Morgunblaðið - 02.06.2012, Side 41

Morgunblaðið - 02.06.2012, Side 41
Það verður æ ljósara að höftin á verslun með verðbréf í erlendri mynt verða þjóðinni erfiðari með hverjum deginum og hafa marg- víslegar slæmar afleiðingar fyrir efnahag landsins. Því skal ekki mótmælt að höftin höfðu ýmsa kosti fyrir okkur, þegar þeim var komið á. Þau voru viðbrögð við neyðarástandi. Nú eru aukaverk- anirnar hins vegar að koma í ljós, hið langvinna sjúkdómsástand sem hægt og bítandi vinnur á heilbrigði efnahagslífsins. Þær hömlur sem lagðar hafa verið á fjárfestingar Íslendinga erlendis geta ekki leitt til annars en ófarnaðar innanlands þegar fram í sækir. Þetta kann að hljóma ankannalega í ljósi þess, að því er stíft á loft haldið að efnahagslífið sé í brýnni þörf fyr- ir erlenda fjárfestingu. En ef grannt er skoðað kemur þó í ljós að báðar þessar fullyrðingar eiga vel við og haldast í hendur. Heilbrigt efnahagslíf, þ.e. ábatasamur at- vinnurekstur, keppir um ódýrt fjármagn vegna umsvifa sinna. Fjármálafyrirtæki keppa eftir vel reknum fyrirtækjum í viðskipti vegna þess að líklegt má telja að þau standi bæði undir viðunandi vaxtagreiðslum og endur- greiðslu lánanna. Lífeyrissjóðirnir sækjast eft- ir að kaupa skuldabréf slíkra fyrirtækja og eignast jafnvel hlut í þeim. Þeir líta kosti sína gagnrýnum augum og velja fjárfestingar í samræmi við það. En hvernig eru aðstæðurnar núna í fjárfest- ingarumhverfi lífeyrisssjóðanna? Á meðan almenningur leggur í lögbundinn skyldusparnað í lífeyrissjóðunum eru þeim settar skorður við fjárfestingum með því að hefta þá við fjárfestingar hjá ís- lenska ríkinu, íslenskum fyr- irtækjum eða í húsnæði á Íslandi. Það má orða það þannig að pen- ingar hlaðast upp sem koma þarf í lóg til að standa undir skuld- bindingum lífeyrissjóðanna við eigendur sína. Í raun er of- framboð á íslensku fé til lang- tímafjárfestinga hér á landi. Ein afleiðing þessa kann að verða sú, að stjórnendum lífeyrissjóðanna daprist sýn á gæði fjárfestinga sinna, að skerpan dofni og fjár- fest verði í slakari verðbréfum en við eðlilegar kringumstæður. En afleiðingarnar ganga ekki bara í eina átt, þær ganga í báðar áttir. Hætt er við að íslenskt at- vinnulíf verði einnig fyrir barðinu á lausatökum fjármála- fyrirtækja vegna minna aðhalds og gagnrýnislausra lánveitinga. Lífeyrissjóðirnir annars vegar og atvinnureksturinn hins vegar munu snúast um möndul gjald- eyrishaftanna í nýjum hruna- dansi. Það sjónarmið er mik- ilvægt, að súrsun hugarfarsins, sem fylgja mun einhæfu vali fjárfestinga, meira og minna stýrðu af pólitískum sjón- armiðum, sú súrsun mun spilla smám saman heilbrigði efnahagslífsins eða öllu heldur koma í veg fyrir þann bata, sem við þörfnumst svo sárlega. Það er lífsnauðsyn að þessari þróun verði snúið við. Það verður ekki gert nema hleypa fjárfestum að nýju að fjárfestingakostum er- lendis. Það verður bæði gott fyrir rekstur at- vinnulífsins og lífeyrisþega framtíðarinnar og þar með allan almenning. Það er skynsamlegt að hefja þessa vegferð hjá lífeyrissjóðunum. Eftir Sigurbjörn Sveinsson » Súrsun hug- arfarsins, sem fylgja mun einhæfu vali fjárfestinga, mun spilla smám saman heilbrigði efna- hagslífsins. Sigurbjörn Sveinsson Höfundur er læknir. Afnám gjaldeyris- hafta hefjist hjá lífeyrissjóðunum 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2012 Tekið á Þær eru ekki eftirbátar karlanna konurnar á sjónum eins og sjá má á kvennaliði World Class sem æfði sig í gær fyrir kappróður á sjómannadaginn og reru færeyskum báti. Ómar Nýlega var í Hæstarétti stað- festur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem lögmanni var gert skylt að láta skattrann- sóknarstjóra í té yfirlit yfir nöfn og kennitölur kvenna sem til hans höfðu leitað eftir lög- fræðiaðstoð vegna gallaðra brjóstapúða. Byggðist nið- urstaða réttarins á nýlegri heimild í 94. