Morgunblaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 17
Þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir fjölmargra sveitarfélaga, fyrirtækja,
stéttarfélaga, fjármálastofnana, endurskoðenda, lögfræðinga, hagfræðinga
og annarra í yfir 70 umsögnum, hafa frumvörp til laga um stjórn
fiskveiða og veiðigjöld ekki tekið nauðsynlegum breytingum.
Á athugasemdir allra þessara aðila hefur ekki verið hlustað.
Við ítrekum ósk okkar um viðræður og samstarf.
Þau frumvörp sem nú liggja fyrir þinginu eru tilræði
við sjávarútveginn og lífskjör almennings.
Ykkur getur
ekki verið
alvara
Útvegsmannafélag Austfjarða
Útvegsmannafélag Akraness
Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar
Útvegsbændafélagið Heimaey
Útvegsmannafélag Hornafjarðar
Útvegsmannafélag Norðurlands
Útvegsmannafélag Reykjavíkur
Útvegsmannafélag Snæfellsness
Útvegsmannafélag Suðurnesja
Útvegsmannafélag Vestfjarða
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja
Útvegsmannafélag Þorlákshafnar
„Mælt er með að endurskoða frumvarpið frá grunni þar sem tillögur þess muni
hafa alvarleg áhrif á stöðu sjávarútvegsfyrirtækja hér á landi og samfélagið allt.“
– Úr umsögn Landsbankans frá 18. apríl sl.
„Er niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku samkvæmt frumvarpinu sé langt
umfram það sem útgerðin getur staðið undir.“
– Úr áliti sérfræðihóps skipuðum af atvinnuveganefnd frá 2. maí sl.
„Verði þessi frumvörp, sem eru unnin án alls samráðs við atvinnugreinina,
að lögum munu þau viðhalda og jafnvel auka ósætti innan greinarinnar með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“
– Úr umsögn Farmanna- og fiskimannasambandsins
og Félags skipsstjórnarmanna frá 17. apríl sl.