Morgunblaðið - 02.06.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 02.06.2012, Síða 17
Þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir fjölmargra sveitarfélaga, fyrirtækja, stéttarfélaga, fjármálastofnana, endurskoðenda, lögfræðinga, hagfræðinga og annarra í yfir 70 umsögnum, hafa frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld ekki tekið nauðsynlegum breytingum. Á athugasemdir allra þessara aðila hefur ekki verið hlustað. Við ítrekum ósk okkar um viðræður og samstarf. Þau frumvörp sem nú liggja fyrir þinginu eru tilræði við sjávarútveginn og lífskjör almennings. Ykkur getur ekki verið alvara Útvegsmannafélag Austfjarða Útvegsmannafélag Akraness Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar Útvegsbændafélagið Heimaey Útvegsmannafélag Hornafjarðar Útvegsmannafélag Norðurlands Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Snæfellsness Útvegsmannafélag Suðurnesja Útvegsmannafélag Vestfjarða Útvegsbændafélag Vestmannaeyja Útvegsmannafélag Þorlákshafnar „Mælt er með að endurskoða frumvarpið frá grunni þar sem tillögur þess muni hafa alvarleg áhrif á stöðu sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi og samfélagið allt.“ – Úr umsögn Landsbankans frá 18. apríl sl. „Er niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku samkvæmt frumvarpinu sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir.“ – Úr áliti sérfræðihóps skipuðum af atvinnuveganefnd frá 2. maí sl. „Verði þessi frumvörp, sem eru unnin án alls samráðs við atvinnugreinina, að lögum munu þau viðhalda og jafnvel auka ósætti innan greinarinnar með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“ – Úr umsögn Farmanna- og fiskimannasambandsins og Félags skipsstjórnarmanna frá 17. apríl sl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.