Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 24
Þriðjudaginn 5. október 2010 fjallaði Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, um fjárlög árs- ins 2011. Nefndi hann þar hvernig vaxtakostnaður ríkisins hefði reynst minni en spáð var „og fleiri já- kvæða þætti, svo sem eins og minna atvinnuleysi“. Daginn áður fóru fram umræður um stefnuræðu for- sætisráðherra. Steingrímur tók þátt í umræðunum og sagði atvinnuleysið mikið vandamál: „Atvinnuástandið verður líka að vera í forgrunni, en það er verst á Suður- nesjum. Ég vil segja að þar eiga ríkisvaldið og heima- menn að taka höndum saman … Hættan á langtíma- atvinnuleysi og atvinnuleysi meðal ungs fólks er sennilega ein mesta meinsemd sem að okkur steðjar.“ Fimmtudaginn 28. október 2010 flutti Steingrímur setningarræðu á landsfundi VG undir yfirskriftinni Tal- að orð gildir. Sagði hann þar krónuna hafa komið í veg fyrir meira atvinnuleysi: „Ég er sannfærður um að at- vinnuleysi hér á landi hefði farið, a.m.k. tímabundið, í háa tveggja stafa prósentutölu, ef við hefðum ekki haft okkar eigin gjaldmiðil, úr því sem komið var.“ Á Þorláksmessu 2010 sendi Steingrímur flokks- systkinum sínum aðra jólakveðjuna eftir að vinstri- stjórnin tók við völdum. Vék hann þar að atvinnuleysi með þessum orðum: „Atvinnuleysi, vissulega ein okkar allra mesta meinsemd, hefur þó orðið verulega minna en gert var ráð fyrir, sem sparað hefur milljarða út- gjöld,“ sagði Steingrímur en í desember 2010 var at- vinnuleysi 8% og að meðaltali 12.745 manns án vinnu. Sagði atvinnuvandann hafa reynst minni GREINING FORMANNS VG Á STÖÐUNNI ÁRIÐ 2010 Við Kringlumýrarbraut Félagar í VR vöktu athygli á atvinnu- vandanum á táknrænan hátt í Reykjavík í desember 2011. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Atvinnumál voru ofarlega á baugi fyr- ir þingkosningarnar í apríl 2009 en til upprifjunar var skráð atvinnuleysi í mánuðinum 9,1% og að meðaltali 14.814 manns án vinnu. Þess sjást víða merki í ályktunum Vinstri grænna að flokksmenn töldu sköpun nýrra starfa vera forgangsmál og kynnti formaður flokksins, Stein- grímur J. Sigfússon, meðal annars metnaðarfulla áætlun um sköpun allt að 18.000 nýrra starfa. Raunin hefur verið önnur og áætlar ASÍ að 3.600 ársverk hafi orðið til síð- an botninum var náð 2010. Ályktanir flokksmanna VG bregða birtu á greiningu flokksins á vand- anum og þær leiðir sem flokkurinn vildi fara til lausnar hans. 5. mars 2009 ályktaði svæðisfélag VG á Vestförðum að það væri „for- gangsverkefni fyrir samfélagið á Vest- fjörðum að brugðist [væri] við vaxandi atvinnuleysi á svæðinu“. Dæmir álverin „úr leik“ Sautján dögum síðar, 22. mars 2009, héldu Vinstri grænir landsfund undir yfirskriftinni Vegur til framtíðar varð- aður. Sagði þar í þriðja lið með undir- fyrirsögninni Trygg atvinna - vegur til framtíðar: „Leggjum áherslu á at- vinnusköpun á forsendum sjálfbærrar þróunar með mörgum störfum og mikinn innlendan virðisauka en lítinn stofnkostnað. Slík áhersla dæmir mengandi orkufreka stóriðju eins og álver úr leik. Styðjum við bakið á litlum og meðalstórum fyrirtækjum.“ Þriðjudaginn 7. apríl 2009 var eld- húsdagur á þingi. Formaður VG steig þá í pontu og vék að erfiðri stöðu á vinnumarkaði. „Baráttan gegn at- vinnuleysi hlýtur að verða algjört for- gangsatriði. Störfum þarf að fjölga og verðmætasköpun að aukast með öllum tiltækum ráðum.“ Sama dag ályktuðu fulltrúar VG í þremur þingnefndum vegna fyrir- hugaðra framkvæmda í Helguvík: „Fulltrúar Vinstri-grænna í þremur nefndum Alþingis hafa lýst andstöðu sinni við frumvarp um fjárfestingar– samning um álver í Helguvík og telja óverjandi að samþykkja frumvarpið enda séu á því miklir annmarkar.