Morgunblaðið - 02.06.2012, Qupperneq 39
FRÉTTIR 39Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012
Þægilegar íbúðir af ýmsum stærðum, í nálægð við Spöngina. Fallegir garðar og góð bílastæði.
Glæsileg þjónustumiðstöð með tengigangi við öryggisíbúðir Eirar verður tekin í notkun fyrri hluta
ársins 2014.
Öryggisvöktun allan sólarhringinn, tengd hjúkrunarvakt Eirar.
Matsalur og fjölþætt félagsstarf.
Sjúkraþjálfun og dagdeild í nýrri þjónustumiðstöð.
•
•
•
•
•
Búseturéttur að hluta og/eða leiga.
Aðstoðað er við val á hagstæðum búseturéttar- og/eða leigukjörum.
OPIÐ HÚS Í ÖRYGGISÍBÚÐUM EIRBORGA
LAUGARDAGINN 2. JÚNÍ MILLI KL. 14 OG 17
Eirborgir, Fróðengi 1-11, 112 Reykjavík
Notaleg þjónusta í hlýlegu og glæsilegu umhverfi
Sýning á íbúðum virka daga
Vinsamlegast pantið tíma í síma: 522 5700
Eir hjúkrunarheimili • 112 Reykjavík • skrifst@eir.is
Jakarta. AFP. | „Ég ákvað að upplifa Jakarta-
borg eins og hún er í raun og veru,“ sagði
ferðamaður og steig varfærnislega milli ýldu-
polla og rottu sem skaust á milli hreysanna.
Þetta er staður sem sést aldrei á póstkortum.
Rohaizad Abu Bakar, 28 ára bankastarfs-
maður frá Singapúr, kvaðst ekki hafa trúað
eigin augum þegar hann gekk um fátækra-
hverfið í indónesísku höfuðborginni. Við hon-
um blöstu hundruð hreysa, sum þeirra aðeins
um metra frá járnbrautarteinum.
Svonefnd „fátæktarferðaþjónusta“ nýtur nú
vaxandi vinsælda í Jakarta. Þeir sem bjóða
upp á skoðunarferðir um fátækrahverfin segja
þær vekja fólk til vitundar um samfélags-
vandamálin og peningarnir frá ferðafólkinu
séu notaðir til að hjálpa fátæka fólkinu. Aðrir
segja hættu á að fátæka fólkið verði misnotað í
gróðaskyni og fátækt eigi aldrei að nota til að
laða að ferðamenn.
Slíkar ferðir hafa einnig notið vaxandi vin-
sælda í löndum á borð við Brasilíu og Indland.
Helmingurinn notaður
í samfélagsverkefni
„Við sýnum hvernig Jakarta er í raun og
veru,“ sagði Ronny Poluan, 59 ára Indónesi
sem stofnaði fyrirtækið Jakarta Hidden Tours
árið 2008. Fyrirtækið sérhæfir sig í ferðum um
fátækrahverfin og er ekki rekið í hagn-
aðarskyni.
„Við förum í um tíu ferðir á mánuði, með tvo
til fjóra ferðamenn í einu. Sífellt fleiri notfæra
sér þjónustuna, sumir koma jafnvel til borgar-
innar í þeim tilgangi einum að fara í slíka ferð
með okkur … Þetta er ekki aðeins bakpoka-
fólk, heldur einnig kaupsýslumenn og banka-
stjórar,“ sagði Poluan um viðskiptavinina.
Hver ferðamaður greiðir 500.000 rúpíur,
sem svarar um 7.000 krónum, fyrir ferðina.
Helminginn fær fyrirtækið upp í rekstrar-
kostnað en hinn helmingurinn fer í ýmis verk-
efni til að bæta kjör íbúanna, t.a.m. sjá þeim
fyrir heilsugæslu og menntun. „Ég gef ekki
íbúunum peninga, heldur borga til dæmis
læknunum milliliðalaust,“ sagði Poluan.
Wardah Hafidz, talsmaður samtaka sem
berjast fyrir bættum kjörum fátækra Indó-
nesa, kveðst vera andvígur því að fátækra-
hverfin verði gerð að ferðamannastöðum. „Það
ætti ekki að sýna fólk eins og apa í dýragörð-
um.“
Fátæktin laðar að ferðamenn
Fátæktarferðaþjónusta nýtur vaxandi vinsælda í Indónesíu og fleiri löndum Ágóðinn af ferðum
um fátækrahverfin notaður til að bæta kjör íbúanna Fátækt fólk sýnt eins og apar í dýragörðum?
AFP
Hættulegt Algengt er að börn leiki sér á járnbrautarteinum við hreysin. Lítil stúlka dó nýlega þegar hún hljóp á eftir ketti og varð fyrir lest.