SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Qupperneq 45

SunnudagsMogginn - 08.04.2012, Qupperneq 45
Höfundar rafbókagera sitthvað til aðkoma sér á framfærií netverslum Ama- zon, þar með talið að selja bækur sínar fyrir lítið sem ekkert. Það getur og gefið góða raun, enda er lítið að þvi að selja bók á 100 kall ef maður selur af henni 100.000 eintök. Ekki er þó bara að nýir höfundar selji bækur ódýrt heldur má líka fá bækur gefins. Á hverjum degi eru fjölmargar nýjar bækur gefins á Amazon, en yfirleitt fæst hver bók ókeyp- is ekki nema í nokkra daga, jafnvel ekki nema einn dag. Ým- is vefsetur fylgjast með því hvaða bækur detta inn, flokka þær og birta með lýs- ingu og því hægt að velja hvað maður vill lesa, hvort sem það er reyfari, ástarsaga, unglinga- eða fræðibók. Ég las fyrir stuttu nokkrar af þeim bókum sem þannig voru gefnar og reyndi að velja eftir því hvaða umsögn þær höfðu fengið á Amazon, en sumar voru með fullt hús af stjörnum eða nánast fullt hús í umsögnum þar – nánast meistaracverk ef ráða mátti af gagnrýninni. Við nánari skoðun kom þó annað í ljós, því fæstar þeirra voru gæðabók- menntir, reyfararnir flestir klisjukenndar rökleysur, ást- arsögurnar uppskrúfuð vella og unglingabækurnar eins og þær hefðu verið skrifaðar af ungling- um. Málið er nefnilega það að þó verkið sé fyrst og fremst sprottið af vinnu rithöfundarins þá þurfa yfirleitt ýmsir fleiri að koma að áður en það er boðlegt. Allir hafa þannig gott að hafa aðgang að vönum yfirlesara, sem getur ráðlagt höfundinum og hann treystir. Víst sjóast menn í skrif- unum og góður rithöfundur er jafnvel búinn að skrifa í áratugi áður en hann skrifar eitthvað sem honum finnst vert að gefa út. Það er snúið að skrifa skáld- verk og nánast ógerningur að skrifa vandað slíkt verk í frí- stundum eins og sannast hvað eftir annað í fríbókaflóðinu. Bækur fyrir lítið ’ Allir hafa gott af að hafa að- gang að vön- um yfirles- ara, sem getur ráðlagt höfundinum og hann treystir. Orðanna hljóðan Árni Matthíasson arnim@mbl.is N orski rithöfundurinn Jo Nesbø hefur komið sér fyrir á meðal bestu spennusagna- höfunda, persónusköpun hans á rannsóknarlögreglumanninum Harry Hole hefur tekist mjög vel og spennusaga hans, Snjókarl- inn, er eins sú besta í þeim flokki. Ekkert er saklausara en börn og móðurástin er víðast rík en til eru afbrotamenn sem svífast einskis og grimmd þeirra og of- beldi bitnar ekki síst á börnum og konum. Í Snjókarlinum tengir Jo Nesbø saman sakleysið og grimmdina, þar sem snjórinn og snjókarlinn, ímynd hins góða og saklausa, gegnir veigamiklu hlutverki og snýst upp í and- hverfu sína, verður tákn hins grimma og illa. Sagan er ljót. Viðbjóðsleg á köflum. Kvenhatrið skín í gegn. Myrkraverkin leynast víða og lesandinn fylgir Harry Hole og félögum hingað og þangað í leit að lausninni. Lengst af afvega- leiddur. Spennan er á tíðum mjög mikil og mörgum þykir ef- laust nóg um áður en yfir lýkur. Ekki er auðvelt að semja góð- an krimma en Jo Nesbø hefur það sem þarf til þess að ná bæði tökum á atburðarásinni og halda lesandanum við efnið. Sagan gerist í Ósló og Bergen og allar skýringar, hversu smávægilegar sem þær virðast vera, þjóna til- gangi sínum og öðlast vægi í lokin. Allt hefur sinn tilgang. Ekki er öllum gefið að halda spennu á rúmlega 500 blaðsíð- um en Jo Nesbø fer létt með það í Snjókarlinum. Uppbygging sögunnar gerir það líka að verk- um að lesandinn, eins og of- beldismaðurinn, getur ekki annað en fylgt Harry Hole sem skugginn. Þar með er tilgangi höfundar náð. Harry Hole minnir stundum á Jack Reacher, helstu söguhetju Lee Childs, og stíllinn hjá Jo Nesbø er stundum ekki ósvip- aður stíl Childs. Sumir hafa líkt Snjókarlinum við Karla sem hata konur eftir Stieg Larsson en þessar samlíkingar árétta þann stall sem Jo Nesbø er kom- inn á. Íslenska þýðingin er mjög góð, en prófarkalestur hefði mátt vera ögn betri. Þannig hefði mátt koma í veg fyrir óþarfa pöddur. Ljót saga en einn besti krimminn Bækur Snjókarlinn bbbbm Spennusaga eftir Jo Nesbø. Íslensk þýðing: Bjarni Gunnarsson. Kilja, 509 bls. Uppheimar 2012. Steinþór Guðbjartsson Jo Nesbø hefur komið sér fyrir á meðal bestu spennusagnahöfunda. Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar RÚRÍ YFIRLITSSÝNING 3.3. - 6.5. 2012 BÓL, KAR OG HULIÐ HJARTA, verk Tinnu Gunnarsdóttur iðnhönnuðar. Í Safnbúð verk Áslaugar Katrínar Aðalsteinsdóttur vöruhönnuðar. SAFNBÚÐ, Fermingar- og útskriftartilboð á útgáfum safnsins. SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott allan daginn! Lokað páskadag og annan í páskum Gleðilega páska! Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar TILVIST – BEING HERE Jón Axel Björnsson 24. mars – 6. maí Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Gleðilega páska! Lokað á páskadag og á annan í páskum. Opið aðra daga 11-17 Fjölbreyttar sýningar: Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu – Stendur til og með 7. apríl TÍZKA – kjólar og korselett Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár Spennandi safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum Rætur Samtímaskartgripahönnun Leiðsögn laugardaginn 7. apríl kl. 15 Undanfari Sigurður Guðjónsson Sýningunni lýkur 9. apríl Opið annan í páskum kl. 12-17 Lokað á páskadag 8. apríl Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 14. apríl til 12 maí 2012 Núningur/Friction Einar Garibaldi Eiríksson, Kristinn E. Hrafnsson, Ólafur Gíslason Birtingamyndir myndlistar í borgarlandslaginu Opið 13-17, nema mánudaga. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Aðgangur ókeypis. LISTASAFN ASÍ SJÁLFSAGÐIR HLUTIR (10.2.- 20.5. 2012) FINGRAMÁL (21.3.–20.5.) Mundi, Volki, Hrafnhildur Arnardóttir aka Shoplifter, Erna Einarsdóttir, Bergþóra Guðnadóttir, Aftur Lokað páskadag og annan í páskum Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÁSJÓNA Verk úr safneign --- Pappírsævintýraheimur Baniprosonno Sýningarlok 8. apríl --- Opið á páskadag kl. 12-17 Lokað annan í páskum Kaffistofa – Leskró – Barnakró Opið fim.-sun. Kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.