“ Ekki er úr vegi að rifja upp að hálfu ári síðar, laugardaginn 21. nóvember 2009, flutti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Sam- fylkingar, ræðu á fundi flokksstjórnar flokks síns í Reykjanesbæ: „Forráðamenn Norðuráls segja nú að framkvæmdir við álver í Helguvík fari á fullt í vor og það mun skapa mikla atvinnu. Ég hef einnig góðar vonir um að vinna við Búðar- hálsvirkjun hefjist með vorinu en orku frá henni verður að verulegu leyti ráð- stafað til endurnýjaðs álvers í Straumsvík. Við erum hér að tala um ársverk í þúsundum meðan á þessum framkvæmdum stendur.“ Hverfum aftur til aprílmánaðar 2009. Fimmtudaginn 9. apríl það ár kynnti VG tillögur sínar í atvinnu- málum. Var blaðamannafundinum lýst með þessum orðum á vef VG: „Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, kynnti þá greinargerð hreyf- ingarinnar fyrir því hvernig til geta orðið að minnsta kosti 16-18 þúsund störf á næstu árum með réttum skil- yrðum og stuðningi stjórnvalda. Vinstri græn leggja hins vegar áherslu á að störf eru ekki sköpuð af stjórnmálaflokkunum sjálfum, og eft- irfarandi tillögur eru því ekki loforð um ný störf, hvorki á vegum hins op- inbera né annars staðar, heldur grein- argerð um það hvernig störf geta orð- ið til með framsækinni stefnumótun og stuðningi stjórnvalda,“ sagði á vef VG og var lesendum svo boðið að nálg- ast áætlunina, sex blaðsíðna skjal, Fleiri störf með réttum skilyrðum, sem hefst á útskýringu á því hvers vegna markið er sett á sköpun minnst 16-18 þúsund starfa. Fari niður í „þolanleg mörk“ „Skráð atvinnuleysi í febrúar var 8,2% eða að meðaltali 13.276 manns. Spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi aukist talsvert á árinu og nálgist 10% í lok ársins eða rúmlega 16 þúsund manns að meðaltali. Til að vinna gegn atvinnuleysi og ná því niður í þolanleg mörk fyrir lok næsta kjörtímabils þurfa því að verða til að minnsta kosti 16-18 þúsund störf,“ segir í inngangi skjalsins og eru störfin svo útlistuð. 2.500-3.000 störf áttu að verða til við þjónustu við erlenda ferðamenn; 500 störf vegna viðhalds, endurbóta og ný- bygginga í tengslum við ferðaþjón- ustu, 400 störf vegna aukinna ferða- laga Íslendinga um eigið land, 200 störf í heilsutengdri ferðaþjónustu, 200 störf í samgöngum innanlands, alls 3.800-4.300 störf í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Næsti flokkur er „hefðbundnar framleiðslugreinar“. 1.000-1.500 störf áttu að verða til í landbúnaði og mat- vælaframleiðslu, 500-800 störf í sjáv- arútvegi og fiskvinnslu, 1.000 störf í „greinum sem dregist hafa saman undanfarin ár“, svo sem skipaiðnaður, húsgagnaframleiðsla og minja- gripagerð, 500 störf í byggingariðnaði á landsbyggðinni „með byggingar- framkvæmdum, jafnvel nýbygg- ingum, á landsbyggðinni í tengslum við að atvinnustarfsemi færist í aukn- um mæli út á landsbyggðina aftur“. Samanlagt gerðu þetta 3.000-3.800 Settu markið á 16-18.000 störf Morgunblaðið/Ómar Flokksráðsfundur VG í febrúar Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, telur að botninum hafi verið náð 2010.  Markmið VG í atvinnumálum hafa tekið breytingum á kjörtímabilinu  Mikill munur milli ára  Flokkurinn vildi ekki álver  Formaður VG taldi krónuna hafa varnað mun meira atvinnuleysi Morgunblaðið/Golli JÁKVÆÐ MERKI ÚR ATVINNULÍFINU 55% FLEIRI ÞJÓNUSTUSAMNINGAR RAFHOLT ehf. Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki eru að ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir krefjandi aðstæður. Rafverktakafyrirtækið Rafholt ehf. er dæmi um fyrirtæki sem náði góðum árangri á árinu 2011. 23% fjölgun starfsmanna · 55% fleiri þjónustu- samningar · 12% fjölgun verksamninga Arion banki fagnar þessum góða árangri. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 2 -1 0 3 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.