Morgunblaðið - 02.06.2012, Side 38

Morgunblaðið - 02.06.2012, Side 38
38 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 Árin segja sitt1979-2012 BISTRO Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is Fjögurra daga hátíð hefst í Bretlandi í dag í til- efni af því að sextíu ár eru liðin síðan Elísabet II varð drottning. Á hátíðinni verður m.a. við- hafnarsýning báta á Thames og tónleikar fyrir utan Buckingham-höll með Paul McCartney og fleiri þekktum tónlistarmönnum. Búist er við að um milljón manna fylgist með bátasýningunni. Margir tjölduðu í grennd við Buckingham-höll í gær, þ.á m. þessi þjóðholli drottningarvinur. AFP Haldið upp á 60 ára valdaafmæli drottningar Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nýjar hagtölur hafa leitt í ljós að fjármagnsflótt- inn frá Spáni nam nær 100 milljörðum evra á fyrsta fjórðungi ársins. Fjármálakreppan hefur orðið til þess að margir erlendir fjárfestar hafa selt spænsk hlutabréf og ríkisskuldabréf í miklum mæli. Seðlabanki Spánar sagði að í marsmánuði ein- um hefði fjármagnsflóttinn numið 66,2 milljörðum evra og aldrei verið meiri frá því að mælingarnar hófust árið 1990. Fyrstu þrjá mánuði ársins tóku fjárfestar alls 97 milljarða evra út úr spænska hagkerfinu. Þessi fjárhæð samsvarar um 10% af vergri landsframleiðslu Spánar, að sögn Financial Times. Sérfræðingar telja að fjármagnsflóttinn hafi haldið áfram eða jafnvel aukist í apríl og maí. „Ég hef áhyggjur af því að við höfum ekki séð síðustu tölurnar sem gætu verið enn verri,“ hefur Fin- ancial Times eftir Raj Badiani, hagfræðingi hjá IHS Global Insight sem sérhæfir sig í hagspám og markaðsrannsóknum. Ríkið tekur bankana með sér í fallinu Hagtölurnar staðfestu það mat hagfræðinga að erlendir fjárfestar væru að losa sig við spænsk verðbréf. Nýleg rannsókn sérfræðinga J.P. Morg- an bendir til þess að aðeins 26% spænskra ríkis- skuldabréfa hafi verið í eigu erlendra fjárfesta í mars. Ári áður áttu erlendir fjárfestar um 40% ríkisskuldabréfanna. Seðlabanki Evrópu hefur veitt bönkum í evru- löndum lán á lágum vöxtum til að gera þeim kleift að kaupa ríkisskuldabréf og þessi aðstoð hefur ýtt undir fjármagnsflóttann frá Spáni. Spænskir bankar eiga nú 67% af spænsku ríkisskuldabréf- unum og það er hærra hlutfall en í nokkru öðru evrulandi. Verðmæti ríkisskuldabréfanna hefur minnkað vegna skuldavanda spænska ríkisins og sú þróun hefur veikt stöðu spænsku bankanna frekar, að sögn Landons Thomas, fréttaskýranda The New York Times. Hann segir að örlög spænska ríkisins og bankanna tvinnist saman að þessu leyti, ríkið taki bankana með sér í fallinu. Mikill fjármagnsflótti frá Spáni  Erlendir fjárfestar tóku nær 100 milljarða evra út úr spænska hagkerfinu „Við höfum ekki séð síðustu tölurnar sem gætu verið enn verri.“ Hagfræðingur IHS Global Insight Írar samþykktu stöðugleikasátt- mála Evrópusambandsins með 60,3% atkvæða í þjóðaratkvæða- greiðslu í fyrradag, samkvæmt lokatölum sem birtar voru í gær. Niðurstaðan er mikill léttir fyrir írsku ríkisstjórnina sem lagði áherslu á að ef Írar samþykktu ekki sáttmálann gætu þeir ekki fengið aðstoð úr björgunarsjóði ESB. Her- man Van Rompay, forseti ráðherra- ráðs ESB, fagnaði niðurstöðunni og lýsti henni sem „mikilvægu skrefi í átt að efnahagsbata í Evrópu“. Samkvæmt sáttmálanum fær ESB m.a. vald til að refsa ríkjum sem uppfylla ekki skilyrði um aðhald í ríkisfjármálum. Stöðugleikasáttmáli ESB samþykktur ÍRLAND Stjarnfræðingar hafa notað gögn frá Hubble- geimsjónauk- anum til að reikna út hvenær vetrarbraut okk- ar sameinast Andrómedu- stjörnuþokunni. Niðurstaða þeirra er að sam- runinn hefjist eftir fjóra milljarða ára og tveimur milljörðum ára síð- ar verði vetrarbraut okkar og Andrómeda ein stjörnuþoka. Sameinast eftir fjóra milljarða ára Andrómeda- þokan. ALHEIMUR Rannsókn vísindamanna í Ástralíu hefur leitt í ljós að dagleg neysla á 100 grömmum af dökku súkkulaði, sem inniheldur 70% kakó eða meira, getur dregið úr líkunum á því að fólk deyi af völdum hjarta- áfalls eða heilablóðfalls. Rann- sóknin bendir til þess að súkku- laðineyslan geti hindrað 70 dauðs- föll á hverja 10.000 íbúa á tíu ára tímabili. Skýrt er frá rannsókninni í læknablaðinu British Medical Journal. Dökkt súkkulaði bjargar mannslífum ÁSTRALÍA Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Navi Pillay, sagði í gær að morð á rúmlega 100 óbreyttum borgurum í borginni Houla í Sýr- landi í vikunni sem leið kynnu að vera glæpur gegn mannkyni. Á með- al þeirra sem voru myrtir voru 49 börn. Pillay sagði í ræðu á fundi Mann- réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna að samtökin þyrftu að gera allt sem í valdi þeirra stæði til að „binda enda á refsileysið“ og tryggja að þeir sem fremdu slík grimmdarverk yrðu sóttir til saka. Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi sögðu í gær að vopnaður hópur stuðningsmanna sýrlensku stjórnar- innar hefði framið annað fjöldamorð í fyrradag. Árásarmennirnir hefðu skotið þrettán verkamenn til bana eftir að hafa neytt þá til að fara út úr rútu á leið í verksmiðju nálægt bæn- um Qusair í vesturhluta landsins. Engin íhlutun án samþykkis SÞ Nefnd, sem sýrlenska stjórnin skipaði til að rannsaka manndrápin í Houla, sagði að uppreisnarmenn hefðu framið morðin með það að markmiði að fá erlend ríki til að hefja hernað gegn sýrlensku stjórn- inni. Sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að ekk- ert væri hæft í þessu, niðurstaðan væri „helber lygi“. Leon Panetta, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að of- beldið í Sýrlandi væri „óþolandi“ en hernaðaríhlutun kæmi ekki til greina án stuðnings öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Nei, ég get ekki séð það fyrir mér,“ svaraði Panetta þegar hann var spurður hvort Bandaríkjastjórn kynni að styðja hernað gegn stjórn Sýrlands án samþykkis öryggisráðsins. AFP Mótmæli Sýrlenskir stjórnarand- stæðingar mótmæla manndrápum. Kann að vera glæp- ur gegn mannkyni  Fulltrúi SÞ fordæmir fjöldamorð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.