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt þar sem öllum er skylt að láta skattayfirvöldum í té allar upplýsingar og gögn sem þau óska eftir. Sérstaklega er tekið fram í þessu ákvæði, sem kom í lögin 2009, að ákvæði annarra laga um trúnaðar-og þagnarskyldu víki fyrir því. Á Íslandi og flestum öðrum ríkjum sem vilja kenna sig við mannréttindi og vilja hafa í heiðri grunn- reglur réttarríkisins er í stjórnarskrá ákvæði um friðhelgi einkalífs fólks. Þessi regla, sem ætlað er að verja einstaklinga gegn yfirgangi stjórnvalda hverju sinni, er mikilvægasta mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Svo mikilvæg að sett hafa verið í lög ákvæði um trúnaðar- og þagnarskyldu ýmissa starfs- stétta, svo sem lögmanna, sem hafa upplýs- ingar um viðkvæm einkamálefni fólks. Meira að segja hafa verið sett sérstök lög um per- sónuvernd og stofnun sett á laggirnar til að framfylgja þeim lögum. Í kjölfar ofangreinds dóms er eðlilegt að spyrja sig hvort stjórnarskrárvernd einkalífs- ins gagnvart ríkisvaldinu sé engin orðin. Það er ekki nýtt í tíð núverandi stjórnvalda að friðhelgi einkalífsins sé í löggjöf látin víkja fyrir „hagsmunum“ ríkisvaldsins (sem stjórn- málamenn á hverjum tíma kalla almanna- hagsmuni, líka í alræðisríkjum). Um það eru fjölmörg dæmi og fleiri slík lög í bígerð. Hins vegar er merkilegt að dómstólar telji að stjórnarskrárvarinn réttur um friðhelgi einkalífs skuli víkja fyrir lagaákvæði því sem skattayfirvöld byggja heimild sína á í máli þessu. Það er mikilvægt fyrir fólk að geta leitað til lögmanna vegna sérþekk- ingar þeirra. Að öðrum kosti er flestum einstaklingum ekki mögulegt að leita réttar síns gagnvart öðrum einstaklingum eða ríkisvaldinu. Þess vegna hef- ur löggjafinn sett sérstök lög um lögmenn þar sem trúnaðar- og þagnarskyldan er mikilvægur þáttur og í raun forsenda þess að fólk geti leitað til þeirra. Það er því undarlegt að löggjafinn skuli afnema trúnaðar- og þagn- arskylduna og veita skatta- yfirvöldum ótakmarkaða heimild til að fá aðgang að viðkvæmum upplýsingum um skjólstæðinga þeirra. Og það er skelfilegt að dómstólar skuli meta stjórn- arskrárverndaða friðhelgi einka- lífs svo lítils, að þeir leggi bless- un sína yfir löggjöf af þessu tagi. Er það virkilega svo að fólki finnist almennt í lagi að skattayfirvöld fái ótakmarkaðar upplýsingar hjá lögmönnum um viðkvæm einkamálefni fólks við rannsókn á því hvort læknir úti í bæ hafi skotið ein- hverjum krónum undan skatti? Hvað er þá því til fyrirstöðu að skattayfirvöld fái aðgang að gögnum í vörslu skipaðra verjenda sak- aðra manna? Samkvæmt dómi Hæstaréttar er ekkert því til fyrirstöðu. Það er eins og allir séu sofandi á verðinum yfir þessum mik- ilvægu einstaklingsréttindum. Og það er í raun ótrúlegt að nokkrum manni skuli finn- ast hagsmunir skattayfirvalda vega þyngra en hagsmunir þeirra kvenna sem hér um ræðir. Í því hugarfari sem ræður nú ríkjum hér á landi er augljóst að augað á veggnum í frægri sögu Orwells lifir góðu lífi. Ein- staklingurinn og réttindi hans skipta engu máli þegar hagsmunir ríkisvaldsins eru ann- ars vegar. Og það er óþolandi fyrir fólk sem þarf á þjónustu lögmanna að halda að rík- isvaldið geti, þegar því sýnist svo, krafið þá um afhendingu upplýsinga og gagna um einkamálefni þess. Erfitt er að trúa því að ís- lendingar vilji búa í slíku samfélagi. Eftir Brynjar Níelsson » Það er mik- ilvægt fyrir fólk að geta leit- að til lögmanna vegna sérþekk- ingar þeirra. Brynjar Níelsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður, Augað á veggnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.