðum á hálendinu. Hér er hann á Kárahnjúkastíflu. Ljósmyndir/Olaf Otto Becker. Birt með leyfi Hatje Cantz Verlag.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.