SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Síða 44

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Síða 44
Ernest Cline - Ready Player One bbbbm Einhverntímann í framtíðinni er málum svo hátt- að að flestar auðlindir eru uppurnar, þar með talið jarðefnaeldsneyti, Auður er þó enn til og all- margir hafa það gott en fátækt hefur annars auk- ist til muna og svo er komið vestur í Ameríku að stærstur hluti stórborga er fátækrahverfi. Lýð- urinn unir þó við sitt að mestu, enda hefur hann aðgang að sýndarheimi þar sem lifa má sældarlífi, upplifa ævintýri og njóta ýmislegrar skemmt- unar. Svo ber við að höfundur þessa sýndarheims, einrænn sérvitringur og margfaldur milljónungur, deyr en skilur eftir sig þraut með þeim skilmálum að sá sem leysir hana mun erfa viðskiptaveldi hans. Það vill svo til að þrautin byggist að stærstum hluta á menningarlegum tilvísunum í níunda áratuginn, en þá sleit séníið barnsskónum, og allt er lyklað í tölvuleiki frá þeim tíma, enda var hann mikill tölvuleikaþjarkur. Söguhetja bókarinnar býr við kröpp kjör í fátækrahverfi, en hefur áhuga, hugvit og þrautseigju til að glíma við þrautina. Hann verður og fyrstur til að finna fyrsta lyk- ilinn og hefst mikið kapphlaup milli hans, stúlku sem hann fellir hug til og útsendara stórfyrirtækis sem sölsa allt undir sig í gróðafíkn. Þessi bók höfðar líkast til helst til þeirra sem spilað hafa yfir sig af tölvuleikjum og eru vel heima í þeim fræðum, aukinheldur sem áhugamenn um dægurmenningu níunda áratugarins fá mikið fyrir sinn snúð. J.H. Hunter - The Mystery of Mar Saba bmnnn Þetta er býsna merkileg bók þó ekki hafi hún kostað nema hundraðkall á Basarnum, nytja- markaði Kristniboðssambandsins. Hún segir frá því er illir guðlausir Húnar (Þjóðverjar) hyggjast leggja undir sig heiminn með því að grafa undan kristinni trú og þar með Englandi, brjóstvörn siðmenningarinnar, en þó sagan sé ekki merkileg er það forvitnilegt sem síðar gerðist og segir okkur sitthvað um þá sterku löngun trúaðra að fá vísindalega sönnun fyrir trú sinni (sem myndi þá hætta að vera trú, ekki satt?). Bókin hefst þar sem þýskir heims- valdasinnar, en hún kom út 1940, ákveða að grafa undan kristinni trú með því að munkur finnur gamalt guðspjallahandrit í klaustri í Líbanon og leiðir í ljós að Kristur hafi ekki risið upp til himna, held- ur hafi lærisveinar hans komið líkinu undan og grafið á afviknum stað. Það er eins og við manninn mælt; ólga grípur um sig á víða um heim og óeirðir. Fyrir tilstilli auðugs Bandaríkjamanns, efasemda- manns sem tekur kristna trú í miðjum klíðum, tekst að koma upp um fölsunina og allt fellur í ljúfa löð. Á áttunda áratugnum kom fræðimaðurinn Morton Smith trúar- heiminum í uppnám er hann fann áður óþekkt bréf frá Klemens í Alexandríu þar sem fram kom meðal annars að Kristur hefði eytt nótt með ungum pilti sem hafði línklæði eitt á berum sér, eins og getið er um í Markúsarguðspjalli, og sýnt honum leyndarmál Guðs ríkis. Sumir hafna þessu algerlega, en aðrir eru ekki eins vissir, ekki síst þeir sem lesið hafa The Mystery of Mar Saba. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Erlendar bækur Eymundsson 1. Catching Fire - Suzanne Coll- ins 2. The Hunger Games - Suz- anne Collins 3. Mockingjay - Suzanne Collins 4. Affair - Lee Child 5. The Litigators - John Grisham 6. Hunger Games Trilogy Box Set - Suzanne Collins 7. 44 Charles Street - Danielle Steel 8. Those in Peril - Wilbur Smith 9. Killing Floor - Lee Child 10. Clash of Kings - George R. R. Martin New York Times 1. Fifty Shades of Grey - E. L. James 2. Fifty Shades Darker - E. L. James 3. Stay Close - Harlan Coben 4. Fifty Shades Freed - E. L. James 5. The Lucky One - Nicholas Sparks 6. The Girl Who Kicked the Hor- net’s Nest - Stieg Larsson 7. Defending Jacob - William Landay 8. Lone Wolf - Jodi Picoult 9. The Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 10. A Game of Thrones - George R. R. Martin Waterstone’s 1. Before I Go to Sleep - S. J. Watson 2. Daughters-in-law - Joanna Trollope 3. 11.22.63 - Stephen King 4. Me Before You - Jojo Moyes 5. The Faithless - Martina Cole 6. The Saturday Big Tent Wedd- ing Party - Alexander McCall Smith 7. Birthdays for the Dead - Stu- art MacBride 8. Tick Tock - James Patterson 9. My Dear I Wanted to Tell You - Louisa Young 10. One Day - David Nicholls Bóksölulisti Lesbókbækur Hundrað ár eru frá því að hinn áhrifa-mikli sænski leikritahöfundur AugustStrindberg lést. Af því tilefni er nýævisaga hans komin út. Bókin nefnist Strindberg: A Life og höfundurinn er breskur rit- höfundur og ævisagnahöfundur, Sue Prideaux, en hún fékk áhuga á höfundinum þegar hún var að vinna að bók um málarann Edvard Munch. Strindberg var afkastamikill höfundur 60 leikrita og 18 skáldsagna, auk fjölda annarra verka. Hann hefur haft gríðarleg áhrif á fjölmörg leikritaskáld og leikrit hans eru enn leikin við miklar vinsældir. Strindberg var ofsamaður, þjáðist af sjúklegri afbrýðisemi og var haldin ofsóknaræði. Neikvæð viðhorf hans til kvenna hafa svo löngum þótt sér- stakt rannsóknarefni. Hann var um tíma eindreg- inn stuðningsmaður kvenréttinda en átakamikil hjónabönd hans urðu til þess að breyta við- horfum hans og leikrit hans fjalla iðulega um hat- ramma og kaldrifjaða baráttu milli kynjanna. Strindberg var vægast sagt afleitur eigin- maður, en kvæntist þrisvar. Hið skrautlega einkalíf hans fær mikið vægi í ævisögunni, enda er þar svo æsilegt efni á ferð að hvaða slúð- urtímarit sem er í heiminum myndi fagna því að fá að birta slíkar frásagnir um einkalíf frægra nú- lifandi einstaklinga. Fyrsta eiginkona Strindbergs var Siri von Essen sem yfirgaf eiginmann sinn og giftist Strindberg. Í byrjun var hjónband þeirra ham- ingjusamt en þegar Strindberg, fór að efast um að hann væri faðir þriggja barna þeirra seig verulega á ógæfuhliðina. Þegar Siri viðurkenndi að hafa átt í stuttu ástarsambandi utan hjónabands kýldi hann hana í gólfið að skelfingu lostnum börnum þeirra ásjáandi. Hann sagði öllum sem heyra vildu að hann myndi ekki sjást opinberlega með henni framar. Þegar Siri þekkti svo sjálfa sig í einu verka hans brást hún við þeirri lýsingu með því að hætta að lesa verk hans. Eftir fjórtán ára hjónaband yfirgaf hún hann. Önnur eiginkona hans var tvítug austurrísk blaðakona, Frida Uhl, sem giftist honum eftir þriggja mánaða kynni og í brúðkaupsferðinni reyndi hann að kyrkja hana. Hún yfirgaf hann eftir eins árs hjónaband. Þriðja eiginkonan var hin tuttugu og tveggja ára gamla leikkona Harriet Bosse sem hann kvæntist árið 1901 en hún fór frá honum árið 1903. Óhætt er að segja að Strindberg hafi ekki verið maður sem bjó yfir andlegu jafnvægi, en hafa má í huga að barnæska hans var ömurleg en faðir hans barði hann og móðir hans sýndi hon- um algjört áhugaleysi. Sem fullorðinn maður þjáðist hann af ofsóknaræði og með árunum fór geðheilsa hans æ versnandi. Hann trúði að mál- arinn Edvard Munch, sem bjó í París eins og Strindberg, hygðist myrða hann með gasi. Strindberg hafði mikla trú á yfirnáttúrulegum hlutum og fór engar venjulegar leiðir til að kom- ast inn í íbúð sína í París því hann klifraði inn um gluggann til að forðast illa anda sem hann taldi bíða sín við dyrnar. Hann taldi svo eitt sinn að sér hefði tekist að breyta mold úr frönskum kirkju- garði í gull. Þessi mikli rithöfundur var elskaður og dáð- ur af alþýðu manna í Svíþjóð og þegar hann lést árið 1912 fylgdu 10.000 manns líkvagninum. Strindberg ásamt tveimur barna sinna sem hann átti með Siri, fyrstu konu sinni. Flókinn Strindberg Hundrað ár eru liðin frá dauða leikritaskáldsins Augusts Strindbergs og vitanlega lítur ný ævisaga dagsljósið. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.